Víðsjá - dec 1946, Page 12
10
NORÐURLÖND
barða og Grænlands. Þessi hluti
Atlantshafs hefur líka verið
kallaður Skandik. Frá víkinga-
öld hefur hann verið norrænt á-
hrifasvæði, og löndin umhverfis
hann teljast einnig stjórnmála-
lega til Norðurlanda. ísland
skipar að sjálfsögðu sæti sem
fimmta sjálfstæða ríkið í nor-
rænu ríkjafjölskyldunni.
Hin jarðfræði- og landfræði-
lega þróun, sem Norðurlönd
hafa verið undirorpin, hefur
gert Noreg og grannhéruð þess
í Svíþjóð að háfjallalandi, en
önnur héruð Svíþjóðar og Finn-
land allt lágfjalla- og hæðalönd,
Danmörk að sléttulandi, ísland
ríki hinna miklu hraunbreiðna
á hálendinu, og Færeyjar eyja-
klasa, þar sem hver ein rís þver-
hnýpt úr hafi.
Sé litið yfir Suður- og Mið-
Svíþjóð eða samsvarandi hluta
Finnlands, virðist manni sjón-
deildarhringurinn nokkurn veg-
in lárétt lína. Allar hinar ótelj-
andi smærri og stærri hæðir og
ásar eru hér um bil jafnar að
hæð yfir sjávarmál, minjar frá
ómunatíð. Þetta skapar ró og
jafnvægi í landslagið, sem er al-
ger andstæða við fjölbreytnina
í einstökum atriðum. Þarna er
kynnstur af óreglulega löguðum
kvosum og dalverpum, sem
bugðast milli berghnjúka og
ása, sem eru fjölbreytilegir að
lögun, stundum með mjúkum
boglínum, stundum brattir og
gneipir. Á stöku stað rennur
láglendið saman í meiri háttar
sléttur og fjöllin verða hærri
og lengri. í Norrland í Svíþjóð
og í austur- og norðurhéruðum
Finnlands eru fjöllin stærri og
landslagið fær svipmót af sæ
í undiröldu. Alls staðar blikar
á vötn, stundum stór og breið,
stundum aðeins sund milli ó-
tölulegra eyja eins og í Finn-
landi, „landi hinna þúsund
vatna“.
Noregur er fjallalandið mikla
með bröttum tindum og snösum
í sjó fram, eins og t. d. í Norð-
ur-Noregi og umfram allt við
Lófót. Innar í landinu blasa við
fjallavíddirnar í hátignarlegri
ró. Hinir miklu firðir skerast
svo langt inn í landið, að mestu
hafskip heims geta lagzt við
akkeri undir rótum Jötunheims-
fjallanna og undir Hardanger-
vidda, en árnar steypa sér of-
an snarbrattar hlíðar niður í
þrönga dali eða jafnvel ofan í
firðina sjálfa. í Austur-Noregi
og Þrændalögum er rýmra um,
og þar eru sáðsléttur og engi
milli skógivaxinna ása, og sama
landslag er Svíþjóðar megin
landamæranna. Andstæður hafs
og f jalla, litlu byggðarlaganna í
dölunum og háfjallaheiðanna á
næstu grösum, ljá Noregi
VÍÐSJÁ