Víðsjá - des. 1946, Page 18

Víðsjá - des. 1946, Page 18
16 NORÐURLÖND þjóð og Finnlandi, í Noregi skýla fjöllin þeim og þar sem þær eru flestar við ströndina eiga þær náin tengsli við hafið. Það er aðeins á stöku stað í Suður-Svíþjóð og Danmörk að þær mynda mikils háttar heild- ir, en þar skilja vötn á milli. Þetta skýrir að miklu leyti sér- kenni norrænu þjóðanna, hið sameiginlega í sögu þeirra, svip- mót í hugsunarhætti og sömu hugsjónir, en jafnframt þau skýrt mótuðu séreinkenni, sem hver þeirra um sig hefur til að bera. Þessi lönd í norðvestur horni Evrópu, þar sem ísland er útvörðurinn í vestri, munu einnig vegna þeirra staðhátta, sem tengja þau, halda fram sameiginlegum hagsmunum sín- um. Þessi met hafa verið sett: að lifa án svefns í 115 klukku- stundir — að lifa án vatns í 22 daga — að lifa án matar í 75 daga — dvelja undir yfirborði vatns í 6 mín. 29 sek. — halda niðri í sér andanum í 20 mín. 5 sek. — þola hita 120° C. — þola kulda -r- 75° C. — standast hávaða 130 decibels — fara án súrefnis í 8 km. 595 m. hæð — fara með súrefni í 22 km. 555 m. hæð — kafa 1521/a m- — hlaupa (á 59 dögum) 9000 km. — ganga á höndunum 25,6 km. á dag í 55 daga — ganga á stultum 49,6 km. á dag í 58 daga — húka á stöng í 10 daga 14 klst. 34 mín. — falla í fallhlíf 9 km. 388 m. — vera f jölskyldumaður með 44 börn — lifa, þó hjartað hætti að slá, í 20 mín. Decibel er sú eining, sem hljóð- ið er mælt í, t. d. er veikt hvísl mælt 10 decibels tifið í vasaúri 20 — samtal, hljóðlát götuumferð 50 — hávaði mótorhjóls 80 — hávaði bílflautu 90 — hávaði flugvélamót- ors 120 — V I Ð S -J A

x

Víðsjá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðsjá
https://timarit.is/publication/2073

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.