Golf á Íslandi - 01.11.2001, Blaðsíða 54

Golf á Íslandi - 01.11.2001, Blaðsíða 54
GOLF Á í S L A N D I Dómur kveðínn upp í sænsku skaðabótamáli - Arnljótur Björnsson segir frá því er Svía var... Sfefnt fyrir húkk! Sem betur fer virðist ekki vera mikið um slys á golf- völlum hér á Iandi. Slys get- ur þó orðið, ef kylfingur slær annan leikmann, þegar hann hyggst slá boltarm eða tekur æf- ingahögg. Ekki þarf heldur að fjölyrða, að illa getur farið, ef golfkúla skellur af miklu afli á fólki eða munum. Hingað til mun hafa verið ffemur fátítt hér að gerðar séu skaðabótakröfur vegna tjóns, sem hlýst af þessu. Þó eru þess ýmis dæmi. I Svíþjóð féll fyrir nokkrum árum dómur um golfleikara, sem var svo óheppinn, að bolti ffá honum olli skemmdum á bíl. (Dómurinn er birtur í dómasafhinu Nytt Juridiskt Arkiv árið 1993, bls. 149.) Þar sem dómar urn þetta efhi eru fátíðir og þetta mál er forvitnilegt fyrir golfleikara verður það gert að um- talsefni hér. Fyrst verður farið örfá- um orðum um hvemig skaðabóta- skylda stofhast að lögum. Til þess að maður verði dæmdur til að greiða skaðabætur fyrir tjón verður að sýna fram á, að hann eigi sök á tjónsatvikinu. Frá því eru undantekningar, sem ekki skipta máli hér. Tjónþola nægir að sanna, að tjónið sé afleiðing ógætilegrar hegðunar tjónvalds. I lögfræði merkir ógætileg eða óvarleg hegð- un nokkurn veginn það sama og í daglegu máli. Þegar lögfræðingar fjalla urn skaðabótarétt er ógætni oftast nefhd gáleysi. I því felst, að maður hafi gert eitthvað, þótt hann hefði átt að sjá, að athöfn hans gæti líklega valdið umtalsverðri hættu á tjóni á mönnum, munum eða öðr- um hagsmunum annarra. Dóm- stólar meta hverju sinni effir atvik- um, hvort tiltekin athöfh sé ógæti- leg og er þá bæði litið á gerðir tjónvalds og hlutdeild tjónþola í at- vikum, sem orsökuðu tjónið, ef hún er einhver. Það, sem nú hefur verið sagt, gildir yfirleitt um flest það, er menn taka sér fyrir hendur. Þó kemur fyrir, að kröfur, sem dómstólar gera til manna um aðgæslu, eru ýmist vægj ari eða ríkari en almennt gerist. A þetta við um nokkur athafnasvið. Dómstólar gera t.d. að jafnaði strangari gætnikröfur en annars, þegar þeir fjalla um bótaskyldu vegna vinnuslysa. Hins vegar má gera ráð fyrir, að kröfur séu vægari en ella, þegar dæmt er um tjón, sem einn þátttakandi í íþróttum og leikjum veldur öðrum leikmanni, eins og nánar kemur ffam í 3. kafla hér á effir. Málsatvik R lagði fólksbíl, sem hlutafélagið B átti, á bifreiðastæði golfklúbbs í Trelleborg í Svíþjóð. Stæðið er rétt norðan við vallarmörkin, eins og sést á grófri teikningu, sem fylgir grein þessari. Þegar R var ásamt fjölskyldu sinni að taka golfdót úr bílnum lenti golfbolti á honum og skemmdist hann nokkuð. Maður að nafni Ulf (hér á eftir nefndur Úlfur) hafði slegið boltann frá 3. braut vallarins með fyrrgreindum afleiðingum. Par á brautinni er 4 og hún er rúmlega 300 m löng. Brautin sveigir um 45° til vinstri um það bil 160 m frá teig. Vallarmörk rnunu vera nálega 20 m ffá jaðri sleginnar brautar. Teighögg Úlfs misheppnaðist. Fór boltinn aðeins um 50 m og lenti á sjálfri brautinni um 5 m til vinstri við rétta stefnu. Þaðan sló hann sitt annað högg á brautinni og notaði fimm-tré. Kvaðst hann þá hafa miðað á flötina í stefnu meðfram vallarmörkum. Boltinn fór fyrst beint áfrarn, en beygði svo til vin- stri (“húkk”) og haínaði á bílnum. B höfðaði skaðabótamál gegn Úlfi og reisti kröfu sína á því, ao Úlfur ætti sök á óhappinu, þar sem hann, í ljósi þess að teighöggið mistókst og að fólk var sýnilegt á bifreiða- stæðinu, hefði ekki átt að tefla í tví- sýnu með því að slá boltann með- fram vallarmörkum, heldur átt að miða innar á brautina. Úlfur, sem leikið hafði golf í 26 ár og hafði 15 í forgjöf, krafðist