Golf á Íslandi - 01.11.2001, Blaðsíða 36
OLDUNGAR
G o L F
Á í S L A N D I HELGI DANÍELSSON SKRIFAR
Á PALLI í ANNAÐ SINN
Evrópumót karla 70 ára og
eldri fór fram á Almanera á
Costa del Sol dagana 12.-14.
sept. s.l.
Þetta var annað mótið fyrir
þennan aldurshóp sem haldið er,
en það fyrsta var haldið á Spáni í
fyrra þar sem Island hafnaði í 3.
sæti án forgjafar. Islenska sveitin
náði mjög góðum árangri að
þessu sinni, því hún hafnaði í 6.
sæti án forgjafar og í 3. sæti með
forgjöf. Það er ánægjulegt að
þessi aldurshópur skuli þarna
hafa fengið verðugt verkefni, því
mikil aukning heíur verið á þátt-
töku þeirra í mótum að undan-
förnu og er það vel.
Sveit Islands var að þessu sinni
skipuð þeim Knúti Björnssyni
GK, Janusi Braga Sigurbjörns-
syni GL, Jóhanni Benediktssyni
GS, Birgi Sigurðssyni GK, Karli
Gunnlaugssyni GF og Þorbirni
Kjærbo GS, sem jafnframt var
liðs- og fararstjóri.
Að þessu sinni sendu 9 þjóðir 14
sveitir til keppninnar, sem tókst í
alla staði mjög vel, þar sem golf-
völlur og allur aðbúnaður og
framkvæmd mótsins var með
miklum ágætum.
Urslit mótsins urðu þessi. An
forgjafar: 1. Spánn 659. 2. Frakk-
Evrópukeppni eldri kvenna fór
fram í Padova á Italíu dagana
2.-5. okt. s.I. og tóku íslensku
konumar þátt í keppninni um
Marisa Sgraravatti bikarinn.
Þetta er fimmta árið sem Island
sendir sveit til keppninnar. Sveit
Islands skipuðu að þessu sinni
þær Inga Magnúsdóttir GK,
Ingibjörg Bjarnadóttir GS, Krist-
ín Pálsdóttir GK, Sigríður
Matthíesen GR og Sigrún Ragn-
arsdóttir GK. Lucinda Gríms-
dóttír GK var liðs- og fararstjóri.
Ferðin tókst í alla staði mjög vel.
Arangur sveitarinnar mjög góður
og betri en áður. Það voru 10
þjóðir sem sendu sveitir í þessa
keppni. Fyrstu tvo dagana er
leikinn höggleikur, þar sem allar
konurnar leika, en fjórar telja.
Island varð í 6. sæti eftir högg-
leikinn og lenti því í 2. riðli
ásamt Belgíu, Hollandi og Spáni.
Þriðja daginn er leikinn högg-
leikur og var leikið gegn Belgíu
og sigraði Island 3.5 - 1.5 . Holh
and hafði betur gegn Spáni. A
lokadeginum lék Island því við
Holland og var það æsispennandi
leikur, þar sem Island hafði betur
3-2 og hafnaði því í 5. sæti, sem
er besti árangur sem íslensk sveit
hefúr náð í keppninni. Konurnar
léku mjög vel og hafa unnið sér
land 674, 3. Noregur 678, 4.
Þýskaland 685, 5. Portúgal 691,
6. ísland 701, 7. Sviþjóð 717, 8.
Belgía 724, 9. Austurríki 736.
Með forgjöf: 1. Spánn 571, 2.
Noregur 587, 3. ísland 610, 4.
Frakkland 615,
5. Þýskaland 616, 6-7. Austurríki
og Svíþjóð 633, 8. Belgía 649, 9.
Portúgal 651.
Landsliðið sem keppti á Spáni, Janus, Jóhann, Þorbjörn, Birgir
og Kar. A minni myndinni eru þeir reffilegir í
I 5. sætí á Italíu
veglegan sess í mótinu, eins og
kom fram í máli frú Onnu
Bouton, forseta Evrópusamtaka
eldri kvenna við mótsslitin. Þær
sýndu með aukinni reynslu hvers
þær væru megnugar. I Róm 1999
urðu þær í 10. sæti og í Ósló
2000 urðu þær í 7. sæti, en bæði
árin voru þátttökuþjóðir 12.
Að sögn Lucindu Grímsdóttur
liðs- og fararstjóra var veður frá-
bært keppnisdagana og völlurinn
einstaklega góður og fallegur.
Hún sagði að mótið hefði í alla
staði tekist rnjög vel, aðbúnaður
keppenda eins og best verður á
kosið og að Italir væru öðrum
þjóðum gestrisnari.
Úrslit mótsins urðu þessi:
1. Ítalía. 2. Frajtkland. 3. Sviss. 4.
Þýskaland. 5. Island. 6. Holland.
7. Spánn. 8. Belgía. 9. Portúgal.
10. Austurríki.
Næsta mót verður í Hollandi
árið 2002, síðan í Þýskalandi
2003 áður en það fer fram á Is-
landi árið 2004.
36
SJOVÁÖjFrALMENNAR