Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Page 4
Meðlimir eldri
stjórna K.S.S.
heiðruðu okkur
með nærveru
sinni ó 20 ára af-
mæli félagsins.
ÞANN 22. janúar voru liðin 20
ár frá stofnun Kristilegra skóla-
samtaka, K.S.S. Þau voru stofn-
uð af nokkrum nemendum úr
Gagnfræðaskólanum í Reykjavík
og var markmið K.S.S. frá upp-
hafi að vinna að útbreiðslu krist-
innar trúar meðal nemenda í
framhaldsskólum. Þeir nemend-
ur, sem stofnuðu K.S.S., voru áð-
ur í félagi svipað eðlis, en það
hét Kristilegt félag Gagnfræða-
skólans í Reykjavík og var inn-
anskóla-félag. Það félag var
Hlaðið veizluborð
á afmælishátíðinni.
lagt niður, og upp úr því stofn-
uð Kristileg skólasamtök.
Fyrra félagið gaf út blað, sem
nefnist Kristilegt skólablað, og
tók K.S.S. við útgáfu þess.
Hugmyndin með stofnun K.S.S.
var sú að gefa nemendum úr
framhaldsskólum tækifæri til að
koma og heyra Guðs orð í félagi
sem þessu. Fljótlega kom líka í
Ijós, að þörf var fyrir félagsskap
þennan. Hefur starfsemi K.S.S.
vaxið jafnt og þétt með árunum,
og einnig hefur meðlimatalan
aukizt svo, að nú telur K.S.S. um
230 félaga.
Kristileg skólasamtök hafa alla
tíð starfað í nánum tengslum
við K.F.U.M. og K.F.U.K., og hef-
ur það átt mikinn þátt í því, hve
starf K.S.S. hefur blómgazt og
vaxið. Hefur stjórn K.F.U.M og
K.F.U.K. ásamt stjórn Kristilegs
stúdentafélags skipað einn full-
trúa í stjórn K.S.S.
Aðalstarfstími K.S.S. er að
vetrinum. Mörg undanfarin ár
hafa verið haldnir vikulegir
fundir á laugardögum kl. 20.30.
Á sumrin eru venjulega biblíu-
lestrar einu sinni í viku auk
ferðalaga. Einnig hafa verið
haldnir fundir í skólum Reykja-
víkur, til þess að kynna starf K.
S.S.
Mikilvægur liður í starfi K.S.S.
eru kristileg skólamót, sem
venjulega eru haldin tvisvar á
ári. Hið fyrra um bænadagana
í kyrruviku í sumarbúðum K.F.U.
M. í Vatnaskógi, og hið síðara á
haustin, áður en skólar hefjast,
og þá venjulega í sumarbúðum
K.F.U.K. í Vindáshlíð. Mjög mik
il aðsókn er að þessum mótum,
og komast oft færri en vilja.
Nú í vetur hefst 21. starfsár
K.S.S., og verða fundir vonandi
haldnir reglulega eins og áður.
Óskandi væri, að sem flestir
skólanemendur ættu eftir að
kynnast K.S.S. Þar fá þeir að
heyra fagnaðarerindið um Jesúm
Krist, sem gaf líf sitt í sölurnar
fyrir mennina, til þess að þeir,
fyrir trúna á hann, geti eignazt
eilíft líf. Markmið Kristilegra
skólasamtaka er að flytja nem-
endum í framhaldsskólum þenn-
an fagnaðarbcðskap, og þau
vinna að því í krafti Guðs.
„Fram vinir, fram til nýrra
dáða.“
S.B.G.
Merki K.S.S.