Golf á Íslandi - 01.11.2001, Side 35
GOLF
Á í S L A N D I
Björgvin Sigurbergsson, fyrrum
íslandsnieistari, og Óiafur Már
Sigurðsson voru í hópi snjallra
kylfinga á KPMG-niótinu á
Hvaleyrinni.
Vel heppnað góðgerðargolf KPMG
Iseptember s.l. var
Góðgerðargolf KPMG
haldið í fyrsta skipti. Leikið
var til stuðnings Arvöllum á
Kjalarnesi en Arvellir er
meðferðarheimili fyrir ungt
fólk í vímuefnavanda sem
hefur verið starfrækt af
Götusmiðjunni síðan 1998.
Rekstur heimilisins fer ffarn í
nánu samstarfi við Barna-
verndarstofu. Meðferð-
arheimilið hefur nú þegar
skapað sér orðstír fyrir góðan
árangur í vinnu með þeim
ungmennum sem gjarnan
eiga erfiðast uppdráttar.
Markmið KPMG með
góðgerðargolfmu var að skipu-
leggja eftírmiðdag þar sem ýmsir
aðilar úr atvinnulífinu kæmu
saman, léku golf, skemmtu sér
vel og söfnuðu í leiðinni fé til
styrktar góðu málefni.
Fyrirkomulagið var þannig að
ýmsum fyrirtækjum var boðin
þátttaka og hvert fyrirtæki lék
einurn bolta, ýrnist af einum eða
tveimur fulltrúum þess. Fyrir
hvert slegið högg, að teknu tilliti
til forgjafar, voru greiddar 500
kr. sem runnu óskertar til Ár-
valla. Alls voru leiknir 4 boltar í
hverjum ráshópi, 3 af fulltrúum
fyrirtækja en einn af rneist-
araflokkskylfingi. Fyrir hvert
slegið högg meistaraflokkskylf-
ings greiddi KPMG á Islandi
500 kr. Til að auka á skemmt-
unina var þátttakendum heimilt
að láta meistaraflokkskylfinga slá
fyrir sig 5 högg á 18 holum.
Fyrir, eftír og á meðan á leik stóð
voru þátttakenduin boðnar léttar
veitingar auk þess sem vaskir
kylfusveinar frá KPMG sáu um
að þjónusta þátttakendur allan
tímann. Það er skemmst frá því
að segja að með þessum hætti
söfnuðust 1.236 þús. kr. sem
runnu til Árvalla. I mótslok
afhenti Sírnon Á. Gunnarsson
Marsibil Sæmundsdóttur frá
Götusnúðjunni styrkinn.
KPMG vill nota þetta tækifæri
og þakka öllum þátttakendum
kærlega fyrir stórskemmtilegan
dag þar sem öll slæmu höggin
þjónuðu góðum tilgangi. Þá
viljum við þakka Golfldúbbnum
Keili fyrir aínot af velli og mikla
þjónustulund og einnig Björgvini
Sigurbergssyni margföldum
Islandsmeistara í golfi fyrir að
fara fyrir meistaraflokks-
kylfingum.
Samhliða góðagerðargolfinu
styrkti KPMG Björgvin um 200
þús. kr. en hann heíur undanfar-
ið reynt fyrir sér senr atvinnu-
maður í íjrróttiimi. KPMG óskar
honum góðs gengis.
Það er von félagsins að
góðgerðargolfið verði fastur
punktur í tilverunni og að enn
fleiri fyrirtæki taki þátt í þessum
skemmtilega atburði að ári liðnu.
Þau fyrirtæki er þátt tóku vora:
Baugur, Eimskip, Ferðaskrifstofa
Islands, Fjörukráin, Flugfélag
Islands, Grandi, Hans Petersen,
Hitaveita Suðumesja, Ibúðalána-
sjóður, Islensk Ameríska, Lex lög-
mannsstofa, MP Verðbréf
Nýsköpunarsjóður, Olíufélagið
Esso, Opin kerfi, Radíómiðun,
Ragnar Olafsson, Ráðgjóf og efiia-
hagsspár, Rolf Johansen,
Sparisjóður Hafnarfjarðar,
Sparisjóður Kópavogs, Sparisjóður
Mýrarsýslu, SP-Fjármögnun, SR-
Mjöl og Vátryggingafélag Islands.
L' |
rjy,
f)!
& m
■*w\
0% 'IÉS
K p
W' r >.
35