SÁÁ blaðið - apr. 1984, Side 10

SÁÁ blaðið - apr. 1984, Side 10
10 Sigtryggur Jónsson Framhald af bls. 8 ferli og því meira ómeðvitað, því erfiðara verður það þeim og því meiri vandamál samfara ferlinu fyr- ir þá sjálfa. Vaxandi kynslóðabil Bilið milli kynslóðanna, sem hófst upp úr aldamótunum síðustu, hef- ur síðan sífellt farið vaxandi. Auk- inn hraði og tæknivæðing, stytting vinnutímans og aukin stjórnun frí- tíma, hefur í viðbót við fyrri firr- ingu aukið hana svo, að einstakling- ar innan fjölskyldna sem og milli þeirra hafa sífellt meir fjarlægst hver aðra og erum við hér komin að breytingum í uppeldislegri stöðu einstaklinga. I upphafi gátu foreldrar, ömmur og afar, aðstoðað unglingana er þeir þurftu að takast á við þau sálfræðilegu vandamál, sem ég minntist á áðan. Persónuleg tengsl milli einstaklinganna voru mikil og trúnaður milli kynslóð- anna því nægilega mikill til þess að í flestum tilvikum tókst unglingum að yfirstíga þessa sálrænu erfið- leika. Fyrrnefnd tæknivæðing og hraði hafa hinsvegar gert tengsl einstakl- inga meir og meir yfirborðsleg, ópersónuleg og bundin ákveðnum skyldum og trúnaður því brostið. Samhliða hefur svo stjórnun og mötun á frítíma aukist svo að fæstir kunna lengur að vera sjálfum sér nógir með að hafa ofan af fyrir sér. Eykur þetta enn á fjarlægingu ein- staklinganna og ópersónuleg sam- skipti. Skemmti- og afþreyingar- iðnaðurinn blómstrar á kostnað persónulegra og náinna kynna ein- staklinganna. Þróun þessi hefur átt Iangan að- draganda og tekið áratugi. Lengi vel hélt fjölskyldan velli hvað það varð- ar að viðhalda persónulegum tengslum og trúnaði milli einstakl- inga og kynslóða innan hennar. Síðast liðna áratugi hefur þó orðið mikil breyting þar á. Kjarnafjöl- skyldan hefur einnig byrjað að leys- ast upp og er nú svo komið, að hún er vart annað an neyslueining, þ.e. hópur fólks, sem hefur sameigin- lega neyslu á mat og afþreyingar- efni og notkun á húsaskjóli. Fjöl- skyldumeðlimir eru dreifðir mestan hluta vökutíma síns milli mismun- andi stofnana og vinnustaða. Af- leiðing þessa er síaukið óöryggi fjölskyldumeðlima, farið er að hrikta í stoðum heimilisins, sem lengi vel hefur verið eina örugga stoð og stytta einstaklinganna og veitt öryggi þeirri tilfinningu að til- heyra einhverjum og geta gefið af sér. Foreldrar eru orðnir óöruggir um hvernig ala skuli börn upp, þar sem þeir þekkja ekki lengur þarfir þeirra, langanir og persónulegar til- finningar. Börn og unglingar hafa svo í óöryggi sínu búið sér til sinn eigin heim og sína eigin menningu og þessi heimur er foreldrum fram- andi og lítt skiljanlegur. Brostinn trúnaður Ffin ópersónulegu tengsl milli full- orðinna og unglinga hafa gert það að verkum að brestur er kominn í trúnað þar á milli. Þetta hefur því ýtt unglingunum út í það að sækja persónuleg tengsl til jafnaldra, þeir eiga jú við sömu erfiðleika að etja, og hvatt þá til að mynda sinn eigin menningarheim. Þannig finna unglingarnir að tengsl við jafnaldra eru miklu meira gefandi og tryggari í þeim skilningi að öruggara er að eitthvað komi út úr þeim tengslum, en tengslum við fullorðna. Þörf unglinga fyrir persónuleg og gefandi tengsl til þess að takast á við persónuleg, sálfræðileg vanda- mál er þannig ekki mætt af hinum fullorðnu og því verður heimur og raunveruleiki hinna fullorðnu langt frá því að vera æskilegur eða eftir- sóknarverður fyrir unglinga. Það, sem unglingar finna fyrir, varðandi fullorðinsheiminn, er að hann ein- kennist af baráttu, baráttu fyrir líf- inu. í stað þess að lifa lífinu