Golf á Íslandi - 01.06.2017, Blaðsíða 38
Búlgaría
Thracian Cliffs í Búlgaríu er golfvöllur sem
á engan sinn líka. Goðsögnin Gary Player
hannaði völlinn og hefur sjálfur haft orð
á því að þetta sé magnaðasti golfvöllur
sem hann hefur hannað. Farþegar Icegolf
Travel hafa tvímælalaust verið á sama máli
og Player. Ósjaldan heyrast ummæli eins
og „vá – eruð þið að grínast með þennan
völl“ og svo verður hann skemmtilegri með
hverjum hring. Úlfar Jónsson afreksstjóri
GKG lagði leið sína til Búlgaríu síðastliðið
vor með hóp kylfinga og var vægast sagt
hrifinn af vellinum.
„Thracian Cliffs er stórkostlegur golfvöllur
þar sem hver braut er listaverk. Hver braut
er áskorun sem reynir á útsjónarsemi og
leikskipulag, en á sama tíma er völlurinn
sanngjarn þannig að kylfingar á öllu getustigi
geta notið þess að leika hann og upplifað
náttúrufegurðina.“
Völlurinn er vissulega krefjandi en teigaval
er fjölbreytt og þar af leiðandi geta allir
kylfingar notið þess að spila sanngjarnan
völl í umhverfi við Svartahafið sem á engan
sinn líka. Farþegum Icegolf Travel gefst
jafnframt kostur á að spila tvo aðra frábæra
velli, Lighthouse og Black Sea Rama. Báðir
vellir eru skemmtilegir og ólíkir strandvellir
í frábæru standi. Í Búlgaríu verður enginn
svikinn af fjölbreyttu golfi, góðum mat,
góðri gistingu og framúrskarandi þjónustu.
Grikkland
Costa Navarino á Grikklandi trónir á
toppi lista um bestu golfsvæði Evrópu.
Golfsvæðið skartar einstaklega fallega
hönnuðu Westin Resort hóteli og óhætt
er að segja að í Grikklandsferðum Icegolf
Travel fái farþegar fyrsta flokks lúxus í
golfvöllum, gistingu og veitingastöðum.
Á svæðinu er tveir framúrskarandi
golfvellir, The Dunes Course og The
Bay Course. The Dunes er hannaður
af Bernhard Langer, fyrrum Ryder Cup
fyrirliða og Masters-meistara. Annar hluti
vallarins liggur meðfram sjónum sem gefur
honum yfirbragð strandvallar og hinn hluti
vallarins endurspeglar grískt landslag með
ólívu- og sítrónuræktun allt í kring.
The Bay Course er hannaður af einum
fremsta golfvallahönnuði Bandaríkjanna
Robert Trent Jones yngri Völlurinn er
styttri en The Dunes en krefst meiri
nákvæmni. Vellirnir hafa hvor sinn sjarma,
eru mjög skemmtilegir viðureignar og
henta öllum kylfingum. Æfingaaðstaðan á
golfsvæðinu er sú flottasta sem sést hefur.
Icegolft Travel býður upp á vikulegar ferðir
til Grikklands og Búlgaríu á haustin og
vorin.
Lengri ferðir á vit
ævintýranna
Fyrir farþega sem geta leyft sér að skreppa
frá í lengri tíma eru margir spennandi kostir
fram undan. Í nóvember er ferðinni heitið
til Suður–Afríku en um er að ræða 20 daga
lúxusferð með golfi, safarí, vínsmökkum,
skoðunarferðum og innanlandsflugi milli
magnaðra staða.
Dúbaí – Ras Al Kaimha hefur slegið í
gegn sem skemmtileg blanda af golfi og
skoðunarferð um borgina, ævintýraferð um
eyðimörkina og þeirri mögnuðu upplifun að
spila golf á flóðlýstum velli.
Jómfrúarferðin til Hua Hin í Taílandi
verður farin í upphafi árs 2018 en þar
er að finna einn besta völl í Asíu, Black
Mountain, ásamt einstakri upplifun af
sannri taílenskri menningu.
Síðast en ekki síst þá býður Icegolf Travel
upp á frábær verð á Reunion-svæðinu á
Flórída sem allir áhugasamir um það svæði
ættu að kynna sér.
Icegolf Travel hlakkar til að kynna ykkur
fyrir enn fleiri áfangastöðum þar sem við
munum alltaf tryggja val á einstökum
golfvöllum, fyrsta flokks gistimöguleikum
og skemmtilegri menningu í mat, drykk og
afþreyingu. www.icegofltravel.is
K Y N N I N G
Spennandi áfangastaðir
og einstakar golfperlur
Á síðustu misserum hafa fjölmargir Íslendingar lagt leið sína til Búlgaríu og
Grikklands til að njóta lífsins og spila golf á óviðjafnanlegum golfvöllum. Icegolf
Travel hefur lagt áherslu á að kynna þessar einstöku golfperlur fyrir Íslendingum en
um er að ræða nýja og spennandi áfangastaði sem sameina lúxus gistingu, einstaka
golfvelli, framúrskarandi þjónustu, fyrsta flokks „spa“, áhugaverða menningu og
síðast en ekki síst, frábæran mat.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
A
ct
av
is
7
1
1
0
8
1
Of mikið sumar?
Flynise – 24 klukkustunda virkni við ofnæmi
NÝTT LYF
VIÐ
OFNÆMI
Flynise inniheldur virka efnið deslóratadín 5 mg sem er andhistamín. Flynise er ofnæmislyf sem veldur ekki syfju. Það vinnur gegn ofnæmis-
viðbrögðunum og einkennum þeirra. Flynise dregur úr einkennum ofnæmisnefkvefs (bólga í nefgöngum vegna ofnæmis, t.d. frjónæmi eða
ofnæmi fyrir rykmaurum) hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri. Flynise er einnig notað gegn einkennum er tengjast ofsakláða
(ofnæmisviðbrögð í húð). Lyfið er til inntöku og á að gleypa töfluna heila. Ráðlagður skammtur er ein tafla á sólarhring með vatni, með eða
án fæðu. Gætið varúðar þegar Flynise er tekið með áfengi. Þú verður að hafa samband við lækni ef einkenni versna eða batna ekki á 7 dögum.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum
um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is
38 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Kynning