Kennarablaðið - 01.02.1900, Qupperneq 2

Kennarablaðið - 01.02.1900, Qupperneq 2
66 mikilli, að þau beri hennar menjar alla sína æfi. og ef til vill missi algerlega vitið. Óttinn fyrir því, að skift yrði um börnin hefir sjálfsagt fyr á öldum kent mæðrum og barnfóstrum að gæta allrar varúðar í þessu efni. Á vorum tímum ætti þekk- ingin að koma í stað óttans. Hvervetna um hinn mentaða heim hafa menn nú komið upp sérstökum stofnunum fyrir þessi olnbogabörn náttúrunnar. Mönnum er það fyllikga ljóst, að heimilin eru eigi fær um að veita þeim þá umönnun, sem þau við þurfa. Auk þess er skapferli þeirra oft svo varið, að heimilin standa uppi ráðalaus með þau. Tilhneigingarnar til að gera hið illa koma oft fram hjá þeim með nærri óskiljanlegu afli, því að þau skortir skyn- semina til að halda þeim í taumi. Vandasamt og erfitt starf er það því að umgangast þessa vesælinga og uppala þá, vanda- samara en svo, að öllum sé trúandi til að leysa það af hendi. Til þess að geta það, þarf sem sé bæði alveg sérstaka hæflleg- leika og sérstaka þekkingu. En sé hvorttveggja þetta fyrir hendi, raá ótrúlega miklu til vegar koma, einKum í þá áttina að bæla niður hinar illu fýsnir þeirra og kenna þeim einhverja þá iðn, er þeim má að gagni koma í lífinu, svo að þeir verði eigi öðrum til byrði. Hvað gerir þjóðfélagið íslenzka fyrir slík börn? Ekkert. Eigi þau ekki efnaða aðstandendur, sem staðið geti straum af þeim, þá liggur ekki annað fyrir þeim en hreppurinn þeirra. Þar verða þau oft að flækjast milli misjafnra heimila, því fáir eru fúsir á að hafa þess konar ómaga lengur en þeir eru neyddir til. Pau eiga 'ekkert sérstakt heimili, Jæra aldrei að vinna neina sérstaka vinnu, fá aldrei tækifæri til að aðhyflast neinn sérstakan mann, og því síður að neinn leggi þá rækt við þau að beina huga þeirra upp á við. Fermd eru þau að vísu. þegar þau eru 18 ára gömul, en oft án þess að þau hafl neina hugmynd utn nokkurt trúaratriði, enda geta þau naumast fengið hugmynd um neitt æðra en hið sýnilega jarðneska, nema þau fyrst hafl lært að elska einhvern mann. Eiskan og traustið til mannanna er það, sem betur en nokkuð annað getur haft

x

Kennarablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.