Kennarablaðið - 01.02.1900, Page 3

Kennarablaðið - 01.02.1900, Page 3
67 betrandi áhrif á hjörtu beirra og gert þau móttækileg fyrir æðri áhrifum. Og hegar svo börn þessi eldast og koraast til fullorðins- áranna, þá eru þau orðin svo vön við að flækjast milli manna, að þau una því bezt, og láta sér þá ekki nægja að flakka um einn hrepp, heldur ef til vill nærri um land alt, og enda að síðustu æfina einhversstaðar úti á gaddinum. Hann er raunaiegur, æfiferill þessara manna, — ekki svo mjög fyrir þá sjálfa, því að þeir þekkja ekkert betra —, en hann er raunalegur, þegar hann er skoðaður í Ijósi heilbrigðrar skynsemi, sem uppiýsir oss um, hve miklu meira möguiegt væri að gera fyrir aumingja þessa. Og átakanlega raunalegt er það, að hugsa um þetta, þegar jafnframt er tekið tillit tii þess, að vér lifum í þjóðfélagi, sem krefst þess, að það sé viðurkent sem mentað og krislilegt þjóðfélag. ^risíindómsfrœðslan. FtBIELESTUB, ELUTTUB Á ABALUUJSroi HINS ÍSLENZKA KeNNABAPÉLAGS 3. júlí 1899. (Niðurl.) Hverja kosti heíir svo þessi aðferð fram yfir utanbókar- lærdóminn? Flún kostar minni tíma og minna erfiði af barns- ins háifu; hún er skemtilegri bæði fyrir barnið og kennarann; barnið skilur betur það, sem það lærir, og það verður þá líka fastara hjá því, gleymist síður. En hún útheimtir miklu meiri undirbúning og umhugsun af kennarans hálfu, og þar sem hún er nú svo sem óþekt hér á landi, mætti auðvitað búast við, að allmiklu yrði ábótavant fyrst í stað, ef hana ætti að innleiða. fó trúi ég vart öðru, en að menn, sem annars eru góðir og liprir kennarar, inundu brátt geta lært að nota hana. Sem sagt, ég sé ekki, að neitt sé í húfi, þótt utanbókarlærdómnum í kveri að nokkru leyti sé slept í skól- unum, og þegar fram í sækti, mundi það verða til þess, að kristindómsfræðslan yrði bæði margfalt skemtilegri og undir

x

Kennarablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.