Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Qupperneq 23

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Qupperneq 23
Hr. Graham lætur veðrið ekki hindra sig! Gu3 til hjarta unga piltsins, og hann íann til syndar og óhreinleika gagnvart Gu5i, cn, þegar prédikarinn bau3 samkomugestum að koma frarn og veita Kristi Jesú viðtöku sem frelsara sínum, sat Billy sem fast- ast. En áfram hljómaði röddin í hjarta hans næstu daga á eftir. Hann fór aftur á samkomu, og það kvöld tók líf hans nýja stefnu, hann gaf Guði hjarta sitt. Langt fram eftir þessari nóttu lá Billy vakandi í tunglsljósinu, sem skein inn um gluggann hans, og hugur hans var bundinn hugsuninni um, hvernig það væri að vera trúaður unglingur. Þegar hann sofnaði að lokum, var þessi spurning í huga hans: „Skyldi ég varðveitast í trúnni“? T janúar 1937 lá leið Billys á Biblíuskólann í Flórída. Þrjú atvik, sem komu fyrir á skólanum, urðu til þess öðru fremur að móta líf hans og beina honum inn á þá braut, sem Guð hafði ætlað honum. Hann kynntist þar tveim trúuðum mönnum, sem hann dáð- ist mjög að. En er uppvíst varð, að þeir höfðu al- varlega siðferðislega bresti, var honum mjög brugoið. Hann sá, að maðurinn getur talað guðrækilega og aðstoðað aðra, en sjálfur verið hálfvolgur í trúnni. Billy ákvað að veita aldrei neinu því aðgang að lífi sínu, sem gæti óhreinkað nafn Krists. Hann gerði sér enn fremur grein fyrir því, að tæki hann ekki köllun sína alvarlega, gæti hann átt slíkt á hættu. Þessir misbrestir vina hans urðu til þess, að hann beindi sjónum sínum meira til Guðs en manna. ,,Eg gerði mér grein fyrir því, að allir gátu brugð- izt“. Páll sagði: ,,Alið ekki önn fyrir holdinu“. Þessi orð Páls festust í sál Billys og hafa veitt honurn mikinn stuðning í lífinu. Annað atvikið af þessum þrem, byrjaði, að því er virðist, með mikilli hamingju, þegar hann trúlofaðist skólasystur sinni, Emily R. Gavanaugh, hrífandi stúlku, sem hann var mjög hrifinn af. Þau voru saman öllum stundum, og að því kom, að hann bað hennar. Emily var ekki nægilega viss um tilfinningar sín- ar til hans, til þess að þau gætu byggt hjónaband á þeim. Hún var lengi á báðum áttum, og endalok þessa rnáls urðu þau, að hún sleit trúlofuninni, og giftist hún síðar sameiginlegum kunningja þeirra. Þetta tímabil óvissu varð erfitt fyrir Billy, en bænir hans voru heyrðar, og þessi reynzla varð til þess, að hann hugleiddi enn meir köllun sína og þjónustu fyrir Guðs ríki. Enn fremur var það um þetta leyti, að Biblíuskólinn varð vinsæli aðseturstaður frægra prédikara úr norðri og suðri í sumarleyfum þeirra, og voru þeir viðstaddir kennslustundirnar. Billy kynnt- ist þeim og hlustaði ákafur á frásagnir þeirra af fjöldasamkomum, þar sem þúsundir áheyrenda söfn- uðust saman, til að hlusta á fagnaðarboðskapinn. Sá tími var nú liðinn, -— og ein ósk var sameiginleg þess- um andans mönnum: „Við þörfnumst manns ákveð- innar köllunnar, — til þess að leiða þjóðina á ný til Guðs“. Þungar hugsanir sóttu nú að Billy Graham, og hann hugsaði til framtíðarinnar. Hann átti bágt með að trúa, að hann gæti orðið prédikari, menntun hans var ekki næg, en þó byrjaði hann að hugsa um það kall Drottins, sem hann gat ekki misskilið. Hann gekk um nágrenni skólans, bað upphátt og svaraði þessu kalli með orðum Móse við hinn brennandi runna. „Sjá, þeir munu eigi trúa mér og eigi skipast við orð mín. . . mér er tregt um málfæri og tungutak.“ Um þetta leyti hvatti fulltrúi skólastjóra hann hvað eftir annað og sagði: „Billy, Guð hefur kallað þig til að prédika.“ Á næturgöngum sínum barðist hann við þessar hugsanir og hafði margar afsakanir á tak- teinum. „Hann yrði aldrei annað en miðlungs prédik- ^ *cc an . En þótt svo færi, þá voru allar fórnir lítilfjör- legar í samanburði við þjáningar Krists, von heims- Kristilegt skólablað 23

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.