Skák - 15.03.1981, Síða 3
SKAK II
Útgefandi og ritstjóri:
Jóhann Þórir Jónsson
#
Umsjón með efni:
Helgi Ólafsson
#
Ritnefnd:
Friðrik Ólafsson
Guðmundur Sigurjónsson
Hent Larsen
A. J. Miles
Guðmundur G. Þórarinsson
Birgir Sigurðsson
Jón Pálsson
#
Ut koma 10 tölublöð á ári
32 síður í senn
#
Áskriftarverð 300 kr.
árgangurinn
#
Einstök blöð 35 kr.
#
Gjalddagi er I. janúar
#
Utanáskrift:
SKÁK, pósthólf 1179
Reykjavík
i
#
Prentað í Skákprent,
prentsmiðju tímaritsins Skák
Suðurlandsbraut 12
Símar 31391 - 31975
Ritstjórarabb
Eflaust urðu þeir nokkrir, sem lirukku við er þeir lásu rabbið
um heimtur áskriftargjaldanna. Að minnsta kosti urðu þeir
margir sem vildn ræða málið við mig. Ef ráða átti út frá þeim
viðbrögðum blasti framtíðin við, en ekki vorar á vetrum hér.
Vissulega hækkaði gjaldið talsvert, en sú liækkun hlaut að
koma. Hvorutveggja var að gjaldið hafði dregist aftur úr vegna
linkindar minnar og svo er j>að nú blessuð bólgan. Niðurstaðan
varð óbreytt frá fyrri tíð. Lætur nærri að gömlu „góðu“ 50%
hafi greitt eins og venjulega, aðrir skila sér ef að líkum lætur
fyrir árslok.
Til þess að forðast allan misskilning vil ég taka fram að þeir,
sem greiddu fyrir 15. febrúar fá auðvitað glaðning að venju.
Hinir? Ja, þar sem ég hef orðið var við jrann misskilning að
menn héldu að engin bók yrði á boðstólum nú og því ekki verið
að liraða sér að borga! Þá er ég að hugsa um að gera jxessum
aðilum lokatilboð: Allir sem greiða fyrir 15. maí 1981 fá bók
í jólagjöf.
Ég er nú reyndar viss um að árangurinn verður rýr, en hafi
]jessi misskilningur raunverulega átt sér stað er rétt að gera
bragarbót.
Eins og fram hefur komið á síðustu tölublöðum hefur verið
minnkandi auglýsingamagn í ritinu. Ekki er það af góðu einu.
Erfiðir tímar ráða þar miklu, en jafnframt og miklu fremur
dugnaður T. R. og S. I. við fjáröflun á þessum vettvangi. Vera
má að þessir aðilar geti eitthvað rétt fjárliagsafkomu sína með
þessu uppátæki og er þá vel. Skáklífið í landinu þarf ætíð að
vera sem blómlegast og leggja verður síaukið kapp á sóknina.
í því sambandi má engu eira.
Hvort „Skák“ lifir eða deyr láta stjórnendur jjessara samtaka
sig litlu varða greinilega. Skák er líka einkafyrirtæki, rekið af
manni sem hefur þá hugsjón eina að græða á skákhreyfingunni
segja þeir — ekki ]jó alveg allir.
Ég hef þó haft aðra trú. Haldið að ég væri að gera skákhreyf-
ingunni gagn með þessu erfiði mínu. Og eitt vil ég segja við
þessa vísu feður skáklistar í landinu: „Hafi verið gróði af út-
gáfu Skákar hingað til, þá megið þið eiga hann!! Nú er bara
að leita hann uppi, gjörið jjið svo vel.
Nei, svona í alvöru talað, hvers vegna taka þessir menn bara
ekki við útgáfu Skákar? Það ætti að vera til lausn á því máli
og feginn yrði ég. Staðreyndin er sú, að nægar fjáröflunarleiðir
eru til Jjótt ekki liöggvi allir í sama knérunn.
Jóhann Þórir Jónsson.
SKÁK 65