Viljinn - 27.01.1969, Síða 41
Það kemur í verkahring féhirðis að gæta og sjá um fjármál
og bókhald N. F.V.I. Hann skal ákveða f samráði við
forseta, hvernig fjármagnið er fengið og hvernig veitt. Við
úthlutun boðskorta N. F.V.I. kemur einnig til hans kasta,
lögum samkvæmt.
Nú skal aðeins litið á helztu tekju- og gjaldaliði N.F.V.I.
Þegar hugur er látin reika um fjármál Nemendafélagsins,
verða efst I huga félagsgjöldin. Félagsgjöldin eru mestu
tekjur félagsins, sem eðlilegt er, því þær bera uppi félags-
lífið peningalega. Þar sem II. , IV. og VI. bekkur hafa
beztu tekjulindirnar, tdd. happdrætti, og skólabúðina, er
lftið eftir handa litlum heildum, sem fjárþurfi eru.
Það er þvf erfitt verk að skipta fjármagninu, svo að öllum
lfki. Viljinn er sá armur, sem mest fjármagns þarfnast.
tJr þvf má þó bæta, t. d. með aukningu auglýsinga, en við
það ykist fjármagnið til annarra hiuta, mörgum til geðþekk-
ingar.
Málfundafélagið hefur löngum verið nægjusamt, hvað peninga-
hliðina snertir og sér árshátið þess þvf fyrir rekstrarfé.
Er þvf ekki undan því að kvarta, enda ætlað til að efla
andlegan sjóð nemenda Verzlunarskóla Islands.
Tekjur af Verzlunarskólablaðinu hafa löngum verið hverfandi
litlar. Þar hafa þó mikið batnað við hið nýja áskriftarfyrir-
41