áhyggjulaust og njóta þess, finna þau, að þau nálgast hraðfluga heim, þar sem lítið er um gleði og ánægju, lítið um persónulega gagn- kvæma væntumþykju og Iítið um ást. Sá heimur einkennist af hörku, svikum, ópersónulegum tengslum og óánægju. Þau fyllast því von- leysi auk andúðar og jafnvel fyrir- litningar. Viðbrögð þeirra verða margskonar, en einkennast einkum af ýmsum mótmælum og andstöðu við fullorðna og reglur þeirra og viðhorf, eða þá flótti frá því að þurfa að takast á við þennan full- HOIUÐBORGIR EVRÓPU lEINNI FERÐ 'etta glæsilega sumartilboð Arnarflugs gefur þér tækifæri til að kynnast tveimur stórkostlegum heimsborgum fyrir ámóta verð og venjulega kostar að heimsækja eina. Þetta eru ekki galdrar. Þú flýgur með Arnarflugi frá Keflavík til Schiphol-flugvallar í Hollandi og þaðan áfram með Air France til Parísar - og sömu leið heim aftur^ Púræðurlengd ferðarinnar sjálfur (hámark 30 dagar) og einnig hvort þú staldrar við í Amsterdam fyrir Parísardvölina eða á eftir. í báðum borgunum er dvalið á góðu hóteli með morgunverði. Verð aðeins 16.175 miðað við gistingu í 2 manna herbergi í viku Flugfélag með ferskan blæ ARNARFLUG Lágmúla 7, sími 84477 *miðað við gengi 23.3. 84. Hvers vegna byrja unglingar að neyta fíkniefna? orðinsraunveruleika. Því nær sem dregur fullorðinsárin, því meiri mótmæli eða flótti, til þess að halda sig sem lengst í burtu frá fullorðins- heiminum og til að sýna fram á að ábyrgð þeirra á honum er engin. Ákjósanlegar aðstœður Hagkerfi það, sem við Vesturlanda- búar búum við hefur svo enn ýtt undir það að unglingar búi sér til sinn eiginn heim, með því að ýta undir að þeir búi sér einnig til sinn eiginn neytendaheim. Unglinga- neyslan er orðin algerlega sér á báti. Sérstök fataneysla, skemmtana- neysla, hljómtækjaneysla og allt sem henni fylgir, húsgagnaneysla og svo mætti lengi telja. Allt þetta hefur þjappað unglingum meir og meir saman og aðstoðað þá við að styðja hver aðra gegn hinum full- orðnu. Þegar svo er komið að heimur og raunveruleiki hinna fullorðnu er ekki lengur eftirsóknarverður fyrir unglinga og þeim hefur verið þjappað saman og þeir finna mest og best tengsl við jafnaldra, auk þess vonleysis, sem ég nefndi áðan, hafa þær aðstæður skapast, sem ákjósanlegastar eru fyrir þá, sem grætt geta á framleiðslu og sölu vímuefna. Eins og ég sagði áðan eru viðbrögð unglinganna ýmist fólgin í mótmælum gegn fullorðnum eða flótta frá þeim raunveruleika, sem þau nálgast óðfluga, en vilja ekki taka þátt í. Jafnframt hefur í gegn- um samheldni hópsins skapast að- stæður fyrir faraldur innan hans t.d. faraldur vímuefna. Það er hins vegar einstaklings- bundið, hver velur vímuefnaleiðina út úr þessum aðstæðum og hver ekki. Hver einstaklingur velur sér sína leið út úr þessum aðstæðum. Flestir velja að gera smáuppreisn og aðlaga sig síðan þessum óæskilega heimi, en margir velja flóttaleiðina fyrir alvöru og festast í henni. Margir úr síðarnefnda hópnum gætu efalaust fyllt fyrrnefnda hóp- inn með aldri og þroska, ef vímu- efni hefðu ekki þau áhrif að vera vanabindandi, ef ekki líkamlega, þá sálrænt, þannig að þau kenna í raun og veru flótta sem undan- komuleið út úr öllum erfiðleikum í stað þess að takast á við þá og yfir- stíga þá. Kenna að flótti sé besta vörnin. Þannig hefst notkun vímuefna hjá unglingum oft vegna flótta frá aðstæðum, sem þeir hvorki hafa vilja, löngun né getu til þess að takast á við. Aðstæðum, sem eru óbærilegar fyrir unglingana, því þeir hafa svo lítið fjarlægst manneskjulegan og einlægan heim barnanna, en eiga nú að fara að