Helgarpósturinn - 22.06.1979, Blaðsíða 4
4
Föstudagur 22. júní 1979 helgarpásturinrL
NAFN: Jón Sigurðsson STARF: Forstjóri bjóðhagsstofnunar FÆDDUR: 17. april 1941 HEIMILI: Tjarnarból 4, Seltjarnamesi
FJÖLSKYLDUHAGIR: Eiginkona, Laufey Þorbjarnardóttir og eiga þau fjögur börn BIFREIÐ: Fiat 128, árg. 1975
ÁHUGAMÁL: íþróttir og útivera. Áhugamál utan starfs þó meiri i orði.
É6 ER UPPALÖPPUNARMAÐUR
„Taka skal efnahagsvandann fastari tökum en fyrr og stefna að markvissri stjórn efnahags-
mála", segja allir stjórnmálafiokkar landsins. Það hefiir verið höfuðmarkmið allra rikisstjórna
siðustu áratugi að koma efnahagsmálunum i rétt horf, eins og það hefur verið nefnt. Vandinn
virðist þó fylgja hverri rikisstjórninni af annarri. Virðist vera ævarandi og aldrei fulllevstur.
Jón Sigurösson forstjóri Þjóðhagsstofnunar er sá embættismaöur, sem hefur hvaö mest
aðstoðað sfðustu rlkisstjórnir við mótun efnahagsstefnu. Margir viija halda þvf fram, að stjórn-
málamenn viti lftið um hin einstöku atriði efnahagsmála og það séu f raun embættismenn eins og
Jón Sigurðsson sem móti stefnuna. Ef það er satt mætti kalla nefndan Jón Sigur'ðsson æðstráð-
anda i islensku stjórnkerfi allan þennan áratug.
Jón er tekinn til yfirheyrslu hjá Helgarpóstinum.
Nú virðast tslendingar eiga I
sifelldum erfiðleikum með sir
efnahagsmál. Þau virðast ekki
ganga upp. Hvers vegna þessir
eilifu erfiðleikar?
,,Ég er ekki viss um aö ég geti
tekiö undir þaö, aö þau hafi ekki
gengiö. Ég held þvert á irróti aö
þaö sé merkilegt viö okkar efna-
hagsmál, aö þau hafa gengiö,
þrátt fyrir okkar siendurteknu
efnahagsvandræöi. Allt frá
striöslokum hefur okkur vegnaö
vel i efnahagsmálum og ekki
siöur en löndunum í kringum
okkur. En hins vegar hefur
okkur ekki tekist aö leysa okkar
efnahagsmál án stööugrar verö-
bólguþembu. Þetta hefur auö-
vitaö sett sitt mark á allt þjóö-
lifiö I alltof mörg ár og kannski
hvaö verst nú siöustu árin. Þar
fléttast margt saman. Þaö eru
bæöi innri og ytri aöstæöur, sem
ég held aö of langt mál væri aö
fara i gegnum i svona yfir-
heyrslu.”
Efnahagsmálin og lausn
þeirra hafa veriö höfuðverkefni
siðustu rikisstjórna. Verða þessi
mál aldrei leyst? Veröa þau
eilifur höfuðverkur?
„Ég held aö stjórn efnahags-
mála sé á ýmsan hátt eins og
húsverk, eöa uppvaskiö, þeim
lýkuí aldrei. Þetta er verk,
sem þarf aö vinna og vinna vel.
Ef þau eru vel af hendi leyst, þá
tekur enginn eftir því, en ef þau
ganga niiöur þá vita allir af þvi.
En auövitaö mega menn ekki
vera svo önnum kafnir viö upp-
þvottinn, aö þeir megi ekki vera
aö þvi aö boröa eöa skipuleggja
húshaldiö. Þetta á viö þjóöarbú-
iö eins og þaö á viö á hverju
heimili. Þaö þarf helst aö vera
timi til aö leggja grundvöll aö
betri framtiö og haga búskapar-
laginu þannig aö þar séu ekki
stööugar „krisur”.”
