Helgarpósturinn - 05.10.1979, Qupperneq 15
—helgarpásturinrL. Föstudagur 5. október 1979
15
Helgarpósturinn tekur nú upp þá nýbreýtniaö senda
blaðamenn sina út að borða/ annað slagið/ til þess að
skrifa síðan um reynslu sína af viðkomandi matsölu-
stað. Er vonast til að jafnframt því að fylla maga
blaðamannanna geti það
gagns/ eða hjáipar þegar
fara út að borða.
Rétt er aö taka fram aö blaöa-
mennirnir eru engir sérfræöing-
ar i mat, en vita þó aö minnsta
kosti aö hnifurinn á aö vera i
hægri og gaffallinn i vinstri. aö
forrétturinn kemur fyrst, svo
aöalrétturinn og eftirrétturinn á
eftir. Þeir segjast lika þekkja
muninn á rauövini og hvitvini.
í dómum um veitingastaöina
veröur þvi litiö farið útfyrir
aöalatriöin: Hvort matur og
orðið lesendum til emhvers
þeir telja sig hafa efni á að
drykkur sé góður, hvort vel er
útilátiö, hvort þjónustan sé
bærileg, og hvort staöurinn sé
huggulegur og siöast en ekki sist
hvort allt þetta sé peninganna
viröi. Til aö leggja áherslu á
þetta siöasta borga þeir sjálfir
bíúsann.
Guöjón Arngrimsson reiö á
vaöiö og fór meö kvinnu sinni á
HORNIÐ viö Hafnarstræti.
Horniö er einn nokkurra matsölustaöa sem opnuöu i sumar.
Hornið; ____________
Fyrsta einkunn
Hornið er matsölustaður sem nýtur sin best þegar
úti er sól og sumar. Innréttingarnar eru suðrænar,
gluggarnir stórir og þegar úti er suðvestan rok og
rigning, er ekki sniðugt þegar dyrnar eru opnaðar. Þá
hreinsast loftið i salnum á andartaki, og kólnar veru-
lega um leið. Þaðer annar mínusinn semHornið fær.
Hinn mínusinn kom þegar þjónninn sagðist ætla að
fylla á ölglösin en steingleymdi því. Hann þurfti að
vera minntur á það eftir tæpar tíu minútur.
Aö ööru leyti fær staöurinn
stóran plús. Ekki þurfti aö biöa
eftir þjóni nema i svona tvær
mlnútur i upphafi, þótt staöur-
inn væri þéttsetinn. Oliö kom aö
vörmu spori og forrétturinn
eftir biö sem teljast veröur eöli-
leg: 15 minútur.
Forrétturinn var ofnbakaöir
sveppir I brauöi á krónur 1300 og
Sniglar i hvitlaukssmjöri á 1600.
Hvorttveggja var vel útilátiö og
meö sniglunum fylgdi ókennileg
töng og mjór stingur. Sniglarnir
eru reyndar ekki kvikindin sem
maöur sér stundum skriöa I
skúmaskotum eins og ég hélt I
fáfræöi minni, heldur sjávardýr
i fallegum kuöungi.
Fimmtán minútum siöar kom
aöalrétturinn, annarsvegar
pönnusteiktur hörpuskelfiskur
meö hrisgrjónum, ananas og
karrýsósu á krónur 3100 og hins-
vegar ofnbakaöir sjávarréttir
meö tómat, hvitlauk og osti á
3000.
Báöir eru réttirnir bornir
fram i djúpum skálum og borö-
aöir meö hnif og gaffli. Þjónninn
náöi sér meira aö segja i auka-
prik þegar hann skipti um
hnifapör aö forréttinum lokn-
um. Réttirnir voru báöir bragö-
góðiryvel heitir og vel útilátnir.
Þegar þessu haföi verið torg-
aö reyndist ekki pláss fyrir
eftirrétt, en i staöinn var drukk-
iö kaffi, sem einnig vas ágætt.
I heild gekk þessi máltiö ljúf-
lega fyrir sig og veröiö 10.400
var sist of mikiö. Þessum staö
er óhætt aö mæla sterklega
meö.
-GA
Göngu-Vikingar bera grjót i vöröu á leiöinni upp i Skeggja.
Göngu-Vikingar riða á vaðið á Hengilssvæðinu
MERKJfl LEIÐIR
OG HYGGJfl
Á VEITINGASÖLU
Siöustu árin hefur ásókn i dags-
feröir Feröaféiags Isiands og (Jti-
vistar stóraukist. Feröir fólks á
höfuöborgarsvæöinu til útivistar-
svæöanna i nágrenninu hafa llka
stóraukist, og þeim sem til þekkja
er kunnara en frá þurfti aö segja
hvernig ástandiö i skiöalandinu I
Bláfjöilum er þegar umferö er
þar mest. Varla er viö ööru aö
búast en áhugi fólks á stuttum
feröum um nágrenni sitt aukist
enn næstu árin, þegar stööugt
hækkandi bensinverö gerir lengri
feröir stööugt dýrari.
