Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Blaðsíða 22
Orð Guðs er
Billy Graham, k'óllun hans og þjónusla
MESTI vakningaprédikari heimsins í dag, Billy
Frank Graham, fæddist árið 1919 á bóndabæ við
borgina Charlotte í North Carolina í Bandaríkjun-
um. Faðir hans og frændi höfðu reist þar kúabú.
Seldu þeir mjólkina til Charlotte og höfðu af því
atvinnu sína. Billy var öllum stundum við vinnuna
á búgaroinum, og varð því fyrsta skólaganga hans
heldur af skornum skammti, enda langt til skólans.
Eitt aðaláhugamál hans á þessum árum, var „base-
ball“, og þegar hann var 10 ára hlotnaðist honum sú
„hamingja“ að fá að taka í hönd Babe Ruth, mikillar
hetju í þeirri íþrótt, og því þvoði hann sér ekki um
hendurnar í 3 daga á eftir!
Arið 1933 komst móðir Billys, Morrow, til lifandi
kristinnar trúar, en þá var hann 14 ára. Faðir hans
sinnti ekki trú konu sinnar, heldur var með allan
hugann við það fjárhagslega tjón, sem hann hafði
orðið fyrir í kreppunni miklu.
Á þessum árum lærði Billy að aka bíl föður
síns. Kom það stundum fyrir, að hann laumaðist
út, síðla kvölds, og æki úr hlaði í skjóli náttmyrk-
ursins. Þreytti hann þá oft kappakstur við kunningja
sína á þessum næturíerðum eftir auðum vegum fylk-
isins. Eftir eina slíka ökuferð, spurði faðir hans hann,
hvar í veröldinni hann hefði verið, gamli maðurinn
hafði nefnilega litið á kílómetramælinn!
Þegar Billy var 16 ára, voru haldnar kristilegar
samkomur í Charlotte. Á þessum samkomum talaði
Lo!:33c::i!:o::ic! krossfeí-ðar-
inrsar í Los Angeíes, er 134,
234 fylítu leikvanginn.
22 Kristilegt skólablaS