Plógur - 21.02.1900, Síða 8

Plógur - 21.02.1900, Síða 8
i6 í máldögum Wilchins biskups eru ýmsar sannanir fyrir því, að akur- yrkja hafi hér verið á 14. öld. Þar segir á einum stað uni kirkju í Gaul- verjabæ: »Kirkjan á akurlendiundir Sældingskornsá og þara eftir vild«. Þeir Gaulverjar (skipshötn) eiga naust, fjós og korngarð að gjöra o. s. frv.«. Um kirkjunaíTeigsegirsvo: »Marju- kirkjan t Teig á sáld og korn«------- Um Breiðabólstað fyrir austan seg- ir: »Þanguð skal gjalda vætt mjöls úr Hofi, og vætt mjöls úr Þykkvabæ«. Um Vatnsfj.kirkja segir: »Kirkj- an á sáðland á Reykjanesi, sem vill og þaranytjar. — Um Gufudalskirkju: »Kirkjan á Akurgerði undir hrauni á Skálanesi«. Um Miklaholtskirkju : »Kirkjan á naustuppgjörð í Skógarnesi og Ak- urland. (Frh.). Nýtt meðal við þeim algenga sjúkdómi á kúm. að hildirnar ekki nást á réttum tima eftir burðinn, hef- ur franskur dýralæknir Roux í Gren- able fundið upp. Efnasamsetning þess er erui þá ókunn. Þýskur dýra- læknir, að nafni Sttinmeyi segisthafa um nokkur undanfarin ár reynt þetta meðal, og hafi sér gefist það vel í hverju tilfelli, og aldrei haft eins gott meðal við nefridum sjúkdómi. Ýmsir rnerkir, franskirog þýzkir dýralæknar hafa og lokið lofsorði á þetta meðal. Meðalið heitir: „Poudre uterine de Roux“ og fylgja þvi notkunnarreglur. („Nord. Mejeritdn."). Að kemda or bursta kýr er daglega alsiða í öðrurn löndum. Flér á landi mun fáum þykja fyrir því haf- andi. En það er öldungis víst, að slík hirðusemi við kýr borgar fyrir- höfnina, eins og sérhvað það, er miðar til þess, að láta þeim liða sem bezt. Kýrnar verða hraustari og heilsubetri, með því hörundsandardrátturinn verð- ur jafnari og meiri en ella. Öll óhrein- indi hjá skepnunum veikja þær, hvort heldur er í svitaholunum í hör- undinu eða < hárinu. Þetta halda hirðuleysingjarnir smámuni og skella við þvl skolleyrunum; en enginn not- invirkur fjósamaður telur það á sig. Búalötj Verð á ýmsum matvælum að fornu mati: 1 vætt af þurkuðum sölum kostar 10 álnir. 1 vætt af þríhristum fjallagrösum 10 álnir. i vætt af ætirótum 10 álnir. 1 vætt af mjöli og mjölvægum mat 40 álnir. 1 fjórðungur af berjum 6 álnir. 20 æðaregg 1 alin. 30 svart- fuglar 5 álnir. 1 vætt af góðum fiski 20 álnir. 1 hundrað (120) af meðal- stórum þorskhausum, með kúlum og tálknum 6 álnir. 60 heilir steinbítar og óskcmdir 20 álnir. 1 vætt af feit- um og þurkuðum rafabeltum 40 áln ir. 1 vætt riklings 30 álnir. Hitt ogr þetta. Sá. sem „baðar í rósum“ sefur oft frá sér alla hamingju. Tíminn er peningar, og þó er oft miklum peningum eytt til þess að eyða tímarium. Endurminningarnar eru eins og sól- argeislarnir, sem lýsir því skærara, sem meira myrkur umkríngir oss. Pógur kemur út 10 sinnum á ári, kostar 75 aura árg. Afgreiðsla blaðs- ins er f nr. 35 í Vesturgötu. Ritstjóri og ábyrgðarm.: Sig. Þórólfsson. Prentaðui í Glasgow-prentsmiðjunni.

x

Plógur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.