SÁÁ blaðið - apr. 1984, Síða 21

SÁÁ blaðið - apr. 1984, Síða 21
Sveinsína Tryggvadóttir ráðgjafi:_ Áhrif alkóhólisma á fjölskyldur eru óvéfengjanleg Fyrir utanaðkomandi virðist oft svo, að það sé aðeins alkóhólistinn einn, sem sé sjúkur og fái hann rétta meðferð og takist þannig að losna frá drykkjunni eða vímuefnaneysl- unni, því ekki breytir miklu hverrar tegundar vímugjafinn er, þá séu málin leyst og vandamálið þar með úr sögunni. Svo einfalt er málið alls ekki í raun, því áhrif alkóhólisma á fjölskyldur eru óvefengjanleg og á það jafnt við fjölskyldumeðlimi sem einstaklinga og fjölskylduna sem heild. Alkóhólismi er sjúkdómur, sem fer stigvaxandi og þróast oftast á löngum tíma — árum, jafnvel ára- tugum. Fjölskylda, sem býr við slíka þróun, mótar smátt og smátt ákveðin viðbrögð, sem hafa áhrif á sjálfsímynd, sjálfstraust og kjark hvers og eins. í fyrstu er það oft svo, að litið er á einkenni alkóhólisma sem hegð- unarvandamál og brugðist við hon- um sem slíkum. Segjum sem svo, að það sé húsbóndinn á heimilinu, sem á hlut að máli. Eiginkonan fer þá að ræða við hann um hegðun hans og að sér sé farið að líða illa innan um fólk þess vegna, en hún heldur á- fram að taka skýringar hans gildar. Aðrir fjölskyldumeðlimir fara jafn- vel að vera uppteknir af réttlæting- um hans. Þar kemur, að eiginkonan fer að álíta að hún eigi einhverja sök á óhóflegri drykkju hans eða geri óþarflega mikið úr henni. Afneitun þeirra verður vonlaus tilraun til að viðhalda jafnvægi fjölskyldunnar og sjálfsímynd hvers og eins. Eftir því sem drykkjan verður meiri orsakar hún fleiri breytingar á hegðun fjölskyldunnar og hún fer að draga sig meira og meira i hlé. Aukin skammartilfinning veldur því, að kjarkinn vantar til þess að leita utanaðkomandi aðstoðar. Þau verja drykkjumanninn og finna upp ótal afsakanir fyrir hann gagn- vart vinum og vinnuveitanda. Á sama tíma er fjölskyldan að reyna að taka málin í sínar eigin hendur með ýmsum tilraunum til að hafa stjórn á ástandinu. Þar eru notaðar hótanir, krafist loforða, vínið er fal- ið eða því er hellt niður og það er reynt að gera samninga. Drykkjan verður smátt og smátt miðpunktur alira innri tengsla fjöl- skyldunnar, spenna og kvíði vaxa hröðum skrefum. Viðbrögð fjöl- skyldumeðlimanna verða þrungin spennu, og þeir verða sjálfum sér ósamkvæmir. Sjálfsálit eiginkon- unnar fer þverrandi, sem aftur hef- ur mikil áhrif í samskiptum hennar við börnin. Fjölskyldan fer að búa við stöðugan kvíða og hver og einn finnur knýjandi þörf til að finna Iausn á vanda sínum. Nöldur og hótanir halda áfram, en enginn virðist vita hvernig á að taka raun- hæft á málunum, og umræður eru í lágmarki. Börnin lenda í eins kon- ar sjálfheldu, þar sem þeim finnst að þau þurfi að taka afstöðu með öðru hvoru foreldranna, þeirra tveggja mannvera sem þeim þykir vænst um af öllum. Makinn bregst á stundum við minnkandi ástúð með því að forðast kynlíf eða taka þátt í því með andúð og fær í stað- inn ásakanir um að vera kynköld eða ótrú. Fjölskyldan verður oft fyrir líkamlegu ofbeldi, meðfram hinum djúpa andlega sársauka, sem leiðir af munnlegum árásum og óvirðingu. Á þessu stigi ríkir mikið óöryggi innan fjölskyldunnar, eiginkonan tekur til við að stjórna meira og meira í örvæntingarfullri tilraun til að halda uppi góðri mynd af fjöl- skyldunni út í frá. Hún neyðist líka til að taka á sig skyldur, sem áður höfðu verið eiginmannsins, á með- an hann heldur áfram að vera ó- meðvitaður um hegðun sína. Aðra stundina reynir hann að kaupa sér ástúð, en hina heldur hann mikinn reiðilestur og skammar fjölskyld- una. Hugmyndin um skilnað fer æ oftar að koma upp í hug eiginkon- unnar, þar sem hún er farin að ör- vænta um að fjölskyldulífið geti nokkurn tíma komist í eðlilegt horf aftur. Óttinn við hið óþekkta, við- brögð barnanna og skammartil- finningin veldur því, að