Þú heldur sem sé að efna-
hagsvandinn sé f rauninni
ekkert meiri nú, en oft áður?
„Hann er samur viö sig og
vikur ekki frá okkur. Hann
veröur ævarandi viöfangsefni
Islenskra stjórnvalda. Hvort
hann er verri þessa stundina
eöa auöveldari viöfangs, en ein-
hvern tfma áöur, vil ég nú ekki
leggja dóm á. Þaö eru afskap-
lega dökkar blikur á lofti i okkar
þjóöarbúskap eins og er vegna
oliuveröshækkana, en ég er viss
um aö viö ráöum viö þann
vanda. A þessu dökka máli er
reyndar lika björt hliö. Nefni-
lega sú aö ef oliuverö og orku-
verö í heiminum veröur varan-
lega mikiö hærra en þaö hefur
veriö, þá ér þar meö veriö aö
skrifa upp veröiö á okkar riku-
legu orkulindum, sem viö mun-
um þá hafa hag af siöar.”
Er tsland eitthvaö frábrugöiö
öðrum löndum til möguleika á
heilbrigöu efnahagsiifi?
„Aðstæöur hér á landi eru
vitaskuld aörar heldur en I flest-
um hátekjulöndum. Viö byggj-
um okkar góöu lifskjör ef til vill
á ótraustari grunni heldur en
þjóðirnar, sem viö höfum mest-
an samanburö viö. Hvort aö
þetta eru erfiöari skilyröi eöa
auöveldari held ég aö ekki sé
hægt aö leggja á algildan
dóm. Þetta felst fyrst og fremst
I því aö sveiflurnar I þjóöarbú-
skapnum hérna veröa sneggri
og álagiö á hagkerfiö af þeim
sökum meira. Hitt er annaö mál
aö okkur hafa nýtst þessar að-
stæöur allvel, hygg ég, og á þvl
er góöur möguleiki aö þær ættu
aö geta nýtst okkur enn betur I
framtiöinni. Island er gott land,
eins og oft hefur veriö sagt, en
þaö er misgjöfult.”
Er þaö rétt að þú hafir verið
heilinn á bak við siöustu fjórar
rikisstjórnir? Stjórnað algjör-
lega efnahagsstefnu þeirra.
„Auðvitaö ekki. Mér finnst nú
satt að segja aö svona löguö
spurníng sé ekki efni I heíiá-
brot.”
En hefur þú ekki að miklu
ieyti mótað efnahagsstefnu
undanfarinna rikisstjórna?
„Ég vil nú ekki halda bvl
fram eöa gangast viö þvl,
hvemig sem þú vilt oröa þaö.
Þaö rétta er, aö ég hef starfað
fyrir allar þessar rikisstjórnir
nokkurn veginn á þeim staö sem
ég er núna staddur. Þaö er þaö
eina sem ég get um þetta sagt.”
Hefur þú samt sem áður ekki
haft á einhvern hátt mótandi
áhrif á efnahagsstefnuna?
„Sambandið milli efnahags-
sérfræöinga eöa ráögefenda I
efnahagsmálum og þeirra sem
taka ákvarðanir er ekki svo
auöveldlega uppskoriö, aö hægt
sé aö svara spurningum af
þessu tagi. Þaö er sagt aö sælla
sé aö gefa en þiggja. Og sumir
segja aö þaö sé meiri vandi aö
þiggja góö ráö en gefa þau. Ég
held aö þaö sé llka vandi I þessu
efni aö sjá fyrir hvernig góö ráö
veröa þegin, vegna þess aö
stjórnvöld I okkar stjórnarfari
hafa sennilega tilhneigingu til
aö velja úr hverjum þeim vendi
sem aö þeim er réttur, þaö sem
þægilegt viröist og llklegt til aö
ná fram aö ganga, en sleppa
kannski einhverju ööru sem
viröist óþægilegra. Otkoman
vill þá veröa önnur en aö var
stefnt.”
