Golf á Íslandi - 01.06.2017, Blaðsíða 24
Kylfingar velta því oft fyrir sér hvað þeir eigi að borða á meðan þeir leika golf og þá
sérstaklega í keppni. Það er ekki sama hvað maður borðar og það skiptir líka máli
á hvaða holu kylfingurinn er á hringnum.
Hér eru nokkur góð ráð úr ýmsum áttum frá næringarfræðingum.
Áður en hringurinn hefst:
Próteinrík máltíð (egg, kjöt, fiskur), góð fita (silungur, avókadó,
hnetur), einföld en náttúruleg kolvetni (ávextir, grænmeti, baunir,
litlir skammtar af hrísgrjónum eða fjölkorna brauði).
Holur 1 – 6.
Ef kylfingar kjósa að borða á fyrstu sex holunum ætti markmiðið
að vera að halda blóðsykrinum stöðugum og ekki missa orkuna.
Ávextir á borð við epli, perur og appelsínur eru góður kostur ásamt
handfylli af hnetum. Trefjarnar í ávöxtunum og fitan í hnetunum
gerir það að verkum að fæðan fer hægt í gegnum meltingarfærin og
ástandið verður stöðugt.
Holur 7 – 12.
Markmiðið á þessum holum er
að halda orkustiginu jöfnu með
fæðu sem heldur jafnvægi á
orkubúskapnum. Rétt blanda af
próteinum, kolvetnum og fitu.
Heimatilbúnar og þaulhugsaðar
próteinstangir eru góður kostur. Samloka úr grófu korni með
hnetusmjöri, túnfiski eða kjúklingi er einnig góður kostur.
Próteindrykkur með banana getur líka verið fín lausn.
Holur 13 – 18.
Markmiðið á þessum holum er að vera með nægjanlega orku
í líkamanum til þess að ljúka hringnum eins vel og hægt er.
Einbeitingin þarf að vera í lagi þegar spennustigið eykst og höggin
verða erfiðari. Á þessum tímapunkti er mælt með því að borða
þurrkaða ávexti sem eru kolvetnarík fæða og íþróttadrykkur (með
litlum sykri) er einnig góður kostur. Sumir næringarfræðingar mæla
jafnvel með einum svörtum kaffi- eða tebolla til þess að skerpa
aðeins á huganum.
Það er óraunhæft að ætla að margir kylfingar geti borðað eins mikið og lýst er hér fyrir ofan. Aðalatriðið er að halda góðu jafnvægi í inntöku
próteina, kolvetna og fitu. Harðfiskbiti á fyrri hluta hringsins er góð lausn, próteinstykki, ávöxtur eða hnetur ætti að duga á miðhlutanum og
eitthvert smámál sem gefur orku á lokakaflanum er besti kosturinn.
Þess ber að geta að nauðsynlegt er að halda vökvabúskap líkamans í góðu horfi með því að drekka nóg af vatni á meðan leikið er.
Heimild: GolfDigest.
Hvað áttu
að borða
fyrir golf
hring og á
meðan þú
ert að leika?
Nokkur góð ráð:
24 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Hvað áttu að borða fyrir golfhring og á meðan þú ert að leika?