tilfinninga- lega verður henni oftast um megn að taka nokkra endanlega ákvörð- un. Þar sem það er megin markmið alkóhólistans að gera neyslu sína mögulega, þá beinir hann athygl- inni að öðrum vandamálum; hjóna- bandinu, persónuleika makans, börnunum, vinnunni, yfirmanni sínum, vinunum, umhverfinu o.s. frv. Oftast má finna eitthvað, sem betur mætti fara, hjá öllum fjöl- skyldum, vinum og í hvaða vinnu og umhverfi sem er. Þess vegna eru venjulega einhver rök fyrir að- finnslum hans, sem fjölskyldan get- ur tekið gild. Geri hún það ekki á einu sviði, þá finnur hann sér ann- að, þar til hann fær fjölskylduna á sitt band. Segja má, að þetta sé að- ferð alkóhólistans við að afneita sínum vanda og beina athyglinni að einhverju öðru. Svo lengi sem fjöl- skyldan tekur þátt í þessari afneit- un, þá heldur sjúkdómurinn áfram að þróast og vandinn vex. Hér hefur verið stiklað á stóru í tilraun til að skoða hvernig fjöl- skyldan verður tilfinningalega flækt inn i hegðunarmunstur alkó- hólistans, hvað það í raun þýðir, að alkóhólismi sé fjölskyldusjúkdóm- ur. Gildir þá einu hvort alkóhólist- inn er eiginmaðurinn eins og hér er, eða hvort það er eiginkonan, faðir- inn, móðirin eða unglingurinn á heimilinu, sem drekkur eða notar vímugjafa á annan hátt. Viðbrögð fjölskyldunnar virðast ótrúlega Iík, hver sem í hlut á. í fyrstu afneitar fjölskyldan eða gerir lítið úr þeirri staðreynd, að vandi sé á ferðum. Hún sér það ef til vill, en hræðist hann nógu mikið til oa. að neita að horfast í augu við það, sem er að gerast. Þegar afneitun bregst er farið að reyna heimatilbú- in ráð, til að leysa vandann eða halda honum í skefjum. Menn verða sárir og reiðir, bæði alkóhól- istanum og sjálfum sér, hótunum er sjaldan fylgt eftir og samningar duga ekki. Fjölskyldan fer að fjar- Iægjast vini og kunningja og ein- angruninni fylgir vaxandi reiði og þunglyndi. Ýmis Iíkamleg ein- kenni, svo sem magabólgur, höfuð- verkur og vöðvabólga fara að gera vart við sig. Vonleysi eykst og það er spurt; „Hvernig gat þetta farið svona?“ eða „Af hverju lét ég þetta viðgangast svona lengi?“ Til að komast út úr þessum víta- hring þarf fjölskyldan á aðstoð að halda í einhverri mynd, ekki ein- hvern til að leysa hlutina fyrir sig, heldur til að læra hvað hún þarf að gera, til að geta leyst þá, sjálf. Fari alkóhólistihn og leiti sér aðstoðar þá er stórt skref stigið, sem leysir þó ekki allt. Til þess að fjölskyldan geti tekið raunhæft á sínum hluta sjúkdómsins, þarf hún að læra að þekkja hann og geta séð hvaða á- hrif hann hefur haft á hvern ein- stakling fyrir sig. En hvert er hægt að leita? Hér á landi starfar Al-Anon, al- þjóðleg samtök fólks, sem á ein- hvern nákominn, sem drekkur eða hefur drukkið urn of. Þar lærir fólk af reynslu annarra og miðlar sinni eigin. Áfengisvarnardeild Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkurborgar rekur fjölskyldudeild í samvinnu við SÁÁ og þar eru haldin nám- skeið fyrir fjölskyldur, svo og veitt einkaráðgjöf.Vistheimilið að Vífils- stöðum er einnig með fræðslu fyrir aðstandendur þeirra, sem eru eða hafa verið þar í meðferð. Fjölskyldan getur lært að takast á við þann vanda, sem að henni snýr, óháð því hvort alkóhólistinn drekkur/neytir ennþá eða ekki. Sér- hver sem hefur áhyggjur af drykkju eða annarri vímuefnaneyslu ein- hvers af sínum nánustu ætti að leita sér fræðslu um alkóhólisma og allt, sem af honum leiðir, til þess að eiga síður á hættu að lokast inni í víta- hring afneitunar og ráðaleysis. IMIIMIIIIIIIIIIIMMIIMIIIIIIIIMMIIIIMII1111111111111IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII Gleðilegt sumar og ánœgjulega páskahátíð! Látið blómin tala 12717—23317 ^ Hafnarstræti 3, sím

x

SÁÁ blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÁÁ blaðið
https://timarit.is/publication/2069

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.