Skák - 15.03.1981, Qupperneq 22
óförum hans kemur þó ekki í
Ijós fyrr en síðar.
Nú hótar svartur 30. - Dd3, er
þvingar hvítan út í óhagstætt
endatafl. Eftir að hafa teflt ró-
lega upp á síðkastið finnur Frið-
rik hins vegar góðan leik sem
nægir til þess að slá ryki í augu
heimsmeistarans.
30. Dc3!
30. — Dc7
Enn heldur Karpov öllu sínu
á þurru, en þessi endurtekning
er þó allt annað en sannfærandi.
Hugmynd Friðriks var að svara
30. - Dd3? með 31. Dxe5! Dxhl
32. Dxe7 og svartur er í úlfa-
kreppu, þó hann sé skiptamun
yfir.
A. Mazukevich, skákskýrandi
við sovéska blaðið „64“ telur
svartan hafa örlítið betra enda-
tafl eftir 30. - Bxe4 31. Bxe4
Dd2 32. Dxd2 Hxd2 og Larsen
tekur í sama streng. Eftir 33.
Kgl Bxa3 34. Bxc6 Bb4 35. Kfl
hlýtur þó staðan að teljast stein-
clautt jafntelli, þrátt fyrir mikla
reynslu og góðan árangur heims-
meistarans í að tefla endatöfl
með mislitum biskupum.
31. Hb2!
Þessi hógværi leikur lætur lít-
ið yfir sér og í fljótu bragði virð-
ist Friðrik, sem var kominn í
tímaþröng, einfaldlega vera
að leika meinlausum biðleik
með jiað fyrir augum að fá að
sjá áætlun andstæðingsins. A.
m. k. I)enda viðbrögð Karpovs
til þess að hann liafi skynjað
leikinn þannig.
Hann er þó með ólíkindum
eitraður og hugmyndin sést
fljótt ef við áttum okkur á því
að 31. c5? gengur ekki vegna 31.
- Hd5! og svartur vinnur peð.
Ef hvítum tekst að leika c4-c5
bætir það stöðu hans til mikilla
muna, m, a. vegna þess að þá
hótar hann Hb6.
Nú fellur heimsmeistarinn í
þá gryfju að vera of upptekinn
af eigin áætlunum og vanga-
veltum um það hvernig hann
geti náð öruggum stöðuyfir-
burðum. Þetta kostar hann það
að hann gefur ekki áætlunum
andstæðingsins nægilegan gaum
og áttar sig ekki á því hvernig
þessi litli og hógværi leikur
breytir aðstöðunni. Karpov an-
ar Jjví bein't inn í fyrirætlanir
Friðriks.
31. _ Hdl?
Uppástunga Larsens, 31. - Bx-
e4! 32. Bxe4 f5 33. Bg2 e4 og
svartur stendur örlítið betur, er
enn í fullu gildi. í þeirri stöðu
á hvítur í nokkrum erfiðleikum
með að verjast hótuninni 34. -
Bxh4, jafnvel þó opin kóngs-
staða svarts ætti að gefa honum
nægilegt mótspil.
Þótt Friðrik hafi hér átt að-
eins tvær mínútur eftir á klukk-
unni gefur hann Karpov ekki
fleiri tækifæri til Jjess að stofna
til hagstæðra uppskipta, heldur
OSRAM
hrifsar hann sjálfur til sín frum-
kvæðið.
32. c5!
Þarna er hugmyndin á bak
við 31. Hb2 ljóslifandi komin.
Ef nú 32. - Hd5, þá 33. Rd6!
BxcI6 34. cxd6 (En auðvitað
ekki 34. BxdS Bxd6) Hxd6 35.
Dxe5 (Hótar 36. De8f Kg7 37.
Hb8) Be6 36. h5! og varnarleysi
svarts er hreint og beint ótrú-
legt.
32. — Be6
Larsen telur þennan leik
slæman án ])ess að rökstyðja Jjað
nánar. 32. - Bxe4 33. Bxe4 kem-
ur þó að ákaflega takmörkuðu
gagni núna, ]jvj hótunin 34.
Hb6 er enn mjög öflug og hug-
myndin sem áður var svo góð,
33. - f5?, fellur um sjálfa sig
vegna 34. Db3f.
Niðurstaðan verður ])ví sú að
peð sé fallið fyrir borð hjá svört-
um eftir 32. c5! og Karpov reyn-
ir J^ar af leiðandi að ná gagn-
sókn á kóngsvæng og byrjar á
því að staðsetja þennan biskup
á góðum reit, d5.
33. Hb6 Bd5
Hér er orðið of seint að líta
um öxl. Hvftur hótaði 34. Hxc6
Dxc6 35. Rf6f og svarta drottn-
ingin fellur.
34. Dxa5
Hvítur er orðinn sælu peði
76 SKÁK