Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Qupperneq 6

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Qupperneq 6
Lilja Krisíjánsdóttir: Hraðferð um helaar ÞAÐ VAR ekkert undarlegt, þó að ég vær full eftir- væntingar að morgni hins 2. júní s.l. Vökudraumur sá, sem mig hafði oft dreymt, síðan ég var bam og lærði frásagnir Nýja Testamentisins, átti nú að ræt- ast. Oft hafði ég óskað þess, að ég hefði verið í barnahópnum, sem Jesús lagði hendur sínar yfir og blessaði á jarðvistardögum sínum, og enn oftar þráð að sjá það land, sem hann lifði og starfað í, og ganga þær slóðir, sem hann fetaði hér á jörð. Loksins, eftir margra ára vökudraum, stóð ég úti á flugvelli, og ferðinni var heitið til sex landa í suðri og austri, með viðkomu á Bretlandseyjum. A tímum hraðans er fjarlægð milli staða svo að segja horfin úr sögunni. I huga mínum hafði Grikkland ætíð verið óralangt í burtu, og þó gistum við þar næstu nótt eftir margra klukkustunda dvöl. Við vorum 29 talsins, auk fararstjórnas, Guðna Þórðarsonar, sem lögðum af stað í ferðalagið. Ferðin var öll unaðsleg. Þó dró ský fyrir sól í Aþenu, en það var hka eini skugginn allan tímann. Uppi á Akropolis varð ein konan í hópnum fyrir óhappi, svo að við neyddumst til að skilja hana eftir á sjúkra- húsi í Aþenu. Hún var án efa ein þeirra, sem mest hafði hlakkað til að sjá Biblíulöndin. Þó tók hún öllu með ró, bæði vonbrigðum og líkamlegum sárs- auka, eins og allir þeir eiga að gera, sem leggja líf sitt í Guðs hönd. Margt markvert var skoðað í Aþenu. Á mig hafði þó mest áhrif að feta upp einstigið á Aresarhæð og standa þar, sem Páll stóð eitt sinn og hélt hina 6 Kr i s t i legt skólablað frægu ræðu sína. Þegar sr. Frank Halldórsson hafði lesið frásögn þessa atburðar úr 17. kap. Postulasög- unnar og við sungið: „Víst ertu Jesús kóngur klár,“ þá sté hljóð bæn upp frá hjarta mínu, að ég mætti ávallt lifa, hrærast og vera í honum (Post. 17.28.). Sólin skein, er við kvöddum Grikkland og héld- um til Líbanon. Miðjarðarhafið lá eins og spegill langt, langt niðri. Þegar við síðar ókum með fram sjónum, frá Beirut til Byblos, nutum við veourblíð- unnar í ríkum mæli. Skærast fannst mér þó sólin skína í barnaheimilinu ,,Fuglereden,“ sem við heim- sóttum Þar reka danskar konur kristniboð á þann hátt, að þær taka að sér munaðar- og heimilislaus börn, ala þau upp i kristinni trú og ganga þeim í mæðrastað. Er við komum þarna, voru börnin 186 talsins, sem nutu umhyggju þeirra. Það var hrífandi að sjá alla umgengni á staðnum, en fegurst var að sjá sólskinið í svip barnanna, sem annars hefðu enga von né framtíð átt. Þegar hópur þeirra, ásamt for- stöðukonunni, gengu út í kirkjuna og sungu þar söngva um góða hirðinn, þótti mér ég heyra engla- söng, sunginn Guði til dýrðar. Daginn eftir lá leið okkar yfir fjöllin, áleiðis til Sýrlands, fram hjá tjöldum Bedúína. Þar fengum við að sjá, hvernig hjörðin fylgir hirðinum eftir og hlýðir kalli hans. Aftur á móti erum við, íslendingar, vanir að reka fjárhópinn á undan okkur. Þarna skildi ég svo vel orðin í Jóh. 10.: „Þegar hann hefir látið út alla sauði sína, gengur hann á undan þeim, og sauðimir fylgja honum, af því að þeir þekkja raust

x

Kristilegt skólablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.