Skák - 01.06.1992, Qupperneq 7
Guðmundi Gíslasyni og Sigurði
Daða og missti þar með af lest-
inni. Tapið gegn Sigurði Daða
var sérlega klaufalegt og var
algjör andstæða þeirrar tafl-
mennsku sem hann síðan sýndi í
alþjóðlegu mótunum í febrúar
og mars. Lárusi tókst að halda
efsta sætinu allt fram í 10. um-
ferð, en þá tapaði hann fyrir
Sigurði Daða og Sævari. Haukur
Angantýsson tefldi af miklum
krafti í mótinu og sýndi oft
gamla takta. Hann var í efsta
sæti ásamt Sigurði Daða og
Sævari fyrir síðustu umferð.
Haukur hafði þá ekki tapað
skák, en gert fjögur jafntefli, við
Sigurð Daða, Sævar, Hannes og
Lárus. í síðustu umferð átti
Haukur slæman dag og tapaði
illa fyrir Guðmundi Gíslasyni.
En hann sýndi að reikna má með
honum aftur bráðlega meðal
allra bestu skákmanna landsins.
Ofanritaður tefldi að eigin dómi
betur en oft áður. Að vísu tapaði
ég illa fyrir Hannesi í byrjun
mótsins en enginn má við snilld-
inni. Góðir sigrar gegn Lárusi og
Björgvini Víglundssyni í loka-
umferð fleyttu mér í efsta sætið.
Sama má segja um Sigurð Daða,
að visu sigldi hann á milli skers
og báru í nokkrum skákum, en
góðir skipstjórar komast klakk-
laust að landi. Guðmundur
Gíslason hreppti 3. sætið og
hefði með farsælli siglingu getað
lent í efsta sæti. Hann fékk ekki
að tefla við ofanritaðan, en það
er einn af annmörkum Monrad-
kerfisins, sem þeir Taflfélags-
menn þráast við að nota, að
efstu menn geta siglt framhjá
hver öðrum. Það er skoðun
margra að það sé ekki virðingu
öflugra skákmóta samboðið að
nota Monrad-kerfið. Monrad-
kerfið er hannað sem hraðmóta-
kerfi og hefur verið margendur-
bætt. Að nota það í sinni ein-
földustu mynd er hlægilegt, sér-
staklega þegar tekið er tillit til
þess að til eru tölvukerfi sem geta
raðað stórum mótum á auga-
bragði. Skákhreyfingin hefur
aðgang að tölvukerfum, svo lík-
lega verður að fara að senda
skákstjórana á tölvunámskeið,
eða hleypa einhverjum af
unglingunum í T.R. í tölvuna.
Guðmundur tefldi að vanda
listavel á köflum en hafði ekki
meðvind sem skyldi. Snorra
Karlssyni tókst með sigri í
þremur síðustu umferðunum að
komast í gott sæti. Það er
ánægjulegt að sjá unglingana
framarlega, þótt helst kjósi ég að
vera fyrir ofan þá. Það var
ánægjulegt að sjá fleiri „gömul“
andlit en venjulega, eitt atriði til
að lokka eldri kynslóðina er að
sjá til þess að alltaf sé til gott
kaffi og ekki á Perluverði.
Einvígi okkar félaganna var
baráttuþrungið og hefðum við
báðir getað tryggt okkur sigur
fyrr, en að lokum kom að því í
bráðabana og í 7. skák að
Sigurður Daði tók af skarið og
lauk Skákþingi Reykjavíkur 1992
með góðum sigri.
Skák nr. 6903
Það er ekki á hverjum degi sem
tefldar eru 100 leikja skákir. Þær
eru þó venjulegast sviptingar-
samar og svo er með þessa.
Athyglisvert miðtafl og endatafl.
Hvítt: Þröstur Árnason
Svart: Sævar Bjarnason
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6
3. Rf3 Bg7 4. g3 O—O
5. Bg2 d6 6. 0—0 Rbd7
7. h3
Þröstur velur óvenjulega upp-
byggingu, betra er 7. Rc3 e5 8. e4.
7. — e5 8. Be3 exd4
9. Rxd4 He8 10. Rc3 c6
Ástæðan fyrir því að það sé
betra að hafa Be3 fyrir framan e-
peðið og eiga skiptamunsfórn
yfirvofandi er mér hulin ráðgáta.
11. Dd2
11. Dc2 er annar möguleiki, en
þá fórnar svartur skiptamun
fljótlega.
11. — Rc5 12. Hadl Rfe4!
13. Rxe4 Rxe4 14. Dd3
14. Dc2 Rxg3!
14. — De7 15. Bf4 Bd7
16. Kh2 Had8 17. b4?!
Vafasöm veiking, en Þröstur var
hræddur við Rc5.
17. — Bc8 18. f3 Rf6
19. e4 Rh5! 20. Bcl
Hvítu mennirnir eru ekki alveg
nógu vel staðsettir, svo ekki þýðir
að bíða átekta!
21. exd5 Dxb4 22. Bf4 c5!
Nú verða svörtu mennirnir mjög
virkir og c4-reiturinn veikur.
23. Db3
Betra var 23. Ba3 Da4 24. Rb5 b6
og svartur stendur betur.
23. — Dxb3 24. Rxb3 b6!
25. Hfel Rf6 26. Rd2 Ba6
SKÁK 131