Plógur - 21.02.1900, Side 8
i6
í máldögum Wilchins biskups eru
ýmsar sannanir fyrir því, að akur-
yrkja hafi hér verið á 14. öld. Þar
segir á einum stað uni kirkju í Gaul-
verjabæ: »Kirkjan á akurlendiundir
Sældingskornsá og þara eftir vild«.
Þeir Gaulverjar (skipshötn) eiga naust,
fjós og korngarð að gjöra o. s. frv.«.
Um kirkjunaíTeigsegirsvo: »Marju-
kirkjan t Teig á sáld og korn«-------
Um Breiðabólstað fyrir austan seg-
ir: »Þanguð skal gjalda vætt mjöls
úr Hofi, og vætt mjöls úr Þykkvabæ«.
Um Vatnsfj.kirkja segir: »Kirkj-
an á sáðland á Reykjanesi, sem vill
og þaranytjar. — Um Gufudalskirkju:
»Kirkjan á Akurgerði undir hrauni á
Skálanesi«.
Um Miklaholtskirkju : »Kirkjan á
naustuppgjörð í Skógarnesi og Ak-
urland. (Frh.).
Nýtt meðal við þeim algenga
sjúkdómi á kúm. að hildirnar ekki
nást á réttum tima eftir burðinn, hef-
ur franskur dýralæknir Roux í Gren-
able fundið upp. Efnasamsetning
þess er erui þá ókunn. Þýskur dýra-
læknir, að nafni Sttinmeyi segisthafa
um nokkur undanfarin ár reynt þetta
meðal, og hafi sér gefist það vel í
hverju tilfelli, og aldrei haft eins gott
meðal við nefridum sjúkdómi. Ýmsir
rnerkir, franskirog þýzkir dýralæknar
hafa og lokið lofsorði á þetta meðal.
Meðalið heitir: „Poudre uterine de
Roux“ og fylgja þvi notkunnarreglur.
(„Nord. Mejeritdn.").
Að kemda or bursta kýr er
daglega alsiða í öðrurn löndum. Flér
á landi mun fáum þykja fyrir því haf-
andi. En það er öldungis víst, að
slík hirðusemi við kýr borgar fyrir-
höfnina, eins og sérhvað það, er miðar
til þess, að láta þeim liða sem bezt.
Kýrnar verða hraustari og heilsubetri,
með því hörundsandardrátturinn verð-
ur jafnari og meiri en ella. Öll óhrein-
indi hjá skepnunum veikja þær,
hvort heldur er í svitaholunum í hör-
undinu eða < hárinu. Þetta halda
hirðuleysingjarnir smámuni og skella
við þvl skolleyrunum; en enginn not-
invirkur fjósamaður telur það á sig.
Búalötj
Verð á ýmsum matvælum að fornu
mati:
1 vætt af þurkuðum sölum kostar 10
álnir. 1 vætt af þríhristum fjallagrösum
10 álnir. i vætt af ætirótum 10 álnir.
1 vætt af mjöli og mjölvægum mat
40 álnir. 1 fjórðungur af berjum 6
álnir. 20 æðaregg 1 alin. 30 svart-
fuglar 5 álnir. 1 vætt af góðum fiski
20 álnir. 1 hundrað (120) af meðal-
stórum þorskhausum, með kúlum og
tálknum 6 álnir. 60 heilir steinbítar
og óskcmdir 20 álnir. 1 vætt af feit-
um og þurkuðum rafabeltum 40 áln
ir. 1 vætt riklings 30 álnir.
Hitt ogr þetta. Sá. sem „baðar í
rósum“ sefur oft frá sér alla hamingju.
Tíminn er peningar, og þó er oft
miklum peningum eytt til þess að eyða
tímarium.
Endurminningarnar eru eins og sól-
argeislarnir, sem lýsir því skærara,
sem meira myrkur umkríngir oss.
Pógur kemur út 10 sinnum á ári,
kostar 75 aura árg. Afgreiðsla blaðs-
ins er f nr. 35 í Vesturgötu.
Ritstjóri og ábyrgðarm.:
Sig. Þórólfsson.
Prentaðui í Glasgow-prentsmiðjunni.