Víðsjá - Dec 1946, Page 4
Þessu tímariti er ætlað að flytja úrvalsgreinar úr erlend-
urn blöðum, tímaritum og bókum, ýmist styttar eða í heilu
lagi, og verður hélzt viðað að því efni, sem verða má almenn-
ingi til fróðleiks og skemmtunar. Einnig er í ráði að hafa
a. m. k. tvo greinaflokka frumsamda. Annan um innlendar
framkvæmdir eða tækni álmennt, og bendir grein dr. Sigurð-
ar Þórarinssonar nokkuð til þess, hvert stefnt muni verða
i þessu efni. Hinn þátturinn heitir Islendingar erlendis, en
ferðaþættir og ferðasögur hafa löngum verið vinsælt lestrar-
efni hér á landi. Ef til víll verður síðar meir tekið upp í ritið
ýmislegt annað efni innlent og munu óskir lesenda ráða þar
nokkru. Yfirleitt verður kappkostað að hafa ritið sem fjöl-
breyttast að efni, og állt verður gert sem unnt er, til þess aö
það komi reglúlega út á tveggja mánaða fresti.
Útgefendur.
VÍÐSJÁ Jcemur út 6 sinnum á ári, livert hefti kostar kr. 7.50. Fæst hjá
öllum bóksölum. Einnig tekiö á móti áskrifendum, og fá þeir ritiö burö-
argjaldsfrítt gegn fyrirframgreiðslu árgjaldsins.
Ritstjóri og ábm.: Eiríkur Baldvinsson, sími 5089. Pósthólf
Afgreiöslu og innheimtu annast: Stefán Stefánsson, c/o Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar. Sími 3135. Pósthólf 856.
H.f. Leiftur prentaöi