Kennarablaðið - 01.05.1900, Síða 13
125
að það sé rétt. Það er siðferðisleg skylda hans að vara þau
við voðanum, sem fyrir þeim liggur, sé annars nokkur voði
á ferðum.
Standi kennarinn þar á móti í þeirri meiningu, að hóf-
drykkjan sé skaðlaus, þá getur hann vei látið hana liggja
milli hluta. Hann getur aldrei fundið sig siðferðislega knúðan
til að innræta neinum þá skoðun. Það er að minsta kosti
skaðlaust, þótt hann geri það ekki.
^acfdir úr ýmsum ófíum.
Yér leyfum oss að setja hér eftirfylgjandi kafla úr bréfi
frá kennara einum á Austurlandi:
„Trúhneigðu mennirnir eru smátt og smátt að hveifa úr
sögunni. Einn eftir annan tinast þeir burt eða eru í brottbúningi.
Að eins einstöku gamalmenni eru nú orðin eftir, sem hægt er
að segja að séu trúhneigð. Þeir, sem fást við þann starfa að
segja börnum til, sjá og flnna þetta glöggast. Má svo segja,
að aðallega veiti mjög torvelt að fá þau til að hafa guðs orð
um hönd með þeini lotningn, sem því ber. Aðalstefnan er nú
orðin þessi. Hér er mikið og örðugt verksvið fyrir starfsþrek
Kennarafélagsins. Alt of fáar hendur vinna því miður í félag-
inu, enn sem komið 'er. Að fá sem flesta trúa. og holla starfs-
rnenn, er að ætlan minni fyrsta sporið áfram.
fað væri betur, að ég væði reyk í þessari skoðun; en
því miður verður sanufæring mín að vera þessi, sem nú hefl
ég sagt. “ ___________
ýípurningar oq, avör.
1. Eru umgangskennarar skyldir til að kenna nemendum
eldri en 15 ára án sérstaks endurgjalds?
Svar: Engin skylda hvílir á þeim í þessu efni. Þegar
landsjóðsstyrknum er úthlutað, er ekkert tillit tekið til ungl-
inga, sem komnir eru yfir fermingu.