Finnur þú mun á þvi að starfa
fyrir og meö vinstri stjórn og
aftur hægri stjórn, t.d. núver-
andi stjórn og þeirri sem siðast
sat?
„Flokkamun finn ég ekki
skarpan. Þaö sem setur svip á
okkar stjórnarhætti, er fyrst og
fremst samsteypustjórnar-
munstriö, sem gerir allar
stjórnarráöstafanir býsna
svifaseinar. Þeim mun fleiri
flokkar, sem sitja I stjórn, þeim
mun erfiöar veröur náttúrulega
aö komast aö niöurstööu. Þar
held ég aö sé mesti munurinn á
þeirri stjórn sem nú sítur og
þeirrisiöustu. Nú eru þrlr flokk-
ar I stjórn þá voru þeir tveir.
Sumir segja einnig aö sam-
komulagiö innan sumra flokk-
anna sé brestasamt og þaö þýöir
aö allar ákvaröanir á stjórn-
málasviöinu hafa veriö hæg-
gengar.”
Núverandi stjórn hefur verið
nefnd vinstri stjórn og sú
siöasta hægri stjórn. Það er
ljóst að vinstri flokkar hafa
aðrar hagstjórnarhugmyndir en
hægri fiokkar. Verður þú ekki
var við þennan mun i þinu
starfi?
„Þessi stjórn hefur ekki setiö
svo lengi aö um þetta veröi
dæmt. Auk þess býst ég viö þvl
aö svo hægt sé aö meta þetta
sanngjarnlega þurfi meiri fjar-
lægö en viö náum nú.”
Vita stjórnmálamenn
almennt nokkuö um efnahags-
mál?
„Jú, ég held aö þeir viti
yfírleitt nokkuö mikiö um efna-
hagsmál. Hvort þeir treysta sér
ævinlega til aö breyta sam-
kvæmt þvl sem þeir best vita
um samhengi efnahagsmála er
annaö mál, auk þess held ég aö
flestir I landinu, stjórnmála-
menn sem aörir, fylgist mikiö
meö efnahagsmálum. Helsta
vandamál stjórnmálanna er
aftur á móti aö mynda samstööu
og pólitiska samheldni um aö-
geröir. Þaö hefur gengiö mis-
jafnlega.”
Þú viit sem sagt ekki sam-
þykkja þá gagnrýni að efna-
hagsmálaumræöa sé svo flókin
aö það sé ekki fyrir venjulegan
mann að fylgja henni eftir?
„Þaö held ég ekki. Sérfræöi er
góö, en hún er alls ekki alfa og
omega allra hluta. Hún er
nauðsynleg til þess eins aö gera
gagnlega hluti fyrir almenning.
— Auðvitaö er skylda á þeim
sem viö þessi mál fást, bæöi á
stjórnmálamönnum og efna-
hagssérfræöingum, aö reyna aö
tala um efnahagsmál þannig aö
þaö sé skiljanlegt. Hvort þeim
tekst þaö miöur eöa betur, fer
eftir ýmsu, mönnum er þetta
misvel gefið.”
Nú ertu óneitanlega vaida-
mikiil sem sérlegur efnahags-
málasérfræðingur rikis-
stjórnarinnar. Þrátt fyrir það
ertu mikið að tjaldabaki og
kemur litið fyrir almennings-
sjónir f fjölmiðlum? Hvers
vegna?
„1 fyrsta lagi er ég alls ekki
valdamikill. 1 ööru lagi finnst
mér aö ég komi meira en nóg
viö sögu I þessum svokölluöu
fjölmiölum.”
Ertu Alþýðuflokksmaður?
„Ég er ekki flokksbundinn
Alþýöuflokksmaöur.Ég varii fé-
lagi ungra jafnaöarmanna á
minum menntaskólaárum á
Akureyri og kynntist stúdenta-
félögum jafnaöarmanna á
námsárum I Stokkhólmi og
London.”
Er þaö rétt aö þér hafi verið
boðið sæti á lista Alþýðu-
flokksins við þingkosningarnar
1974?
