Bændablaðið - 15.08.2024, Page 39
39Á faglegum nótumBændablaðið | Fimmtudagur 15. ágúst 2024
Stórhöfða 21, 110 Reykjavík | 545 5500 | flis@flis.is | flisabudin.is
Ein fallegasta barrviðartegundin
sem vaxið getur á Íslandi er
upprunnin í barrskógabelti
Síberíu austan árinnar Volgu.
Útbreiðslusvæðið nær allt
norður fyrir 67. gráðu norðlægrar
breiddar og liggur um Rússland
austan Volgu, Xinjiang-hérað
Kína, Kasakstan og fleiri lönd allt
austur til Jakútíu. Á sunnanverðu
útbreiðslusvæðinu þrífst hún í svölu
loftslagi í rökum jarðvegi til fjalla
með vatnasvæðum áa og fljóta í um
1.900 til 2.400 metra hæð yfir sjó
en á láglendi þegar norðar dregur.
Tegundin er kennd við Síberíu í
latneska heitinu og líka því íslenska,
síberíuþinur.
Þinur þessi er mjög skuggþolinn
og stendur af sér mikið frost, allt
niður í mínus fimmtíu stig. Hann er
því með harðgerustu tegundum sem
þekktar eru samkvæmt bandaríska
vefnum Conifer Trees Database
sem bandaríska barrtrjáasambandið
American Conifer Society rekur.
Þetta er mjög svo fróðlegur vefur
sem geymir miklar upplýsingar um
ýmsar tegundir barrviða.
En skyldi tegund sem aðlöguð
er meginlandslofti fjarri sjó í Asíu
eiga einhverja möguleika á Íslandi
þar sem alls staðar er fremur stutt
til sjávar og loftslag með því
hafrænasta sem þekkist? Ætla mætti
ekki, ef skoðaður er árangur af
ræktun síberíuþins á Íslandi í árdaga
skógræktar á fyrri hluta tuttugustu
aldar. Flestir drápust síberíuþinirnir
úr sveppsjúkdómnum þinátu – ef þá
kól ekki til dauðs – enda nutu þeir
ekki skjóls og skugga af eldri trjám
og voru útsettir fyrir þeim óteljandi
veðrabrigðum sem náttúruöflin efna
til á Íslandi.
Síberíuþinur var meðal fyrstu
trjátegunda sem reyndar voru í
skógrækt á Íslandi. En jafnvel
þótt flest trén hafi drepist sem
fyrst voru gróðursett eigum við
til rúmlega 120 ára gömul eintök
bæði í Grundarreit í Eyjafirði og
Furulundinum á Þingvöllum. Þessi
elstu tré hafa svolítið fjölgað sér
með sveiggræðslu. Yfirleitt eru
afföll af gróðursettum síberíuþin
mikil vegna þinátu eða kals í
æsku hérlendis en dæmi eru
um mjög vel heppnaða ræktun
hans, til dæmis í Kjarnaskógi og
Hallormsstaðaskógi þar sem hann
hefur verið gróðursettur í skjóli
annarra trjáa, ekki síst þar sem
þau standa í gróðursettum birkireit
eða undir lerki. Síberíuþinur þarf
skjól í æsku, helst skerm hávaxnari
trjáa, og frjósaman jarðveg. Hann
er með öðrum orðum engin
frumherjategund og ekki reynandi
að gróðursetja hann á skóglausu
landi. Helst er árangurs að vænta
í eldri skógum í innsveitum þar
sem veður er stöðugra en við
sjávarsíðuna.
Til helstu kosta síberíuþins telst
líklega fegurðin. Þetta er fremur
smávaxið tré sem vex hægt en nær
með tímanum 30–40 metra hæð
í upprunalegum heimkynnum.
Hérlendis má búast við að hann
geti náð tuttugu metrum eða meira
á löngum tíma. Þetta er beinvaxið,
einstofna tré með keilulaga krónu
eins og títt er með barrtré. Oft
er síberíuþin ruglað saman við
rauðgreni enda tegundirnar áþekkar
að sjá, einkum tilsýndar. Þegar nær
er komið sést að barrið er mýkra
og meira gljáandi. Síberíuþinur
hreyfist tígulega í vindi. Hann
hefur fremur ljósgrænan, frísklegan
lit sem gerir að verkum að hann er
upplagður til að auka fjölbreytni og
fegra ásýnd skóga.
Misjafnar skoðanir eru á
síberíuþin sem jólatré. Hann hefur
óumdeilanlega fegurðina sem
til þarf og er barrheldinn eins og
aðrir þinir, en mörgum þykir hann
svigna um of undan þunga skrauts
og jólaljósa. Með léttri seríu og
nettu skrauti nýtur hann sín engu
að síður mjög vel. Hann ilmar vel
og löng hefð er fyrir því að vinna
úr honum ilmolíur sem meðal
annars eru taldar góðar við hósta
og kvefi.
Náskyld tegund kallast
mansjúríuþinur á íslensku (Abies
nephrolepis). Um hann má lesa á
áðurnefndum barrtrjáavef en líka
er vert að benda á gagnabrunninn
Gymnosperm Database, sem
geymir mikinn fróðleik um þini
og aðra berfrævinga.
Pétur Halldórsson
kynningarstjóri.
Síberíuþinur (Abies sibirica)
Síberíuþinur þarf skjól eldri trjáa í uppvextinum. Hér hefur hann verið
gróðursettur í eldri gróðursettum birkireit í Kjarnaskógi og dafnar vel.
Myndir / Pétur Halldórsson
Land og skógur
Einfaldar lausnir fyrir framkvæmdasvæði.
Vandaðar einingar sem henta vel sem tímabundnar
kaffistofur, skrifstofur, vinnuskúrar eða
vinnubúðir. Ýmsar stærðir og útfærslur í boði.
Kynntu þér möguleikana á stolpigamar.is eða
hafðu samband í síma 568 0100.
Alvöru aðstaða
stolpigamar.is
...Gæði þegar að er gáð
Skemmuvegur 46, Kópavogur
Rafstilling S: 581-4991 Netfang: Rafstilling@rafstilling.is
Reki S: 562-2950 Netfang: Reki@reki.is