Freyja - 01.10.1903, Síða 13

Freyja - 01.10.1903, Síða 13
VI. 3' FREYJA 53 Þstta var I fyrsta skitti að fundum þeirra Helenar og Ed. Gr. bar saman frá því er þau skildu í skóginum forðum. Hvað sem tilíinn- ingum Helenar kann að hafa liðið, sáu engir af þeim sem þar voru við síaddir henrii bregða. Öðru máli var að gegna með Edward Granger. Hann þoidi ekki augnaráð konunnar sem hann hafði svikið og ■ hann iangaði til að taka í hönd þessa ókunna sonar síns og leggja yflr ha'nn föðurlega biessnn. Þegar frú Granger sá Helenu, reigði hún sig drembilega og kvaðst heldur vilja bíða í gestastofunni en neyta matar síns í slíkum félags- skap, og var hún í þann veginn að fara, þegar Helen vék sér að syni sínum og sagði: „Þarna sér þú fðður þinn, sonur minn.“ Karl sótroðnaði er hann heyrði orð frú Grangers, maður hennar hniklaði brýrnar, en Helen lét sem húii heyrði ekki. En er frúin heyrði hana segja syni sínum frá faðerni hans, varð hún hamslaus, og grenjaði í bræði sinní: ,,Svo þú kannast þá við það, afhrakið þitt!“ En í sömu andránni Attaði hún sig þó og sagði £ engu kvenníegri róm: „En það er lýgi, eintóm haugalýgi. Eg veit að þú lýgur!“ Húsfreyja leit spyrjandi frá einum gesti sínum til annars, og er enginn þeirra gaf henni frekari upplýsingar, sagði hún: „Þetta. kalia ég fallega að verið, í húsum heiðarlegrar konu.“ „En hvers vegna hýsið þér fólk af þessari tegund, ef þér eruð sjálfar heiðarleg konaf1" sagði frú Granger, og benti á Helenu, þegar hún loksins fékk málið aftur. „Ogég heldþér þurfið ekki að bíta af manni höfuðið eða hvernig get ég vitað hver er heiðarlegur eða ekki. IIún kom iueð póstinum og stanzaði hér eins og aðrir.“ „Þér vitið þó núna hver hún er. Sjáið þér strákinn, sem kallar hana móður sína—hana, sem aldrei hefir verið nokkurs manns eigin- kona, og skammast sín þó ekki.“ „Burt með þig, burt með þig!“ hrópaði húsfreyja, og baðaði hönd- unum á móti Helenu eins og brjáluð manneskja, þar til maður hennar, sem heyrt hafði ganraganginn, læddist eins og hálf hræddur hænuungi að dyrunum og gægðist inn, „Earðu út, Job, það er gagn að þú hefir haft heiðarlega konu til að líta eftir þér, annars væri einhver flennan komin tneð þig í hundana,“ sagði húsfreyja í allt annað en ástúölegum róm. Að þvíbúnu hélt hún áfram að ýta undir Heienu til að fara, á jafn kurteislegan hátt og hún byrjaði það. „Það er sjálfsagt að ég fari,“ sagði Helen stillilega. „Þegar ég er svo óheppin að lenda í vondum selskap, hefl ég mig æfinlega á brott þaðan eins íijótt og ég mögulega get.“

x

Freyja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.