„Ja, viö mig ræddu þá kunn-
ingjar mlnir og vinir I Alþýöu-
flokknum. Þaö er rétt. Þeir
spuröu hvort ég vildi gerast
frambjóöandi flokksins. Þaö
var áöur en prófkjörin komu til.
Þaö varö ekki úr þvl.”
Hefuröu einhvern pólitiskan
metnaö?
„Ekki held ég þaö.”
Hver er þfn pólitiska lifs-
skoðun?
„Ég vil kalla mig jafnaöar-
mann.”
Heldur þú aö þfnar stjórn-
máiaskoöanir komi I gegn þegar
þú mótar þln efnahagspiön?
„Nei, ekki held ég þaö, en all-
ir menn hafa stjórnmálaskoö-
anir. Ljóst og leynt. Maöur sem
gegnir starfi efnahagssérfræö-
ings — eöa ráögjafa fyrir ríkis-
stjórn veröur auövitaö aö gera
sér þetta ljóst og halda aöskildu
eftir þvl sem hægt er, þ.e. slnum
persónulegu stjórnmálaskoðun-
um og þeim viöfangsefnum,
sem hann fæst við hverju sinni
fyrir stjórnvöld. Þetta er auð-
vitaö ekki alltaf sérstaklega
auövelt, en sjaldnast held ég aö
þaö sé mjög erfitt. Þaö má
kannski oröa þetta þannig aö
efnahagssérfræöingur litur á
þaö sem sitt mottó aö ekki sé
ráö nema i tima sé tekið, en hins
vegar eru stjórnmálamennirnir
e.t.v. eölilegir talsmenn þess
sjónarmiös, aö þaö eitt sé ráö
sem uppi tollir, þ.e.a.s. þaö sem
hægt sé aö koma fram meö og
fólk uni.”
Má ekki með einhverjum
hætti einfalda alla gerð efna-
hagskerfisins?
„Þegar stórt er spurt, veröur
oft lltiö svar. Flest sem viö köll-
um framfarir i þjóöfélagsmál-
um hefur oröiö til aö gera llfiö
flóknara. Um leiö og menn hafa
leitast viö aö gera kjör manna
öruggari og jafnari. Þvl vill
gjarnan fylgja einhvers konar
flækja. Auövitaö má þetta
aldrei vera flókiö flækjunnar
vegna, en hins vegar mega
menn ekki skirrast viö aö setja
upp „kerfi” til aö koma þvi
fram sem þeir telja ákjósanlegt
fyrir almannaheill. Til þess er
leikurinn geröur.”
Séröu einhverjar „fram-
búöar-patentiausnir” á efna-
hagsvanda tslendinga?
„Ég er vondur I „patent-
lausnum”.
Gæti það verið lausnin að
umbylta öllu okkar efnahags-
kerfi og byggja nýtt og hald-
betra á rústum þess gamla?
Ertu byltingarmaður i þessum
efnum?
„Ég er ekki byltingamaöur.
Ég er uppálöppunarmaður. Ég
held aö uppálöppun sé góö aö-
ferö.”
Heldurðu að við komumst
nokkurn tima út úr þessum
margnefnda efnahagsvanda?
„Eins og ég sagöi áöan held
ég aö efnahagsvandinn sé ævar-
andi einfaldlega vegna þess aö
lifsins gæöi eru af skornum
skammti. Og deilt veröur um
skiptingu þeirra svo lengi sem
menn tóra. Vandi þessara llfs-
gæöaskiptingar veröur aldrei
leystur I eitt skipti fyrir öll.
Þarfir manna eiga sér varla
nokkur takmörk. Hins vegar
held ég aö þaö sé afskaplega
mikilvægt aö draga úr þvi sund-
urlyndi, og þeim veilum I okkar
hagkerfi sem valda þeim óstöö-
ugleika og verðbólgu sem sett
hefur svip sinn á slðustu ár.”
eftir Guðmund Arna Stefánsson