Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1959, Page 134
138
T í Ð I N D I
d) Efla sumarbúðastarfið á félagssvæðinu, styðja æsku-
lýðsmótin og stofnun nýrra félaga.
e) Vinna að sameiginlegum fjáröflunardegi fyrir sam-
bandið og finna leiðir til þess að afla því tek.na.“
I stjórn voru kosnir séra Sigurður Guðmundsson sóknar-
prestur á Grenjaðarstað, séra Árni Sigurðsson sóknarprest-
ur á Hofsós og undirritaður.
Kirkjan væntir þess, að náð sé til æskunnar með gleði-
boðskap Jesú. Og starfið verður að vinna með hliðsjón af
þeim aðstæðum, sem fyrir hendi eru á hverjum tíma. Það
er kunnara en frá þurfi að segja, að of margir unglingar
láta kirkjuna sig engu skipta að lokinni fermingu. Kirkjan
er yfirgefin eins og þegar er tekið burtfararpróf úr skóla.
Á það einkum við í þéttbýlinu. Þörfin á, að kirkjan nái
til æskunnar er stór. Af þeirri þörf -eru Æskulýðsfélögin
komin.
Með því að kynnast æskulýðsstarfsemi Sameinuðu
Luthersku Kirkjunnar í Ameríku fU.L.C.A.) fékk ég mikla
löngun til þess að geta orkað einhverju í þá átt heima á Is-
landi. Hinir litLu félagshópar ungs fólks (Luther League),
sem ég lieimsótti, voru mér uppijrvun og sá ég að þeir voru
hlekkur í traustu safnaðarstarfi, er ekki mátti án vera.
Þegar svo kom að því, að hefja skyldi vetrarstarf í Akur-
eyrarkirkju haustið 1947 og ég var aðstoðarprestur hjá séra
Friðrik J. Rafnar vígslubiskupi, vorum við báðir ákveðnir
í því að mynda félag ungs fólks um fermingarheitið. Aug-
lýsing var birt í blöðum á Akureyri til fermingarbarna frá
því um vorið, og þau beðin að koma til viðtals í kapelluna.
Þar var hugmyndin að félagsstofnun borin fram. Leitað var
álits hinna ungu fermingarbarna og þau réttu upp hönd
sína til samþykkis sem einn maður. Þessi ákvörðun var tek-
in þann 19. október 1947. Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju
var stofnað. Fyrsti foringi var Gunnlaugur Kristinsson, —
en við prestarnir leiðbeinendur og verndarar félagsins. Þeg-
ar séra Friðrik hætti prestsskap 1954 og séra Kristján Ró-