Helgarpósturinn - 22.06.1979, Page 3

Helgarpósturinn - 22.06.1979, Page 3
\ —he/garpósturinn.Föstudagur 22. júní 1979 svartur?” spurfti Sako. Þvi neitaöi Hugo liöþjálfi. „Er þaö vegna þess, aö ég er kaþólskur?” spuröi þá Sako. Og að sögn þeirra félaga svar- aöi Hugo þannig: „I cannot find it in my heart to let you in” („Eitthvaö i hjarta minu segir mér, aö ég geti ekki tekið þig inn” ). Viö þetta sat. Fulltrúi Hjálp- ræöishersins haföi sagt sitt síö- asta orö i þessu máli. í viötali viö Helgarpóstinn var Sako sallarólegur yfir öllu þessu, en félagi hans Thompson var harðoröari. „Þetta eru hræsnar- ar” sagöi hann og bætti viö: „Jesus would piss on them and youcanquotemeonthaU’ (Jesús myndi pissa á þá og þú mátt hafa þetta eftir mér). En hvaða hug ber Sako til Is- lendinga eftir þessa reynslu sina: „Ég held varla, að Islendingar séu kynþáttahatarar. Ég held miklu frekar, aö þetta stafi af þekkingarskorti og fordómum. Fólk hér hefur heyrt um kyn- þáttavandamál i Bandarikjunum en virðist vita litlu meira. Ætli þetta sé ekki bara fávizka og þaö, aö fólk hér er frumstætt. 1 Frakklandi verö ég aldrei var viö neitt svona. Hvernig getur fólk haft eitthvað á móti einhverj- um fyrir það eitt, að hann hefur fallegan litarhátt?” En hvernig er þetta á skemmti- stööunum? „Sumir viröast bara vera undr- andi. ABrir segja, aö ég hljóti aö vera af Vellinum og sumir trúa mér alls ekki, þegar ég segi, aö ég sé franskur. Sumir viröast halda, aö Frakkar geti ekki veriö svart- ir,” Diane Sako er stflmenni hiö mesta, vel klæddur og snyrtileg- ur. Afstaöa hans til þessa leiö- indamáls var hin sama. Hann sagöist ekki bera neinn kala til Is- lendinga vegna þessa, en þegar við spurðum hann hvort hann myndi koma einhvern tima aftur til Islands sagðist hann efast um þaö. Viö þessa sögu er svo þvl viö aö bæta, aö reynt var aö fá húsnæöi handa Sako hjá Astu Jónsdóttur, sem rekur gistiheimili hér i borg. En eins og fyrr sagði var hún bundin samningi viö væntanlega leigjendur. „Mér þykir þetta mjög leiöin- legt,” sagði Asta í samtali viö Helgarpóstinn. „Fyrir mitt leyti er mér alveg sama hvaöan fólkiö kemur. Fyrir mér eru allir eins” sagði Asta. „ÞAÐ VAR BOÐIÐ UPP A GLAS” Helgarpósturinn hafði eftir Lúövik Jósepssyni, formanni Alþýðubandalagsins, i siðasta blaöi, að Sjálfstæðismenn efndu ta sérstakra boða fyrir fjármála- menn I þvi skyni að safna fé til flokksstarfsins. Þetta taldi Liíð- vik til marks um styrk fyrirtækja tU Sjálfstæðisflokksins. Helgarpósturinn fregnaöi, aö sama dag og fréttin birtist heföi fjármálaráö Sjálfstæðisflokksins haft boö inni fyrir stóran hóp manna úr viðskiptallfin,u. Boöið var haldiö i Valhöll. Viö bárum þetta undir Geir Hallgrimsson, formann Sjálf- stæöisflokksins, og staðfesti hann, að boðið heföi verið haldiö ogþar veriö saman komnir ýmsir samstarfsmenn fjármálaráös flokksins. hluti af styrktarmönn- um og velunnurum. „Fjármálaráö hóaði saman nokkrum samverkamönnum sin- um, sem hafa aðstoðaö þá viö fjársafnanir i þágu flokksins,” sagði Geir í samtali viö Helgar- póstinn. Geir kvaöst ekki minnast þess, aö boð aö þessu tæi heföu veriö haldin meö þessum hætti i mörg ár. Menn heföu hitzt meö ýmsum hætti, ekki endilega i formlegum boðum, heldur miklu fremur yfir kaffibolla eða sliku. Var þetta hanastélsboö á sl. fóstudag? „Já, þaö var boöiö upp á glas.” Er þaö rétt, að þarna hafi fyrst og fremst verið menn úr við- skiptalffinu, eins og Lúðvik lýsti þessu? „Þarna voru menn viös vegar aö, ekki