Bændablaðið - 15.08.2024, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024Líf & starf
Áning við Fosslækjarskála í Langjökulsferð árið 1988. Guðmundur
Gunnarsson, Bjarni Hólm Frímannsson, Guðrún Jónsdóttir, Þóra Ólafsdóttir,
Vilhjálmur Guðmundsson, Jón Sigurðsson í Skollagróf, Anna Thorlacius
og Sigríður Karlsdóttir.
Fjöllin, dalirnir, vötnin, fossarnir, sandarnir,
jöklarnir og gljúfrin eru Ólafi Magnúsi
Schram sem fjölskylda. „Og hver heimsækir
ekki ættmenni sín reglulega?“ spyr fjallafarinn
sem gefur nú út bók um ævintýri sín.
Ólafur hefur nú sett saman ferðasögur sínar
í bókinni Tölt og brölt þar sem hann segir frá
hestaferðum sínum um hálendi Íslands á áttunda
og níunda áratug síðustu aldar.
Öræfingar tala við alla
sem jafningja
„Ég er fæddur í Reykjavík en undi í Öræfunum
átta sumur frá sex ára aldri. Þar komst ég í
snertingu við náttúruna, landið og í raun lífið.
Öræfingar tala við alla, jafnt fullorðna sem börn, sem
jafningja. Þeir treysta fyrir verkum, setja aldrei út á heldur
gefa frekar góð ráð. Þolinmæði og virðing er fyrir öllu
lifandi. Þannig ólst ég upp,“ segir Ólafur.
Eftir tuttugu ára skrifstofuvinnu venti hann sínu kvæði
í kross og fór í leiðsögunám og tók meirapróf og árið 1994
stofnsetti hann sitt eigið fyrirtæki í ferðaþjónustu, Fjallafari-
Highlander Tours. „Ég hef verið landkynnir í þrjá áratugi.
Ég fer ekki bara í ferðir með erlenda gesti heldur einnig upp
á mitt einsdæmi, með félögum, fjölskyldu, vegna íþrótta,
fundarhalda, framboðsfunda, afmælisveislna, jarðarfara
eða Góuhófs. Ég hitti þar af leiðandi margan manninn og
líður mér heima hvar sem ég er staddur á landinu. Ég ek
hringinn um tuttugu sinnum á ári og er yfirleitt 260–280
nætur að heiman. Ég er ekki alltaf á hótelum því ég hef
gist í 160 mismunandi fjallakofum en man ekki hve oft í
hverjum,“ segir Ólafur.
Lék á dauðann
Uppsprettu ævintýramennsku Ólafs rekur hann til
sumardvala sinna í Öræfunum. „Ég fór með flugi í
kjötvélinni að austan hvert haust, þar voru flugmenn í
sjálfboðavinnu sem sýndu mér Mýrdalsjökul, Lakasvæðið,
Hekluna og Landmannaafrétt. Ég hét því þá að komast á
þessa staði.“
Íslenski hesturinn er Ólafi hjartfólginn og er
bók hans frásagnir af eftirminnilegum hestaferðum.
„Mitt aðaláhugamál var hestamennska. Þó aðeins ferðalög,
en ekki ræktun eða keppnir. Í bókinni minni tek ég fyrir
fjórar sögur af langferðalögum mínum á hrossum. Sú fyrsta
er um Langjökulshringinn, með tíu manns og stuttum
dagleiðum, tíu nátta ferð.
Í þeirri sögu koma fram skemmtilegar vísur Jóns úr
Skollagróf. Næsta saga segir frá ferð minni eins míns
liðs kringum Hofsjökul. Á ýmsu gekk en heppnin var
mér samferða, sú ferð stóð í sjö nætur og ég fór langar
dagleiðir og þar um
sem ég hafði ekki
farið áður.“
Þriðja ferðin var
hringferð um Ísland
sem Ólafur lagði upp
í árið 1986, og telur
hana líklega síðustu
reiðferð með lausa
hesta í rekstri hringinn í kringum landið. „Þar fór ég
með tveimur félögum mínum, Vigfúsi Magnússyni
lækni og Þór Guðmundssyni bankamanni. Við vorum
alls í 26 nætur, sváfum á 23 bæjum og ræddum við
landsbyggðarfólk fram eftir öllu. Sú ferð stendur upp
úr sem sú fjölbreyttasta enda sú lengsta.
Fjórða ferðin í bókinni er Vatnajökulsferð. Þar fór
ég austur frá Nýjadal og um Snæfell og Lónsöræfi. Það
var sannkallaður leikur við dauðann, eða leikur á hann,
því ég hefði átt að drukkna átta sinnum í það minnsta.
Ég tókst á við rosa vötn, mikla göngu á óreiðfæru landi,
þetta voru langir dagar og svefnlitlar nætur. Ég missti
sex kíló á sex dögum og var ekki mikill fyrir. Þessi ferð
var ævintýralegust þeirra allra.“
Hross þurfa umhyggju
Af slíkum ævintýraförum er ýmislegt hægt að læra.
„Þarna var ég í flestum tilfellum einn og gat því gefið
landslaginu góðan gaum. Ég tek því ekki sem sjálfsögðu.
Þá er betra að hafa heppnina með sér – en treysta henni
ekki alltaf. Ég lærði að lesa ár fyrir sundtöku og líta eftir
landtöku hinum megin. En fyrst og fremst lærði ég hversu
mikilvægt er að gefa hestum sitt rými, næra þá, gæta að
nuddi, sárum eða lausum skeifum og sýna þeim umhyggju.“
Ólafur stendur sjálfur að útgáfu bókarinnar og
fjármagnaði hana meðal annars með söfnun í gegnum
Karolina fund. /ghp
Trússarar að brjótast upp úr Jökulsá á Fjöllum.
Reiðfélagið Bruni á ferð. Frá vinstri: Guðrún, Villi, Bjarni, Anna, Jytte,
Þóra, Sigga, Siggi, Gummi og Óli.
Augnablik úr Vatnajökulsferð Ólafs í ágúst árið 1991. Laugavallaskáli
á Laugavöllum. „Þurrka varð allt sem ég var með.“
LÍFRÆN SKOLP
HREINSISTÖÐ
• Hátt hreinsunarstig
• Lyktarlaus
• Einföld uppsetning
• Ekki þörf á siturlögnum
• Möguleiki á fjartengingu við upplýsingakerfi
vatnsvirkinn@vatnsvirkinn.is - Sími 510 1400 - www.vatnsvirkinn.is
• Stöðin kemur samsett og tilbúin til uppsetningar
Boðið í Afmæli aldarinnar í júlí 1988. Þá staddur á Heiðarbæ á
Þingvöllum.Fjórir klárar Ólafs prýða forsíðu bókarinnar
Tölt og brölt. Eiðfaxi, Huginn, Hrókur og Högni.
Ólaf ur Magnús Schram.
„Klárar mínir að brjótast upp klifið frá brúnni yfir Jökulsá í Lóni.“
Úr Vatnajökulsferðinni árið 1991. Á Gæsavatnaleið. Hey tekið með.
Bókaútgáfa:
Ævintýralegar
hestaferðir fjallagarps