Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Side 15

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Side 15
SigurZur Pálsson, kennari: ALGENGAR spurningar unglinga, sem eru nýkomnir yfir til trúar, og jafnvel þeirra, sem þegar hafa um skeið leitazt við að ganga veg trúarinnar, byrja á þessa leið: Er synd að . . . ? Þá er gjarnan spurt um reyk- ingar, dansleiki, kvikmyndahús o.fl. Sannleikurinn er sá, að þessum spurningum er tæp- ast hægí að svara einíaldlega með orðunum: Það er synd að......Það er ekki synd að.......Afstaðan til þessara hluta er ákaflega mismunandi bæði meðal ein- staklinga og ýmissa hópa trúaðra, bæði innan lands og utan. Ekki er heldur rétt að láta reka á reiðanum og svara: Eigðu það við sjálían þig. Oftast nær eru þessar spurningar sprottnar upp af þrá eítir því að gera það, sem rétt er. Af þessum sökum heíi ég dregizt á að skrifa nokkrar iínur um þessi atriði o.fl., ef verða mætti einhverjum til leiðbeiningar og hjálpar, þó af vanefnum sé miðlað. I viðleitni minni hefi ég stuðzt við tvær bækur eftir norska höfunda: „Hvordan bör jeg leve?“ eftir Sigurd Oppdal, og „Jeg vet paa hvem jeg tror,“ eftir Carl Fr. Wislöff. Allt, sem ég þó skrifa um þessi atriði, er á eigin ábyrgð. Spurningunni um reykingar og dansleiki ætla ég að gera stutt skil, þar sem ég tel, að hún sé ekki mjög mikið vandamál við okkar aðstæður. Nýjustu rannsóknir, sem mikið hefur verið ritað um, virðast eindregið benda til, svo ekki verður um villzt, að reykingar, einkum sígarettureykingar, auki að veru- legu leyti líkurnar fyrir því, að viðkomandi fái lungna- krabba, auk þess, sem ýmsir kvillar aðrir þrífast vel í skjóli tjöru og nikótíns. Af þessu ætti að vera Ijóst, að ekkert mælir með reykingum, sama hver í hlut á. Þeir, sem vilja taka Guðs orð alvarlega ættu einn- ig að minnast orðanna í I. Kor. 3. 16. og 17.: „Vitið þér eigi, að þér eruð musteri Guðs og að andi Guðs býr í yður? Ef einhver eyðir musteri Guðs, mun Guð eyða honum, því að musteri Guðs er heilagt, og það eruð þér.“ Lítið hefir verið um raddir, sem hafa lýst þeirri skoðun, að trúaðir unglingar ættu ekki að „einangra" sig, heldur taka þátt í skemmtunum annarra unglinga, svo sem dansleikjum, til þess að koma vitnisburðinum á framfæri. Þó hafa þessar raddir stöku sinnum skot- ið upp kollinum. Þetta verður að telja mjög hæpna skoðun, að ekki sé meira sagt. Eg hefi haft tækifæri til, vegna starfs, sem ég hefi unnið, að kynnast nokk- uð skemmtanalífi unglinga hér í höfuðstaðnum, og því andrúmslofti, sem þar ríkir. Eg leyfi mér því að fullyrða og leggja ríka áherzlu á, að þar ríkir enginn grundvöllur fyrir vitnisburði um Jesúm Krist. Ærandi hávaði, talsvcrð ölvun og siðlaust atferli unglinga á mörgum þessara skemmtistaða gera þessar „skemmt- anir“ miklu fremur til þess íallnar að hafa neikvæð og óæskileg áhrif á þá, sem þangað sækja. Ég tel trúaða unglinga því ekki eiga neitt erindi á slíkar skemmtanir, enda miklu betri aðstæður til vitnisburðar í daglegri og óþvingaðri umgengni við jafnaldra í skóla og á vinnustað. Þá komum við að þeim þætti, sem ég hygg að heila- brotum valdi hjá mörgurn, og á ég þar við kvikmynda- húsin. Nú er það staðreynd, að kvikmyndir eru orðnar ákaflega ríkur þáttur í ýmsu félagsstarfi og einnig til fræðslu í skólum. Það má því telja eðlilegt á vissan hátt, að sýningar kvikmyndahúsanna þyki girnilegar Kristilegt skólablað 15

x

Kristilegt skólablað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.