Skák - 01.06.1992, Síða 5
SKÁK
Útgefandi og ritstjóri:
Jóhann Þórir Jónsson
Ritnefnd:
Friðrik Ólafsson
Guðmundur Sigurjónsson
Helgi Ólafsson
Jóhann Hjartarson
Jón L. Árnason
Margeir Pétursson
Karl Þorsteins
Jón Pálsson
Guðmundur Arnlaugsson
Guðmundur G. Þórarinsson
Birgir Sigurðsson
Auglýsingar:
J.Þ.J.
Einar H. Guðmundsson
Út koma 10 tölublöð á ári
Áskriftarverð 5000 kr. árg.
Einstök blöð 600 kr.
Gjalddagi er 1. janúar
Utanáskrift:
SKÁK, pósthólf 1179
121 Reykjavík
Skákprent
Dugguvogi 23, símar 31335 (skrifst.),
31391 (tæknideild),
31975 (prentsalur),
354-1-31399 Póstfax.
Efni m.a.:
Skákþing Reykjavíkur 1992
Lesendahornið
Sagnir um nokkra skákmenn
Bréfskákþing íslands
Öndverðan
Af erlendum veltvangi
Af innlendum vettvangi
íslensk skákstig í maí 1992
Frá Skáksambandi íslands
Aðalfundur Skáksambands íslands var haldinn í maí s.l. Verulegar breytingar
urðu á stjórn sambandsins.
Forseti var kjörinn Guðmundur G. Þórarinsson en aðrir í stjórn, Margeir
Pétursson, Andri Áss Grétarsson, Þröstur Þórhallsson, Andri Hrólfsson,
Ríkharður Sveinsson og Haraldur Baldursson. Varamenn voru kjörnir
Ólafur H. Ólafsson, Gunnar Björnsson, Jón Friðjónsson og Guðmundur
Guðjónsson.
Á aðalfundi var samþykkt tillaga um að bréfskákasambandið yrði sjálfstætt
samband.
Úr stjórn gengu margir sem mikið starf hafa unnið fyrir Skáksambandið og
var þeim þakkað mikið starf. Á engan er hallað þó sérstaklega sé nefnt nafn
Þráins Guðmundssonar, sem á áratuga starf að baki og enn sinnir ýmsum
áríðandi verkefnum fyrir skákhreyfinguna.
Stjórn SÍ skipti með sér verkum þannig að varaforseti er Margeir Pétursson,
Þröstur Þórhallsson er ritari en Andri Áss gjaldkeri.
Fyrsta verkefni nýkjörinnar stjórnar var að senda sveit á Ólympíuskákmótið
í Manilla. Fyrri stjórn hafði reyndar undirbúið það mál.
Árangur íslensku skáksveitarinnar var með miklum ágætum. Raunar var
ísland þarna að etja kappi við skákmenningu Austur-Evrópu. I liði Banda-
ríkjanna voru jú þrír fyrrum Sovétmenn.
Sveit efnilegra skákmanna er þessa dagana að keppa í heimsmeistaramóti
barna- og unglinga í Duisborg í Þýskalandi.
Um næstu mánaðarmót er Norðurlandamótið í skák, nánar tiltekið 27.
júlí—7. ágúst og þar strax á eftir Norðurlandamótið í skólaskák.
Mótin fara fram í 0resund í Svíþjóð.
Á Norðurlandamótinu er teflt svæðamót auk fjögurra flokka. Þ.e.
1. Svæðamót þar sem íslendingar senda 4 keppendur og nú lítur út fyrir að
þeir verði allir stórmeistarar.
2. Meistaraflokkur, þeir sem hafa 2000 skákstig og meira.
3. A-flokkur, þeir sem hafa 1700—2000 skákstig.
4. B-flokkur, þeir sem hafa minna en 1700 skákstig.
5. Unglingaflokkur.
Skáksambandið er nú að hefja undirbúning að Islandsmeistaramótinu í
atskák 1993. Undanrásir verða tefldar á ísafirði, Akureyri og í Reykjavík en
úrslitakeppnin fer væntanlega fram jan.—feb. 1993 og úrslitin í sjónvarpi.
íslandsmeistaramótið verður teflt þ.e. landsliðsflokkur, á tímabilinu sept-
ember—október í haust.
Senn hefst undirbúningur Deildakeppninnar.
Ákveðið hefur verið að Norðurlandamótið í skák 1995 verði á íslandi. Á
þingi Skáksambands Norðurlandanna í sumar verður íslendingur kjörinn
forseti Skáksambands Norðurlandanna. Skáksamband íslands hefur ákveðið
að þann titil beri Jón G. Briem hæstaréttarlögmaður en varamaður íslands
verður Ólafur H. Ólafsson.
Ákveðið hefur og verið að Einar S. Einarsson forstjóri VISA verði fulltrúi
íslands hjá Alþjóðaskáksambandinu FIDE.
Telur stjórn SI að vel hafi tekist til með val þessara manna.
Framkvæmdastjóri Skáksambands íslands er Ásdís Bragadóttir og síminn á
skrifstofunni í Faxafeni er 689141.
Skákmenn geta haft samband við skrifstofuna varðandi frekari upplýsingar
cða fréttir. Guðmundur G. Þórarinsson
SKÁK 129