Bændablaðið - 15.08.2024, Page 37
37ViðtalBændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024
Það er því mikill samgangur og
oft glatt á hjalla hjá Melsurum eins
og þau kalla sig, enda barnabörnin
22 og barnabarnabörnin orðin tvö.
Jólaboðið og þorrabót Melsara er
haldið á heimili þeirra Guðrúnar
og Olla en hápunkturinn eru
Melsleikar sem haldnir eru á hverju
sumri. Hlaupið í skarðið, Yfir og
aðrir gamlir og góðir útileikir eru
teknir til kostanna og Melsarar taka
viðburðinn alvarlega, skipt er í tvö
lið og þau merkt með sérhönnuðum
bolum og í lokin eru afhentir bikarar
fyrir góða frammistöðu og reyndar
líka skammarverðlaun þegar það á
við. Verðlaunagripir skreyta hillur
þessarar elstu kynslóðar Melsara
en þar má líka finna skammar-
verðlaun.
Ánægð og hlakka til næstu ára
„Við erum mjög sátt hérna í skóginum,
okkur hefur verið gefið afskaplega
mikið,“ segja þau. Húsið þeirra heitir
Furumelur og sitt til hvorrar handar
eru synirnir Rögnvaldur á Reynimel
og Jónas á Birkimel með sínar
fjölskyldur og stutt til Þóreyjar.
„Lífið hefur verið okkur gott, ég
mæti á fjalirnar þegar leikfélagið
kallar,“ segir Olli en hann hefur
verið afar liðtækur hjá leikfélaginu
og sama má segja um afkomendur
þeirra sem kunna vel við sig á sviði.
„Svo er ég í tveimur kórum,“ segir
hann og augljóslega „helsáttur“ eins
og unga fólkið segir. Guðrún hefur nú
nógan tíma í handverkið og opinberar
draum sinn um húsbíl svo hægt sé
að ferðast um landið. Hver skyldi
nú hafa séð það fyrir að þessir ungu
bræður, Olli og Brandur, sem upp úr
miðri síðustu öld fylgdu draumum
sínum, hefðu síðan þá margfaldað sig
mörgum sinnum og framleitt matvæli
fyrir landann í ómældu magni? Ef þeir,
og spúsur þeirra, geta ekki horft stolt
um öxl, hver getur það þá?
Melur um það leyti þegar nýju eigendurnir tóku við búrekstrinum og fluttu
með manni og mús.
Nýju bændurnir á Mel. Þarna er hundurinn Glámur, með hjónin Guðbrand
Guðbrandsson og Jónu Jónsdóttur sér á vinstri hönd og hárprúði
ungi maðurinn er Þorkell Guðbrandsson. Dökkhærða barnið er Áslaug
Guðbrandsdóttir og það ljóshærða Úlfar Guðbrandsson
Það er mörg búmannsraunin. Hér eru þau hjón, Guðbrandur og Jóna, í
búreikningum á Staðarhrauni.
Ný kynslóð
útihitara
Gæða útihitarar á verönd, svalir
og öll útisvæði. Þola regn og
mega vera úti allan ársins hring.
Stillanleg veggfesting fylgir og
fjarstýring með 3 hitastillingum.
Skjólveggir
fyrir bústaðinn
Sérlega fallegir skjólveggir úr gleri
sem veita gott skjól án þess að trua
útsýnið. Veggirnir koma í ýmsum
stærðum og útfærslum.
Verið velkomin í Flísabúðina og fáið
ráðgjōf sérfræðinga okkar.
Stórhöfða 21, 110 Reykjavík | 545 5500 | flis@flis.is | flisabudin.is
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
TILBOÐSVERÐ
Kr. 4.100.000
Við auglýsum svo
sannarlega ekki “verð frá”.
VIÐ AUGLÝSUM
ALDREI
„VERÐ FRÁ“
SERES 3
Luxury Rafmagnsbíllinn
býður upp á ríkulegan
staðalbúnað og frágang
í hæsta gæðaflokki!
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464
www.wendel.is - wendel@wendel.is
HILLTIP
VETRARBÚNAÐUR
____________________
SNJÓTENNUR, FJÖLPLÓGAR,
SALT - OG SANDDREIFARAR