takast á við ópersónulegan, harðneskjulegan og svikulan heim hinna fullorðnu. Margir unglingar eru þó enn til- tölulega vel undir það búnir að tak- ast á við þennan harða raunveru- leika og þurfa ekki að flýja hann. Þeir byrja þó oft notkun vímuefna vegna þess að þeir skilja þessar andstæður vel og vilja mótmæla þeim. Gera eitthvað, sem er í and- stöðu við vilja og reglur hins ráð- andi og ómanneskjulega heims hinna fullorðnu. Þeir hefja notkun vímuefna samkvæmt faraldurs- kenningunni. En með faraldri á ég við að hópeflið og aðgangur að vímuefnum gerir það að verkum að þeir nota vímuefni til þessara mót- mæla, frekar en eitthvað annað. Vímuefnin dreifast þannig frá ein- staklingi til einstaklings, gegnum kunningsskap og unglingamenn- ingin auglýsir þau upp. Hér á ég við að poppmúsík unglinganna er upp- full af auglýsingum um unað efn- anna, hassplöntumerki á fatnað og merki til þess að hengja á leður- jakka og svo framvegis. Þetta er kallað faraldur, vegna þess að í raun má líkja þessu við smitandi sjúk- dóm, sem gengur frá manni til manns. Félagslegar breytingar hafa skapað aðstœðurnar Þannig hafa þjóðfélagslegar breyt- ingar s.l. áttatíu ár ýtt undir og skapað þær aðstæður, sem liggja að baki þeim tveim höfuðorsökum sem ég tel að liggi að baki síaukinni neyslu vímuefna í hinum vestræna heimi og við erum að fullu þátt- takendur í. Þessar þjóðfélagslegu breytingar hafa, eins og ég sagði í upphafi haft áhrif á og breytt félagslegri-, sálfræðilegri- og upp- eldisfræðilegri stöðu unglinga auk þess sem þær hafa skapað faraldur vímuefna. Hvort sem við erum að fást við vímuefnavandamál eða eitthvert annað vandamál eins og krabbamein, skiptir höfuðmáli að ráðast gegn orsökinni eða orsökun- um, ef takast á að komast fyrir það. Hvað varðar vímuefnin hefur hingað til fyrst og fremst verið ráð- ist gegn þeirri orsökinni, sem ég kallaði faraldursorsökina, þ.e. hert er eftirlit með innflutningi, aukin lög- og tollgæsla, lyf gerð eftirlits- skyld, farið af stað með fræðslu og fleira í þeim dúr. Allt þetta getur haft áhrif á faraldurinn, þar sem minna framboð á vímuefnum og þekking á áhrifum þeirra getur dregið úr faraldrinum, en hefur engin áhrif á þá orsök, sem ég nefndi að stafaði af þjóðfélagsleg- um breytingum á stöðu unglinga. Það breytir í engu hinum ópersónu- legu tengslum milli fólks, það breyt- ir í engu hinum harðneskjulega og ómanneskjulega raunveruleika, sem við nú búum við, það breytir í engu tengslum unglinga við foreldra og það breytir í engu von- leysinu gagnvart framtíðinni hjá unglingum. Til þess að hafa áhrif á þessa þætti, þarf hugarfarsbreyt- ingu og til þess að ná henni þarf pólitíska stefnubreytingu. Stefnu- breytingu, sem miðar að manneskjulegra umhverfi, mildari og tryggari tengslum milli einstakl- inga, sem gerir þá aftur að mönnum í stað þess að vera tennur í tannhjóli efnahagskerfis. Þetta er því pólitísk spurning um forgangsröð verkefna. Hvaða möguleika gefum við okkur til þess að geta snúið á rétta leið? Hvort veljum við framyfir, að styrkja fjármagnsaukninguna eða aukin mannleg gæði? Þetta eru þær spurningar, sem við verðum að tak- ast á við, annars höfum við enga möguleika á að ráða við vímuefna- vandann. Annað er aðeins pólitísk réttlæting og sýndarmennska á hæsta stigi. Fyrirlestur fluttur á ráðstefnu SÁÁ og Heilsu- verndarstöðvarinnar í Reykjavík í Norræna húsinu 25/2 1984.

x

SÁÁ blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÁÁ blaðið
https://timarit.is/publication/2069

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.