endilega úr viöskiptalif- inu eingöngu, heldur menn sem hafa starfaö með fjármálaráöinu aö fjársöfnun á breiðum grund- velli, meöal almennings, að happ- drættinu og öðru.” Má segja, aöþessi boð séu hald- in til aö halda mönnum við efnið? „Þetta er tilfallandi. Þetta er eins og hverjir aðrir fundir sam- verkamanna. En þetta er gert meö óreglulegu millibili og mis- munandi hætti.” Um fjármál stjórnmálaflokk- anna í siöustu kosningum sagöi Geir Hallgrímsson aö draga mætti þá ályktun af kynningar- starfi Alþýöubandalags, Alþýöu- flokks og Framsóknarflokks að fjárráö og umsvif þeirra heföu veriö meiri hjá hverjum um sig, en hjá Sjálfstæöisflokknum. Hinu væri ekki aö neita, aö Sjálfstæöis- flokkurinn heföi allajafna meiri umsvif en aðrir flokkar enda stærsti flokkur landsins. Geir vildi leggja áherzlu á, aö styrktarmannahópur flokksins væri fjölmennur og þar væru fleiri en atvinnurekendur og f jár- öflun ekki sizt borin uppi af tveimur happdrættum á ári hverju. Aöspurður sagöi Geir, aö þaö væri enginn, sem styrkti Sjálf- stæöisflokkinn i þeirri trú, að hann fengi umbun fyrir sjálfan sig eða sitt fyrirtæki. Mönnum væri gert það mjög ljóst. „Það kemur ekki til greina, aö menn séu aö kaupa sér áhrif innan Sjálfstæöisflokksins,” saeði Geir Hallgrimsson. —H.H. Haldiö á fund Hjálpræöishersmanna. „Ekki segja neitt” Eftir aö Diane Sako haföi sagt okkur sögu sina af samskiptum sinum viö Hjálpræöisherinn, fóru blaöamaöur og ljósmyndari Helgarpóstsins meö honum og félaga hans John Thompson til Gesta- og s jóm annaheim ilis Hjáipræöishersins. I móttökunni voru þrjár konur, tvaar norskar og ein islenzk. Sú islenzka var sú sama og hafði sagt Sako, á þriöjudag, aö hún hlýddi skipunum aö ofan og gæti ekki hýst hann. Viö spuröum hana hvers vegna Sako heföi ekki fengið gistingu, þar sem augljóslega heföi veriö laust pláss? „Ég er bara starfsmaður hérna. Égsagöi, aöþaö væri ekki pláss hérna.” En nú var pláss? „Þetta voru fyrirmæli frá gisti- hússtjóra.” Hver er þaö? Getum viö fengiö aö tala viö hann? „Hún heitir Anna Ona.” Hér er rétt, að komi fram, aö samkvæmt frásögn Sakos haföi þessisamakonasagt við hann, að maöur aö nafni Hugo, liöþjálfi, staögengill yfirmannsins, hefði skipaö henni fyrir, en ekki Anna Ona. Rét.t i þann mund, sem viö I ætluöum aö biöja um aö fá aö ræöa viö forstööukonuna Anna Ona, kom aðvifandi fyrrnefndur Hugo. „Ekki segja neitt viö hann,” sagði hann hvellum rómi. Blaöamaður spuröi þá hvers vegna ekki mætti spyrja spurn- inga um þetta mál. „Ég vil ekki i blöðin,” svaraði Hugo. Viö spuröum frekar, en maöurinn svaraöi ávallt: „Ég vil ekki ræða máliö.” Töluverö spenna var komin I loftiö og auðséö, aö Hjálpræðis- fólkiö vissi ekki hvernig ætti aö bregðast viö heimsókn okkar. Þá gall allt i einu við: „Hann er aö taka myndir!” Hugo leit til Friöþjófs, ljós- myndara, hálfstökk til hans, þreif I hann og ýtti honum alla leiö út á götu. Þegar huröin aö móttacunni var að lokast á þá, hrópaði sama kona: „Taktu filmuna.” Af þvi varö þó ekki. Aö þesum aðförum loknum virtist til einskis aö reyna aö fá fram hliö Hjálpræöishersins á þessumáli ogviö héldum á brott. Það skal tekið fram, aö við reyndum aö fá upp gefin nöfn og eftirnöfn viömælenda okkar en árangurslaust. 1 gestamóttöku Hjálpræöishersins. Hugo liðþjálfi er lengst til vinstri á myndinni. Augnabliki siöar var ljósmyndara Helgarpóstsins varpaö á dyr. EKKI BARA BETRA SNIÐ gSHj&k t %~y - '• ' , | | t

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.