Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Síða 24

Kristilegt skólablað - 01.09.1966, Síða 24
ins, svo var einnig um málsnilldina, Drottinn hafði sagt við Móse: „Far nú, ég skal vera með munni þínum og kenna þér, hvað þu skalt mæla“. Billy hikaði, því að fyrir honum var kallið algjört. Ef hann hlýddi, þá mætti hann héðan í frá ekki hafa neitt annað áhugamál eða starf, en það að flytja boð Guðs, alls staðar, til allra og ávallt. Guð var þegar orðinn ástríða hans. „Eg get með sanni sagt“, skrif- aði hann heim „að ég elska hann, Drottin Jesúm meira með hverjum deginum, sem líður“. Þegar kallinu væri hlýtt, myndi hálfvelgja verða óhugsandi. Nótt eina í marz 1938, er Billy var að ljúka gönguferð um nágrennið, kom hann að dyrum skólans og settist niöur á grasflötina, — baráttunni var lokið. „Ég man eftir því, að ég kraup á kné og sagði: „Ó Guð, ef þú vilt, að ég prédiki, þá vil ég gera það“. Tár streymdu niður kinnar mínar, þegar ég steig þetta mikla skref, að verða sendiboði Jesús Krists.“ Nú hafði Billy öðlazt styrk til að hefjast handa, en hvar átti hann að byrja? Hann gerði tilraunir til að komast að sem prédikari hjá ýmsum söfnuðum, en alls staðar var honum hafnað. Þá lá leið hans út á strætin. Hann fékk með sér tvo eða þrjá nemendur, og prédikuðu þeir á götuhornum. Brátt fór Billy að fá ákveðnar beiðnir frá kristniboðsfélagi í Tampa, um að tala til safnaðarins, en skóhnn var í nágrenni þeirrar borgar, og var hann gerður að aðstoðarpresti við söfnuðinn. Meðal annarra starfa hans þar var að heimsækja fangelsi, og þar ræddi hann við fang- ana um vandamál þeirra. „Eg reyndi að leiðbeina þeim og svara spurningum þeirra, en þó að ég gæti ekki svarað þeim öllum, þá skerptu þessar samræður hugsun mína“. Billy var ekki maður mikillar þekkingar, en hann lærði að prédika, þó að þekking hans \'æri takmörkuð. „Eg átti eina ástríðu, og hún var að vinna sálir fyrir Krist. Ég haföi aldrei fengið þjálfun í að tala frammi fyrir almenningi. Ég varð sjálfur að læra, hvernig bezt væri að tala.“ Dag nokkurn var Billy fenginn til að prédika, ásamt öðrum nemanda sama skóla, í forföllum prests nokkurs í borginni Venice, niður við ströndina. Þeir voru ekki ánægðir með morgunguðsþónustuna og því notuðu þeir síðari hluta dags til þess að biðja fyrir kvöldsamkomunni, á meðan kona prestsins fór um borgina og auglýsti samkomuna. Um kvöldið var kirkjan troðfull, áheyrendur voru um hundrað. Billy fannst ræða sín ekkert óvenju- 24 Kristilegt skólablað Billy Graham (í miðið), meðan hann dvaldist ó Biblíuskól- anum í Flórída. leg. En, þegar hann bauð þeim áheyrendum, sem vildu taka þá ákvörðun að gefast Kristi, að koma fram að altarinu, komu þangað fram 32 ungir menn og konur. Billy varð undrandi, þótt hann hefði undir niðri búizt við þessu. Forstöðumaður sunnudagskólans sagði síð- ar: „Þarna er ungur maður, sem mun verða heims- kunnur“. Á leiðinni heim til skólans var hugur þeirra félaga bundinn sífelldri þakkargjörð til Guðs. „Ponzi“, sagði Billy, „þetta hefur orðið mér mikill lærdómur, það gerist ekki með valdi eða krafti né með hrífandi guðs- þjónustu, það er einungis og algjörlega verk Heilags Anda“. í janúar 1940 lauk Billy Graham námi við Biblíu- skólann í Flórída og hóf nám við Wheaton College nálægt Chicago með mannfræði sem aðalnámsgrein, og varð honum vel ágengt í námi. Hann hafði ákafa löngun til að læra og sökkti sér niður í lest-

x

Kristilegt skólablað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kristilegt skólablað
https://timarit.is/publication/2034

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.