Golf á Íslandi - 01.11.2001, Page 66
ÍSLANDSMÓT
í GRAFARHOLTI
Kunnu vel við Ljúfling
Haldinn var golfdagur GSI, Æskulínu
Búnaðarbankans og Latabæjar á æfingavelb
Golfklúbbsins Odds, Ljúflingi, í júlímánuði. Á
fimmta hundrað barna tóku þátt í her-
legheitunum og spreyttu sig á golfþrautum, þáðu
leiðsögn í púttum frá Björgvini Sigurbergssyni
og skemmtu sér með nokkrum íbúum Latabæjar.
Haldnir voru tíu golfdagar vítt og breitt um
landið sl. sumar í samvinnu við Æskulínu
Búnaðarbankans. Komið var við á Akranesi,
Stykkishólmi, Egilsstöðum, Flúðum, Blönduósi,
Akureyri, Borgarnesi, Selfossi og Vík í Mýrdal.
Þessar golfkynningar hafa verið starfræktar tvö
síðastliðin sumur. I ljósi árangursins er næsta víst
að svo verður áfram.
Á fimmta hundrað
barna á Golfdegi GSÍ,
Æskulínunnar og Latabæjar