Golf á Íslandi - 01.06.2017, Side 92
E-Z-GO golfbílar og Curtis Cab hús fyrirliggjandi á lager.
Einnig fyrirliggjandi á lager Curtis Cab hús á Club Car Presedent.
MHG Verslun - Akralind 4 - 201 Kópavogur - Sími 544 4656 - www.mhg.is
Víti eða vítalaus lausn
Í golfi er ein grundvallarreglan sú að við leikum boltanum eins og hann liggur, þ.e. við sláum boltann af teignum og
hreyfum svo ekki við honum öðruvísi en með höggi þar til boltinn hafnar í holunni.
Frá þessu eru svo auðvitað ýmsar undantekningar. Sú algengasta er að á flötinni megum við lyfta boltanum en eigum þá að leggja hann aftur
á sama stað. Yfirleitt gerum við þetta vegna þess að boltinn truflar pútt hjá meðkeppendum okkar eða vegna þess að við þurfum að hreinsa
boltann.
Stundum megum við svo lyfta boltanum og leika honum af öðrum stað. Þetta er frávik frá grundvallarreglunni um að leika boltanum þar sem
hann liggur og því má ekki gera þetta nema samkvæmt heimild í golfreglunum.
Þegar við lyftum boltanum til að leika honum af öðrum stað er það ýmist vegna þess að eigum rétt á vítalausri lausn eða vegna
þess að við kjósum að taka víti, t.d.:
Vítalaus lausn Víti
Lausn frá óhreyfanlegum hindrunum, s.s. göngustígum. Bolti dæmdur ósláanlegur.
Lausn úr grund í aðgerð, t.d. blámerktum svæðum. Víti tekið úr vatnstorfæru.
Lausn frá aðkomuvatni. Fjarlægðarvíti þegar bolti týnist eða hafnar utan vallar.
Undir þessum kringumstæðum, þ.e. þegar við lyftum boltanum til að leika honum af öðrum stað, eigum við oftast að láta boltann falla. Hvar
við megum láta boltann falla ræðst síðan af því hvaða reglu við erum að fylgja. Mjög algengt er að kylfingar blandi þessum reglum saman og
ruglist í því hvernig eigi að bera sig að.
Á vissan hátt er vítalausa lausnin mjög einföld, því við notum alltaf sömu aðferðina:
Vítalaus lausn Aðferð
Lausn frá óhreyfanlegum hindrunum, s.s. göngustígum. 1. Finnum næsta stað fyrir lausn.
2. Látum boltann falla innan einnar kylfulengdar frá þeim stað, ekki
nær holunni.Lausn úr grund í aðgerð, t.d. blámerktum svæðum.
Lausn frá aðkomuvatni.
Lausn frá rangri flöt.
Ef við þurfum svo að taka víti flækjast málin aðeins því eðli vítisins ræður því hvaða möguleika við höfum:
Víti Aðferð
Bolti dæmdur ósláanlegur
(má gera hvar sem er nema ef boltinn er í vatnstorfæru).
Látum boltann falla á beina línu frá holunni í gegnum staðinn þar sem
boltinn lá
eða
Látum boltann falla innan tveggja kylfulengda frá staðnum þar sem
boltinn lá
Víti tekið úr almennri vatnstorfæru (gulmerktri). Látum boltann falla á beina línu frá holunni í gegnum staðinn þar sem
boltinn fór (síðast) inn í torfæruna
Víti tekið úr hliðarvatnstorfæru (rauðmerktri.) Látum boltann falla á beina línu frá holunni í gegnum staðinn þar sem
boltinn fór (síðast) inn í torfæruna
eða
Látum boltann falla innan tveggja kylfulengda frá staðnum þar sem
boltinn fór (síðast) inn í torfæruna
eða
Látum boltann falla innan tveggja kylfulengda frá stað hinum megin við
torfæruna sem er jafnlangt frá holunni og þar sem boltinn fór (síðast) inn
í torfæruna
Fjarlægðarvíti
(má gera hvar sem er).
Leikum boltanum þaðan sem síðasta högg var slegið.
Ef um upphafshögg var að ræða má tía boltann.
Flestir muna grundvallaratriðin varðandi þessar reglur, svo sem hvaða möguleikar eru í boði ef maður dæmir bolta sinn ósláanlegan. Tvennt
þvælist helst fyrir kylfingum:
1. Að finna „næsta stað fyrir lausn“ þegar fengin er vítalaus lausn. Í stuttu máli er það sá staður sem er styst frá núverandi staðsetningu
boltans og sem er (a) ekki nær holunni, (b) ekki í torfæru, á flöt eða utan vallar og (c) þar sem við erum laus við truflun frá
hindruninni.
2. Mönnum hættir til að ruglast á einni og tveimur kylfulengdum. Reglan er sú að í vítalausum lausnum megum við alltaf láta boltann
falla innan einnar kylfulengdar frá næsta stað fyrir lausn en ef við tökum víti og megum láta boltann falla innan ákveðins svæðis er
alltaf um tvær kylfulengdir að ræða.
Nái kylfingar að læra þessar aðferðir við að koma boltanum aftur í leik eru þeir komnir vel á veg með að tileinka sér golfreglurnar, því flest
okkar þurfa að beita einni eða fleirum þessara aðferða í svo til hverjum einasta hring sem við leikum.
Hörður Geirsson
hordur.geirsson@gmail.com
92 GOLF.IS - Golf á Íslandi
Dómaraspjall