SÁÁ blaðið - apr. 1984, Síða 32

SÁÁ blaðið - apr. 1984, Síða 32
32 A . SÁA'blaðið . Sjá viðtal við Arnmund Backman lögfrœðing síðu 26 Hœstiréttur: Ekki veikindagreiðslur vegna meðferðar við áfengissýki „Enda þótt drykkjusýki (alchoholismus chronicus) kunni að teljast sjúkdómur ískilningi lœknisfrœði, hafa fjarvistir frá vinnu vegna áfengisneyslu eða drykkju- hneigðar lengst af verið virtar að lögum á annan veg en fjarvistir vegna veikinda eða slysa.“ Svo segir í dómsorði nýgengins dóms í Hœstarétti, þar sem áfrýjandi málsins krafðist veikindagreiðslna vegna meðferðar við drykkjusýki á meðferðarstofnun. Eins og dómsorð bera með sér hafnaði meiri hluti Hœstaréttar kröfu mannsins og var niðurstaða hans sú sama og undirréttar. Málið er þannig vaxið að í hlut á hafði lengi hjá sama atvinnurek- trésmiður á Akranesi, sem starfað anda. Hann hafði stundað vinnu sína vel og ekki komið til skamm- tímaforfalla hans vegna drykkju- skapar. Hins vegar seig jafnt og þétt á ógæfuhliðina varðandi áfengis- neyslu hans. Hann varði brátt öllum frítíma sínum í áfengisneyslu, en stóð sig hins vegar vel í starfi og ekki kom til forfalla hans þar allt til þess tíma, að hann ákvað að ráði nákomins ættingja að leita sér lækninga. Á þeim tíma þ.e. rétt áð- ur en hann fór í meðferð var áfeng- isneysla hans farin að bitna mjög á fjölskyldunni og hann gerði það fyrir orð náins skyldmennis að fara í læknisrannsókn og síðan leita að- stoðar við drykkjusýkinni. Eftir læknisrannsókn kom í ljós, að maðurinn var haldinn drykkju- sýki, alkóhólismus chrónicus. Hon- um var ráðlagt að fara þegar í stað í meðferð. Hann er fimm til sex vik- ur í meðferðinni og kemur heill heim að því loknu. Fjöldi vottorða liggur fyrir frá þessum tírna um að maðurinn hafi verið haldinn drykkjusýki. Jafn- framt að hann hafi af þeim sökum verið óvinnufær um tíma. Þegar hann kemur heim úr með- ferðinni framvísar hann þessum Hægt er aö fá nær allar innréttingar í sama „Stíl“ eldhús - bað - skápa í anddyri og svefnherbergi - skilveggi - hurðir og meira að segja stiga . Hvað viltu meira? Þessar innréttingar eru svo vandaðar og sérstæöar að margir eru ekki lengi að ákveða sig, ef þeir á annað borð, eru að kaupa innréttingar. Þú verður að gera þér ferð í Borgartún 27 til að sjá þessar glæsilequ innréttingar, sem hannaðar eru af Birni Einarssyni, íslenskum innanhussarkitekt. vottorðum og krefst greiðsiu veik- indadaga. Hann hafði fengið greidda Sjúkradagpeninga, en nú krefst hann greiðslu veikindadaga skv. kjarasamningi og þeim lögum, sem í gildi eru um veikindadaga. Atvinnurekandinn vísar þessum kröfum þegar í stað á bug. Hann neitar að borga veikindafrí á þeim forsendum, að maðurinn hafi ekki fært á það sönnun, að hann hafi verið í lögmætu veikindafríi á um- ræddu tímabili. Það ber að taka fram í þessu sam- bandi, að á þessum tíma, voru í vinnuréttarsamhengi skammtíma forföll vegna áfengisneyslu ekki viðurkennd. En á það ber jafnframt að leggja áherslu, að umræddur starfsmaður gerði sig aldrei sekan um slík forföll í vinnu þ.e. að vera fjarverandi vegna drykkju um skamman tíma. Hann þurfti ekki á fjarvistun. að halda fyrr en hann var orðinn mjög veikur og fékk þá læknisaðstoð til að losna við sjúk- dóminn. Málið var tekið fyrir i undirrétti á Akranesi, þar sem ítarleg greinar- gerð var lögð fram um sjúkdóminn alkóhólismus chronicus, drykkju- sýki. Samband Byggingamanna, sem stóð að málinu fyrir hönd sækjanda, taldi það þess eðlis, að látið skyldi á það reyna fyrir dóm- stólum, hvort drykkjusýki væri við- urkennd sem hver annar sjúkdómur með þeirri greiðslukvöð sem fylgdi því varðandi veikindadaga og önn- ur réttindi. Málið tapaðist í undirrétti, þar sem vísað var til kjarasamnings, sem stefnandi byggði mál sitt á,og laga frá 1958 um rétt fólks sett í tíð gömlu almannatryggingalaganna, sem greiða ekki vegna áfengissýki — gömlu iaganna um veikindarétt, þar sem alkóhólismi er ekki almennt viðurkenndur sem sjúk- dómur. Deiiuefnið var því m.a. það, hvort drykkjusýki væri viður- kenndur sjúkdómur á við aðra sam- kvæmt viðurkenndum læknis- fræðilegum rökum og greiðslu- skylda hvíldi á aðilum vinnu- markaðarins skv. því. Sækjendur málsins töldu, að með því að dóm- stóllinn vísaði til eldri löggjafar í þessu efni þ.e. laganna frá ' 58 væri jafnframt verið að kveða upp dóm um, að t.d. nýir sjúkdómar, eða sjúkdómar sem fram kæmu eftir að lögin voru sett 1958, yrðu ekki við- urkenndir til veikindaréttar. Þess ber að geta að milli þess sem dómur gekk í undirrétti og Hæstarétti voru samþykkt ný lög varðandi veikinda- daga 1979. í Hæstarétti varð málsniðurstað- an sú sama. Sækjandi lagði fram fjölda gagna í málinu m.a. frá Al- þýðusamböndum á Norðurlönd- um, almannatryggingum á Norður- löndum og læknum, en í aðalatrið- um má segja, að alkóhólismi sé viðurkenndur sem sjúkdómur í þessum löndum og greiðsluskyldur til veikindadaga samkvæmt því. Þess ber þó að geta, að almanna- tryggingarkerfin þar standa undir megin þunga bótanna. Sækjandi málsins lagði á það áherslu, að hugtakið sjúkdómur væri læknisfræðilegt hugtak, sem engir aðrir en læknar gætu úr- skurðað um þ.e., að það hljóti fyrst og síðast að vera háð mati læknis- fræðinnar, hvað beri að meta sem sjúkdóm og hvað ekki á hverjum tíma. Bent var á breytt viðhorf innan læknisfræðinnar í þessu efni, þar sem alkóhólismus chronicus væri nú almennt viðurkenndur sem sjúkdómur. Alþjóðaheilbrigðis- Framh. á síðu 26

x

SÁÁ blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÁÁ blaðið
https://timarit.is/publication/2069

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.