Golf á Íslandi - 01.11.2001, Side 39
GOLF
Á í S L A N D I
að skoða
svona 150 til 200 bött, sem eru
300 til 400 íslenskar krónur.
Golfbíll fyrir tvo kostar 500 bött
- eða 1000 krónur - sem er 500
krónur á mann. Golf gerist ekki
ódýrara og það er ein aðalástæð-
an fyrir því að Thailand er að
verða eitt mesta golfland í heim-
inum.”
Kjartan segir að^það væru 10 til
12 ár síðan að Islendingar fóru
að fara til Thailands og Pattaya
til að spila golf. „Fyrst var það
lítill en fastur kjarni sem fór
þangað á hverju ári og gera það
enn. Fyrsta skipulagða golfferðin
var aftur á móti farinn þangað
lyrir fimm árum á vegum Sam-
vinnuferða-Landsýnar og frá
upphafi hafa þær notið mikilla
vinsælda.”
Vilja koma aftur
Hann sagði að sl. vetur hafi hann
verið á Thailandi í þrjá mánuði
með 3 hópa eða um 150 manns,
og sér hafi heyrst að þeir ætli allir
að koma aftur til Thailands til að
leika golf. Hann sagði að þrjár
ferðir yrðu í boði til Pattaya í
vetur - þar af ein sem yrði um
páskana í hálfan mánuð en hinar
væru 19 til 26 daga ferðir. Áfram
yrði dvalið á Pattaya, enda úrval-
ið mest þar af völlum og verðlag-
ið best.
Kjartan L. Pálsson í fríðu föruneyti á golffer-
ðaráðstefnuryni í Thaílandi. Á myndinni hér fyrir
neðan bregðili' hann á leik í skreyttum golfbíl.
Fóru úr skónum við flötina
, Þegar Kjartan Pálsson sá fínu flat-
irnar á Springfield Hua Hin í sumar,
rifjaðist upp fyrir honum saga af ferð
' íslenska landsliðssins, sem tók í fyrs-
ta sinn þátt í Evrópumóti í Portúgal
fyrir um þrjátíu árum. “I landsliðinu
voru þá menn sem voru að spila í
fyrsta sinn á golfvelli erlendis -
Björgvin Þorsteinsson GA, Loftur
Olafsson NK og fleiri. Þeir komu til
Penína síðari hluta dags og fengu
ekki að spila því klukkan var orðin of
margt. Þeir gengu út að átjándu flöt-
inni, svona til að skoða hana og sjá
þessar útlendu flatir sem þeir höfðu
svo mikið heyrt talað um. Þeir stóðu
við flötina lengi vel, en þegar þeir
loks lögðu í að stíga inn á hana fóru
þeir úr spariskónum sem þeir voru í.
Þeir höfðu aldrei séð neitt svona
flott - ekki einu sinni teppin heima í
fínu húsunum á Islandi. Þannig voru
flatirnar á Springfield þegar ég kom
á hann . . . en ég fór nú samt ekki úr
skónum,” sagði Kjartan.
í boðsferðinni á dögunum var
Kjartani boðið ásamt ítópnum til
Hua Hin og þangað hefði hann
áhuga á að skreppa í vetur með
golfhópana sína í tveggja til fjög-
urra daga ferð. „Svæðið er fall-
egt, en svolítið dýrara, enda mik-
ið sótt af ríkara fólkinu. Þar eru
sex meiriháttar golfvellir, þar af
einn sem er með þeim allra
fallegustu sem ég hef séð um
dagana - og er ég þó búinn að sjá
þá rnarga,” sagði Kjartan. „Sá
heitir Springfield Hua Hin.
Grasið á brautunum var svo flott
að maður þorði varla að slá í
boltann til að skemma ekki gras-
ið - og þá var ekki að spyrja að
flötunum. Þær voru eins og
nýpússað parkett og hraðinn í
þeim eftir því. Hann var í sérlega
fínu standi því það var stórmót
atvinnumanna á honum rétt áður
og þeir vildu h'ka sýna okkur er-
lendu gestunum fallegan völl.
Starfsfólkið á vellinum - liðlega
200 manns - hafði farið um flat-
irnar í hópum með pinsettur til
að plokka upp strá sem uxu ekki
rétt. Það er algeng vinna á flöt-
um á völlum á Thailandi. Þetta
er til marks um gæðin á golfvöll-
unum í Thaílandi,” segir Kjartan
L. Pálsson, fararstjóri hjá Sam-
vinnuferðum-Landsýn.
Upplagt er að gefa sér tíma til
brúna yfir Kwai.
>v. ^
sjovadidalmennar
39