Bautasteinn - 01.05.2005, Qupperneq 12

Bautasteinn - 01.05.2005, Qupperneq 12
Séra Sigfús J. Árnason hefur nýlega látið af störfum eftir að hafa verið sóknarprestur og prófastur að Hofi í Hofsárdal á Vopnafirði. Þar dvaldi hann í tæp 25 ár með konu sinni, Önnu Maríu Pálsdóttur, og tveim yngstu sonum en hefur nú komið sér fyrir í fallegu húsi á rólegum stað í Grafarvoginum í Reykjavík. Séra Sig- fús ræðir hér um sögu staðarins og þær framkvæmdir sem unnar hafa verið við kirkjugarðinn að Hofi, umhverfi hans og kirkjuna sjálfa. „Fyrsti bóndi á Hofi var Steinbjörn kört- ur Refsson, hins rauða. Hann var bróður- sonur Eyvindar vopna sem gaf honum allt landið á milli Hofsár og Vesturlandsár. Hann er talinn landnámsmaður í Vopna- firði en hann kunni mjög lítið með fé að fara og þannig fór að Þorsteinn hvíti hirti Hofslönd af honum upp í skuldir. Það er nú bæði gömul saga og ný samanber af- rek banka og fjármálastofnana nú á tím- um,“ segir Sigfús og kímir. „Af þessum Steinbirni eru Hofverjar komnir og margt má lesa um sögu þeirra í Vápnfirðingasögu. Það er nokkuð ljóst að fyrst mun hafa verið byggð kirkja á Hofi fljótlega eftir kristnitöku. Það má halda því til haga að Hof var síðasti höfuðstaður þjóðveldisins vegna þess að Þorvarður Þórarinsson átti bú að Hofi og réð löndum frá Brekknaheiði til norðurs og til Lóns- heiðar í suðri. Þessi landshluti var sjálf- stæður tveimur árum lengur en aðrir í lok þjóðveldistímans. Hof fellur svo undir kirkjuna í Staðarmálum undir lok þrett- ándu aldar og hefur síðan verið staður - eða lén - beneficium, en þetta latneska orð er samsett af atviksorðinu bene sem þýðir vel og sögninni facere sem þýðir að gera, staðurinn var þannig ætlaður prestinum vel að gera. Hann var sjálfseignastofnun, sem átti að standa undir kostnaði svo sem uppihaldi sóknarprestsins og viðhaldi staðar og kirkju. Prestarnir tóku við öllum gögnum og gæðum staðar og mannvirkja og þeir máttu svo ekki skila því í lakara ástandi en það var þegar þeir tóku við því. Þetta fyrir- komulag skyldi tryggja prestsþjónustuna og að staðakirkjurnar væru guðsþjónustu- gjörðinni samboðnar. Nú heyrir þetta allt í sjálfu sér sögunni til og ég er sennilega síðasti staðarpresturinn á Hofi í hinum klassíska skilningi. Margir merkisprestar hafa setið Hof, í gegnum árin og aldirnar og ef við lítum til 19. aldarinnar þá má nefna séra Guttorm Þorsteinsson, 1805-1848, séra Halldór Jónsson, 1849-1881 og séra Jón Jónsson frá 1881-1898, en þeir voru allir prófastar Norðlinga. Á tuttugustu öldinni sat séra Jakob Ein- arsson prófastur lengst á Hofi, eða frá 1917-1959, þar af þrettán fyrstu árin sem aðstoðarprestur föður síns, séra Einars Jónssonar, sem er skráður í ættir Austfirð- inga, mikið ættfræðirit. Aðrir prestar á tuttugustu öldinni voru séra Oddur Thorarensen sem er nýlátinn, frá 1960-63, séra Rögnvaldur Finnbogason sem lést fyrir nokkrum árum, 1965-68 og Haukur Ágústsson frá 1972-1980. Við Anna María, kona mín, bjuggum svo á Hofi frá hausti 1980 til ársloka 2004. Hof er hinn prýðilegasti staður, jafnt í fornum sem nýjum skilningi, þ.e.a.s. orðs- ins staður. Hofskirkja er hið fegursta guðshús og vel við haldið, og kirkjugarð- urinn þar mikill unaðsreitur. Þrátt fyrir það að staðurinn væri prestslaus þá sinntu sóknarbörnin kirkjunni og garðinum afar vel og það varð til þess að staðurinn drabbaðist aldrei niður þó hann væri í eyði. Magnús Jónsson sem var lengi ráðs- maður á Hofi, í tíð séra Jakobs, ánafnaði staðnum og sókninni það sem hann lét eft- ir sig, vandlega innbundið bóka- og tíma- ritasafn og nokkra fjármuni. Fyrir það fé voru hliðin á kirkjugarðinum og við heimtröð smíðuð og þykja ágæt staðar- prýði“. Eftir 1990 var hafist handa við mikla endurnýjun á Hofskirkju og umhverfi hennar. „Já, stéttin var löguð og svo hellulögð, og að kirkjunni steinlögð hallandi að- koma, fær hjólastólum, að kirkjudyrum. Allt tréverk kirkjunnar, sem var bilað eða fúið, var endurgert, hver lófastór blettur 12 Í aldarfjórðung á Hofi í Vopnafirði Garðhleðslan að Hofi.

x

Bautasteinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.