Skák


Skák - 01.06.1992, Qupperneq 20

Skák - 01.06.1992, Qupperneq 20
að geta náð mjög langt. Á sein- ustu a.m.k. 4 Olympíumótum hefir verðlaunasæti oft verið inn- an seilingar en ótrúleg sein- heppni og skortur á sjálfstrausti á úrslitastundum hefir haldið ís- lensku sveitinni utan verðlauna- palls hingað til. Nú er lag og ég heiti á alla, sem vilja veg íslenskrar skákar sem mestan að styðja við bakið á Olympíuliðinu með ráð og dáð. Það er þó sorgleg staðreynd að þegar þetta er skrifað hefir ekki enn fundist styrktaraðili til að kosta hina dýru ferð til Manilla, en vonandi verða svör þeirra sem leitað hefir verið til jákvæð. Árið 1992 gæti líka fært okkur heimsmeistara í skák. Leggja þarf áherslu á að styrkja ungu Norðurlandameistarana þá Helga Áss Grétarsson, Jón Vict- or Gunnarsson og Braga Þor- finnsson til þátttöku í hinum hefðbundnu heimsmeistaramót- um ungmenna. Framfarir Helga Áss Grétarssonar í skákinni á seinasta ári voru stórstígar og ekkert fráleitt, að 1992 verði hans ár. Hér hefir aðeins verið minnst á tvennt sem breytt gæti doða í fjörkipp á nýbyrjuðu ári, en að sjálfsögðu er framtíðin sem óskrifað blað. Eitt er þó víst, að allir verða að leggjast á eitt og vinna saman að framgangi skák- arinnar á því herrans ári 1992. P.S. Öndverða þessi er skrifuð í upphafi ársins. Ólympíumót og heimsmeistaramót unglinga heyra sögunni þó til er pistillinn birtist. Enn einu sinni munaði hársbreidd að verðlaun næðust á Ólympíumóti og árangur ung- linganna olli vonbrigðum að þessu sinni, þótt Helgi Áss stæði vel fyrir sínu. 1. Lemaire—Thibaut Brússel 1951 2. Driksa—Strautin Lettlcmd 1965 3. Bellin—J.O.Fries Nielsen Kaupmannahöfn 1989 4. S. Jensen—H. Andersson Kaupmannahöfn 1991 5. Zsuzsa Polgar—Armas Saloniki 1988 6. Janovskí—Júferov 1988 144 SKÁK

x

Skák

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.