Skák - 01.06.1992, Side 12
9. a4 g5
Svartur blæs í herlúðrana og nú
verður ekki aftur snúið. Á þessu
augnabliki vissi ég að þetta yrði
siðasta skákin í einvíginu, en hins
vegar hafði ég ekki hugmynd um
hvernig hún færi.
10. c3
10. h4 er líklega betri leikur og
neyðir hann svartan til að taka
ákvörðun um hvort hann eigi að
leika g4, og loka þar með kóngs-
vængnum að mestu leyti, eða
drepa á h4 og taka þar með á sig
ýmsa veikleika á kóngs-
vængnum.
10. — Be6 11. cxd4 exd4!?
Leikurinn fær ! vegna þess að
hann er hvassari en cxd4, opnar
skálínuna h2-b8, heldur c-
línunni hálflokaðri, opnar e5-
reitinn fyrir riddarana og síðast
en ekki síst þá heldur hann sókn-
inni gangandi. Gallinn, og þar af
leiðandi ?, er veiking f4-reitsins.
Hvítur fær nú kost á að leika
annaðhvort peði eða biskup á í'4
þar sem hann stæði mjög vel.
12. Rel
Rangt væri að leika 12. h4, því að
þá kæmi Rxe4 og svartur fær
betri stöðu.
12. — Be7 13. b3 O—O—O
14. Bd2 Hdg8 15. Rc2?!
Hvítur hefur teflt stöðuna alltof
rólega og hefur hann greinilega
vanmetið sóknarkraft svörtu
stöðunnar. Nauðsynlegt var að
leika f4 sem svartur hefði svarað
GÁTUVÍSUR
eftir Sigurkarl Stefánsson
SKÁKPRENT
Dugguvogi 23 — Sími 31975
best með þvi að drepa á c4 með
biskup og síðan á f4 með peði.
Staðan sem upp kæmi er mjög
óljós en þó kannski ívið betri á
hvítt.
15. — h5 16. f4
Besti leikurinn, en kemur aðeins
of seint.
16. — h4!
Svartur skeytir engu um peðið á
g5 því nú skiptir mestu máli að
sprengja varnir hvíts á kóngs-
vængnum.
17. fxg5 Rd7 18. Bf4 Rde5
19. gxh4?
Þessi leikur hyggir á misskilningi
og hefur hvítur eflaust haldið að
hann gæti skotið honum inn
áður en hann dræpi með riddara
á d4. Betra hefði verið að leika
strax 19. Rxd4 og þá gæti komið
19. - Bxc4 20. Rxc6 bxc6 21. dxc4
Bxg5 með óljósri stöðu þar sem
svartur hefur betri sóknarfæri.
19. — Hxh4 20. Bg3
Ekki gekk nú 20. Rxd4 vegna
20. - Hxf4! og svartur vinnur.
20. — Hg4
Þegar hvítur lék 19. gxh4? hefur
hann líklega haldið að í þessari
stöðu gæti hann leikið 21. Bh3 en
sér nú að það gengur ekki vegna
21. - Hxg3t og svartur fær
biskupsparið fyrir hrókinn og
unna stöðu.
21. Rxe5 Rxe5 22. b4
Örvænting. Hvítur getur ekkert
gert á kóngsvængnum nema
beðið eftir að svartur gangi frá
honum. Staðan er nú töpuð á
hvítan og ekkert eftir nema
úrvinnslan fyrir svartan.
22. — Bxg5 23. bxc5 Bh4
24. Rel
Ekki gengur að drepa biskupinn
á h4 því þá kemur 24. - Hxg2t
25. Khl Rf3 26. Bg3 Hxh2t með
óverjandi máti.
24. — Bxg3 25. hxg3 Hxg3
26. Dcl?
Afleikur í tapaðri stöðu, en
hótanir svarts, eins og t.d. Rg4
eða Bh3, eru of margar til að
hægt sé að ráða við þær.
26. — Rxd3
Hvítur gafst upp. Ástæðan er sú
að annaðhvort verður hann mát
eða tapar miklu liði.
Skýringar eftir Sigurð Daða Sigfússon
Hraðskákmót Reykjavíkur 1992
1. Haukur Angantýss. 15
2. Sigurður Sigfússon 14
3. Helgi Á. Grétarss. 13'/2
4. Björn F. Björnsson 13
5.—6. Halldór Einarsson 11
5.—6. Jón V. Gunnarsson 11
(af 18)
TAXI
vmcvnu
136 SKÁK