Kennarablaðið - 01.02.1900, Side 14

Kennarablaðið - 01.02.1900, Side 14
78 samvinnu og' samtök milli íslenzkra kennara og hlynna að hagsmunum kennarastéttarinnar í öllum greinum, andlegum og líkamlegum." Tilgangurinn er fagur; eigi verður annað sagt. Eigi er hitt heldur neitt vafamál, að frumkvöðlum félags- ins hafi verið það áhugamál, að fólagið næði þessum tilgangi sínum. Já, vór þorum að fullyrða, að þeim er það áhugamál enn þann dag í dag. En eins og félagið nú er skipað, er þess varla von, að því geti miðað mikið áfram að þessu tak- marki. , Fólagsinenn sitja, sem sagt, flestir hér í Reykjavík, og ei nærri öllum nauðaókunnugt um hagi og menningarástand al- þýðunriar út um landið. Þeir þekkja ekki erfiðleikana, sem á hún við að stríða, og geta því ekki fundið upp hin heppi- iegustu ráð tii að rýma þeim úr vegi, hversu mikinn og góðan vilja sem þeír hafa á því. Félaginu er því, nú sem stendur, nálega ómögulegt að starfa neitt að því ,.að efla mentun hinnar íslenzku þjóðar." Hitt atriðið, „að auka samvinnu og samtök milli íslenzkra kennara og hlynna að hagsmunum kennarastéttarinnar," getur varla verið umtalsmál, meðan félagið bæði er svo fáliðað, sem það er, og auk þess nærfelt eingöngu skipað kennurum við æðri skólana og háttsettum embættismönnum. Ekki svo að skilja, að vér ömumst við þessum mönnum í fólaginu. Það er síður en svo. Oneitanlega er það mjög mikill styrkur fyrir hvert félag að geta talið slíka menn meðal meðlima sinna. En þegar þeir eru orðnir hér um bil einir eftir í hinu íslenzka kennarafélagi, þá finst oss, satt að segja, nafn félagsins fara að verða dálítið óheppilegt. Barnakennarar! Athugið tilgang Kennarfélagsins, og munuð þér sjá, að það eruð þér, og þér einir, sem getið reist það við og vakið það til starfa. Það er með öllu ómögulegt, að það geti nokkurn tíma unnið neitt, sem teljandi sé, fyiir máiefni það, er það hefir sett 'á „program" sitt, nema þér hjálpið því til þess. Og þér getið eigi hjálpað því, nema þér

x

Kennarablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kennarablaðið
https://timarit.is/publication/37

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.