SÁÁ blaðið - apr 1984, Qupperneq 25

SÁÁ blaðið - apr 1984, Qupperneq 25
Undir teppinu 25 Framhald af bls. 23 auðvitað vel... það er... það er morg- unn. Það er nýr dagur. Það er morg- unn... auðvitað líður mér... Systa: (grípur frammí — hátt) Mamma, hvernig líður þér? Lóa: Elsku... Klukkuna vantar tíu mínútur... í... elsku... ha? Systa: Ég ætla að skrifa þér bréf. Lóa: (Hlær taugaspennt) Bréf? Úr skólanum? Sko, Systa mín, þú ert á erfiðum aldri... Systa: Þú líka. Lóa: Ha?? Bless elskan. Systa: Ég geri það. Ég skrifa þér bréf. Lóa: Já, jæja elskan, <þær faðmast snöggt) Bless elskan. (Systa fer). Lóa: (Hún gengur að stól ömmunn- ar og krýpur hjá henni. Lóa talar nú við ömmuna). Heyrirðu til mín, mamma? Ég ætla að halda veislu. Þeir koma Siggi, Jói og Haukur. Góðu, gömlu leiðtogarnir, — það verður næstum eins og að hafa pabba hjá sér aftur. Við syngjum góðu, gömlu söngv- ana og verðum sterkari en nokkru sinni fyrr, (syngur) Unga fólk undir framsóknarmerki/ hér á framtíðin örugga von/ eruð þið ekki boðin og búin/... (lágt, í trúnaðartón)... mamma, þú veist allt um mig, er það ekki? Þú heyrir alveg er það ekki? — þú veist að ég er að slitna í sundur... Mamma, — ef þú heyrir, viltu þá Ioka öðru auganu, — mamma, lokaðu öðru auganu (sú gamla kiprar, aðeins annað augað, en lokar því ekki), mamma, af hverju læturðu svona, — af hverju siturðu bara þarna — læknirinn gefur svo loðin svör um þig — ertu kannski bara að kvelja mig með því að láta svona... — ég þori alveg út — ég þori alveg að klára námið... — ég er ung mamma, — ég er nógu sterk, lokaðu auganu... — heyrirðu það, annars... (æst) þú skalt ekki halda að ég hafi þig hér alltaf mamma... ég verð hræddari og hræddari við að fara út og klára mig... þú veist það bölvaður kúgar- inn þinn... — (rólegri, sár); fyrir- gefðu mamma, — þú veist að ég vil hafa þig og þú veist að ég þjáist, (hún fær sér úr flöskunni) auðvitað heyrirðu ekkert, — en þú sérð mig og þú veist... þú sérð mig, mamma... (síminn hringir. Lóa fer í símann). Já. Lóa: Didda mín. Heyrðu, bíddu aðeins... Didda: (Hlær), Já þarf mamma nú að pissa... það er nú vaninn, ef ég hringi. Verst hún skuli vera alveg heyrnarlaus, blessuð gamla konan — heyrðu, ég kem með eina sterka, er það ekki... heldurðu að kallarnir komi? (Sú gamla sveiflar nú hand- leggnum). Lóa: Didda mín, bíddu aðeins... Didda: (Syngur...) púðursykur og króna/ ef að mér er mikið mál/ þá míg ég bara í skóna.../ (Sú gamla urrar nú og sveiflar handleggnum hratt) Lóa: Ég verð enga stund. (Fer úr símanum. Hálfdröslar eða ber þá gömlu fram. Er góða stund. Heyrist í þeim á klósettinu. ((í þessu verki er þó ekki klósett inni á sviðinu:::)) Meðan þær eru frammi heyrist í Diddu í símanum, hún syngur há- stöfum.) Didda: Piss-piss og pelamál/ púð- ursykur og króna/ ef að mér er mikið mál/ þá míg ég bara í skóna. Og nú sveifla ég handleggnum, því nú hringir Didda. Hin óttalega Didda, sem reynir að eyðileggja Lóu litlu mína fyrir mér — Didda, sem leyfir sér að vera listamaður og búa til hræðilegar höggmyndir útúr hræðilegum veruleika, sem hún hefur búið til í hræðilegu heilabúi sínu... Didda, sem lætur manninn sinn strauja skyrturnar... Didda, sem var svo vond og vildi ekki vera eins og ég vildi að hún væri... — Didda, sem kunni ekki að vera KONA og gerir hitt þegar henni sjálfri sýnist. (Lóa er komin inn með þá gömlu, — hún hendir símtólinu á, hjálpar þeirri gömlu í stólinn, — sú gamla titrar af reiði, en horfir þakklát á Lóu. Síminn hringir, þær horfa báðar á símann, — Lóa tekur tólið upp og hendir því aftur á... — þetta endurtekur sig etv. einu sinni. Lóa tekur upp símtólið og hringir. Hún hringir á vinnustað eiginmannsins). Tilvalin tœkifoeris- gjöf Soda Stream tækið er tilvalin gjöf við öll tækifæri. Gerið sjálf gosdrykkina og sparið meira en helming. Sól hf. Þverholti 19, sími 91-26300 SMMPUR-SMMPUR-OG AFTUR SMMPUR egar orðið svampurernefntkem- ur nafnið Pétur Snæland hf. strax í hugann. í 30 ár höfum við framleitt svamp fyrir íslendinga til alls konar nota. Svamp í dýnur, svamp í stofu- sófa, svamp í sjónvarpssófa, svamp í svefnsófa, svamp í barnastóla, kurl- aðan svamp í púða, svamp í allt. Þú nefnir það - við framleiðum svamp í það. n við gerum meira en að fram- leiða svamp. Við gefum fólki ráð og hugmyndir um notagildi svampsins. Við saumum líka utan um svamp. Skerum eftir máli. Límum saman sé þess óskað. Síðumúla 34, sími 84161 ■ Vesturgötu 71, sími 24060

x

SÁÁ blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÁÁ blaðið
https://timarit.is/publication/2069

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.