Skák


Skák - 15.03.1981, Side 13

Skák - 15.03.1981, Side 13
Skák nr. 4984. Hvítt: Svart: A. J. Miles J. Timman Drottningarindversk vörn. I. Rf3 Rf6 2. c4 b6 3. d4 e6 4. Rc3 Bb4 5. Dc2 Bb7 6. a3 Bxc3f 7. Dxc3 d6 8. b4 Rbd7 9. Bb2 Að öllum líkindum er þetta ekki endurbót á skákinni Miles —Andersson, eins og við fáum að sjá. 9. — Re4 10. Dc2 Rdf6 11. h3 Nauðsynlegt til þess að koma í veg fyrir Rg4. Enda þótt ridd- arar svarts séu ekki sérlega vel staðsettir, og að leika f5 kosti tvö tempó, þá er það staðreynd að 11. h3 er alvarleg veiking. Hvítur kemst aklrei í þá að- stöðu að geta ráðist gegn e4 með f2-f3 vegna veikingar g3-reitsins. II. — Rh5 12. e3 f5 13. Be2 O—O 14. 0—0 Rhf6 15. Hadl I)e8 Vegna 11. leiks míns, h3, gat ég ekki teflt eins og gegn And- ersson, svo ég ákvað því að snúa mér beint að miðborðsárás. Hún er afar freistandi, en dærnist þó til að mistakast. 16. d5!? e5 17. c5? bxc5 18. bxc5 Án þessarar fórnar fengi hvít- ur ekkert mótspil. 20. — Rxd5 21. Bc4 Dc6! 22. Dd3 Ef 22. Hcll, þá 22. - Hac8! með gagnleppun. 22. — Rf6 23. Hdl e4 23. - Hab8! var jafnvel enn betra, t. d. 24. Rxe5 dxe5 25. Bxe5 Hbd8! 26. Bxf6 Dxf6 27. Bxd5f Kh8 og vinningur svarts er aðeins tæknilegs eðlis (en þó ekki án erfiðleika). Hvítur er mjög nálægt því að hafa nægi- legt mótspil eins og áður er minnst á, en vantar herslumun- inn. 24. Rd4 exd3 25. Rxc6 Kh8 26. Bxd3(?) 26. Hxd3 var óþægilegra fyrir svartan. 26. - Hfc8 27. Rb4 Rc3 28. Hcl(?) Ra4! Mér hafði gjörsamlega sést yf- ir þennan leik. Eftir uppskipti á hrókum erstaða hvíts vonlaus. 29. Hxc8f Hxc8 30. Bxf6 gxf6 31. Bxf5 Hc3 32. Rc2 Rb2 33. Kfl Rc4 34. a4 Rb2 35. a5 Hc5 36. g4 Hxa5 37. Ke2 Hc5 38. Rb4 a5 39. Ra2 h5(!) 40. Kd2 Rc4f 41. Kd3 Re5f 42. Kd2 Rf3f 43. Kd3 a4 44. Be6 Rg5 45. Bd7 Rxh3 46. gxh5 Rxf2f 47. Kd4 Hxh5 Hvítur gafst upp. Frá Skáksambandi íslands Landskeppni íslendinga og Færeyinga 1981. Næsta sumar verður háð í Færeyjum landskeppni milli Is- lendinga og Færeyinga. Tefldar verða tvær umferðir á 10 borð- um og heíur stjórn Skáksam- bands íslands ákveðið að fela Skáksambandi Austurlands og Skáksambandi Norðurlands að annast val á keppendum Islands að þessu sinni og undirbúa för liðsins til Færeyja. SKÁKSKÓLINN 1981 STARFAR 24—31. MAÍ Kennt verður fyrst og fremst fyrir 11. og III. stig, þ. e. þeir nemendur sem verið hal'a áður, og svo fyrir I. stig ef pláss leyfir. Umsóknir um skólavist þurfa að berast sem fyrst. — Utanáskrift skólans er: Skákskólinn Kirkjubæjar- klaustri c/o Jón Hjartarson 880 'Kirkjubæjarklaustur V-Skaft. ' Námskeiðsgjald er kr. 900. — Innifalið í því er fæði, húsnæði, og kennsla. Nemendur þurfa að hafa með sér sængurföt (svefn- poka), töfl og klukkur, auk venjulegs búnaðar. Dagskrá og reglur skólans verða sendar nemendum um leið og staðfesting á skólavist er send frá skólanum. Einnig verða þá veittar upplýs- ingar um ferðir o. fl. Sækið sem fyrst, aðeins 44 nem- endur komast að. Jón Hjartarson Sími: 99-7040 (heima) og 99-7033 (skólinn). SKÁK 71

x

Skák

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.