Viljinn - 27.01.1969, Qupperneq 8
en það er einmitt það kvöldið, sem ekki er sjónvarpað á. A s. 1. vori var V. I.
gefið sjónvarpstæki, sem átti að vera staðsett í hátíðasalnum, en þar sem sjón-
varpið þótti of fínt fyrir okkur, varð að láta smíða sórstakan kassa utan um það
og er hann exm í smxðum, þó að þetta starfsár skólans sé nú hálfnað. Væri það
vissulega til að auka aðsóknina í skólann á kvöldin, ef sjónvarpinu væri nú komið
á sinn stað sem fyrst. Það mundi og gefa meiri möguleika til að dreifa félags-
starfseminni á fleiri kvöld í stað þess að einskorða það allt við eitt kvöld f viku.
Þá ætti klúbbastarfsemin og að njóta góðs af, en hún hefur oft verið látin sitja á
hakanum fyrir öðru á fimmtudagskvöldum.
Skólablaðið okkar, Viljinn, er oft mjög smekklegt varðandi uppsetningu og útlit,
en þó er ekki annað hægt að segja en að það beri keim af litlu efni á mörgum síðum
og þarfnast það skjótrar úrlausnar.
Verzlingar:
Ef allir leggjast á eitt til að auka hróður skóla okkar, vitið þið, að við erum að
byggja eina sterka heild, heild, sem aðrir gætu tekið til fyrirmyndar. Verrnn
þvf samtaka!
Gunnar H. Hálfdánarson.
8