sýknu. Hann bar í fyrsta lagi fyrir sig, að það að hann hefði “húkkað” sýndi ekki, að hann hefði gerst sekur um gáleysi. Orsök þess að svo fór væri sú, að kylfan hafi ekki lent alveg beint á boltan- um, en slíkt gæti ekki talist til gá- leysis. Hann hefði farið að eins og venja væri til og^efdr leikreglum. I öðru lagi benti Ulfur á, að við inn- keyrsluna að golfvellinum og bif- reiðastæðinu hefði verið skilti með áletrun, þar sem varað var við, að tarna væri golfvöllur og sagt að teir, sem færu inn á svæðið, gerðu tað á eigin áhættu. Varúðarskiltið skipti máli, ef rétturinn féllist á, að skaðabótaskylda væri fyrir hendi. Biffeiðarstjórinn hefði lagt á stæð- inu, þrátt fyrir þessa aðvörun og hefði þannig vitandi vits tekið á sig áhættu af tjóni, sem kynni að verða. Eins og fram er komið var aðal- deiluefinið í málinu tvennt. Annars vegar, hvort Úlfur ætti sök á tjón- inu með því að slá eins og hann erði og hins vegar, hvort gerðir ifreiðarstjórans ættu að leiða til lækkunar bótafjárhæðar eða jafhvel sýknu. Málið fór fyrir héraðsdóm, þaðan fyrir svonefndan hofrétt og loks fyrir Hæstarétt Svíþjóðar. A öllum dómstigum var Ulfur dæmdur til að greiða kröfu biffeiðareigandans að ftillu, enda þótti R ekki hafa ver- ið meðvaldur að tjónsatvikinu. I Plæstarétti stóðu fjórir dómarar að álitri réttarins, en eirni hæstaréttar- dómari áleit rétt að sýkna Úlf. For- sendur dómsins fara hér á eftir í aðalatriðum. Rökstuðningur Hæstaréttar Svíþjóðar Þegar einhver skaðar við íþrótta- iðkun utanaðkomandi mann eða veldur skemmdum á hlutum eins og í þessu máli, koma við mat á sök hans til athugunar nokkuð önnur sjónarmið en þegar tjónið bitnar á öðrum leikmanni eða áhorfanda. Akveðin atriði, sem leitt geta til sýknu, ef annar leikmaður bíður tjón, skipta venjulega engu máli, þegar utanaðkomandi þriðji maður á í hlut. Hér er fyrst og ffemst átt við, að tjónþoli, sem sjálfur hefur tekið þátt í leiknum, verði álitinn hafa tekið á sig vissa hættu á að bíða tjón. En hér er einnig haft í huga, að þegar meta skal fram- komu eins þátttakanda gagnvart öðrum, getur kappsemin orðið leikmanni til afsökunar, verði hon- um eitthvað á í hita leiksins. Varð- andi ábyrgð íþróttamanns gagnvart utanaðkomandi manni standa al- mennt ekki rök til að víkja frá venjulegu sakarmati. Golf er öðrum þræði hættuleg íþrótt vegna þess að menn eða munir, sem verða fyrir golfkúlu eta skaddast mikið. Leikmanni er að haga leik sínum með tilliti til þess, að í íþróttinni felast vissar hættur. I golfi er ekki óvanalegt, að leik- manni fatist, þegar hann slær, þan- nig að boltinn taki aðra stefiiu en ætlað var. Sú stefna, sem Ulfur valdi, eftir að boltinn hafði fallið nálægt ystu vallarmörkum eftir fyrsta höggið á 3. braut, leiddi til þess að bifreiðastæðið varð innan þess svæðis, sem boltinn gat lent á, ef annað höggið misfærist. Þess vegna hefði Ulfur átt að gera ráð fyrir, að bíllinn á stæðinu gæti skemmst. Hann hefði getað afstýrt tjóni með því að velja aðra skot- stefnu, þó að það hefði getað kost- að hann eitt högg til viðbótar. Samkvæmt framansögðu taldi meiri hluti Hæstaréttar Svíþjóðar, að Úlfur hefði hegðað sér gáleysis- lega. Með vísun til þess og þar sem R þótti ekki hafa verið meðvaldur að tjóninu var dómur hofréttarins staðfestur. Sératkvæði minni hlutans Eins og áður segir var einn hæsta- réttardómari annarrar skoðunar en meiri hlutinn. Sá dómari taldi rétt að sýkna Úlf af skaðabótakröfunni. Segir nú frá helstu atriðum sérat- lcvæðis hans. í þessu máli þarf ekki að fjalla um skyldur, sem hvíla á golfleikara til að koma í veg fyrir slys á fólki. Við 54 ífiifc SJOVALjnALMENNAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Golf á Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.