1 Bláfjöllum hefur aö sönnu
veriö gert stóratak til aö bæta
aöstööu fólks til útivistar. En úti-
vist er meira en hendast meö
rassaköstum niöur skiöabrekkur -
og láta draga sig upp aftur i
skiöalyftu. Vegur og viröing
skiöagöngu viröist reyndar
eitthvaö vaxandi, en þaö er
heldur ekki nóg. Sú þróun I feröa-
máta fólks, sem hér aö framan
greinir, sýnir aö fólk lætur sér
siður nægja en áöur aö þeytast
um landiö i bilum og virða þaö
fyrir sér útum gluggann. Styttri
gönguferöir og fjallaferöir, sem
öll fjölskyldan getur tekiö þátt I,
viröast vera á góöri leið meö aö
uppgötvast lika hér á landi.
En litiö hefur veriö gert fyrir
göngufólk til þessa. Þó hefur litiö
eitt gerst I þeim málum i hinum
nýja fólkvangi á Reykjanesi, og
nú hefur nýlega stofnuö útivistar-
deild fþróttafélagsins Vikings,
sem nefnd er Göngu-VIkingar,
tekiö sig til og hafiö merkingu á
leiöuni á Hengilssvæðinu. Fyrsta
leiöin, um Sleggjubeinsdal og upp
Þessi loftmynd var tekin um
miöjan september 1975 og sýnir
vel hversu snemma snjór fellur i
döiunum upp viö Hengil. Sjáifur
Hengill er ofarlega, fyrir miöri
myndinni. Dálitiö neöar, til
vinstri, er Innstidalur, en hægra
megin viö hann Miödalur og
Fremstidalur.
(ljósm.: Landmælingar tslands).
á Skeggja, veröur opnuö meö
pompi og pragt siöar i þessum
mánuöi, og þá veröur jafnframt
gefin út bæklingur þar sem leiö-
inni er lýst, og helstu útsýnis-
stööum. Ætlun gönguvikinganna
er aö halda leiöamerkingum
áfram og opna jafnvel greiöasölu
i skiöaskála sinum i Sleggju-
beinsdal.
Þegar fyrir fjórum árum var
reyndar samþykkt tillaga á fundi
Náttúruverndarsamtaka Suður-
lands um aö gera stærstan hluta
þessa svonefnda Hengilssvæöis
aö fólkvangi. Þaö svæöi nær yfir
Grænsdal, Reykjadal og Hengla-
dali.
Þessi samþykkt var gerö i
ágúst áriö 1975, en hvenær hún
veröur aö veruleika er erfitt aö
segja. Náttúruverndarráö hefur
ekki fjármagn né mannafla til aö
bæta þessu svæöi á verkefnaskrá
sina, segir Arni Reynisson, fram-
kvæmdastjóri ráösins.
En Arni bendir á, aö nauösyn-
legt sé, aö fariö veröi aö skipu-
leggja not af Hengilssvæöinu.
Orkustofnun rikisins hefur þegar
gert rannsóknir þar, og nú eru
uppi ráöageröir um aö nýta jarö-
varmann til húsahitunar i
Reykjavik 1983 eöa 1984. Aöur en
þær framkvæmdir hefjast er
nauösynlegt samræma allar
aögeröir þannig aö mannvirkja-
gerö spilli ekki landinu.
Varöandi framtak Göngu-
vikinganna segir Arni aö
Náttúruverndarráö hafi fullan
hug á aö styöja þaö, komi til fólk-
vangsstofnunar á svæöinu. Þaö
eru lika hæg heimatökin þar eö
Arni er sjálfur virkur meNimur i
samtökunum.
Eitt af þvi sem gera þarf ef nýta
á landsvæöi til útivistar er aö
gera á þvi úttekt i þvi skyni aö
kanna hvaö gera þarf til aö taka
megi á móti fjölda feröafólks,
hversu mikinn fjölda svæöiö
þolir, og upp á hvaöa möguleika
svæöiö býöur. Litiö hefur veriö
gert af þessu, hingaö til en þó
skrifaöi Inga Ingibjörg
Guðmundsdóttir lokaritgerö i
jaröfræöiskor Verkfræöi og raun-
visindadeildar háskólans um
Hengilssvæöið i fyrra.
1 ritgeröinni bendir Inga á, að
Hengilssvæöiö sé einkar vel staö-
sett til nota fyrir fólk á höfuö-
borgarsvæöinu, og einnig þétt-
býlissvæöunum fyrir austan
Fjall. Þetta svæöi er 150 ferkiló-
metrar, og auövelt er aö komast
fótgangandi inn á þaö frá hvaöa
staö sem er á þjóöveginum, sem
liggurhringinn i kringum þaö. Til
samanburöar má geta þess, að
Bláfjallasvæöiö er 82 ferkiló-
metrar.
Megin hugmyndir Ingu um
skipulagningu Hengilssvæöisins
eru, aö lagfæröir veröi akvegir
inn á þaö, en bilaumferö bönnuö
inni á sjálfu göngusvæöinu.
Þjónustuskálum veröi komiö
fyrir I útjöörum svæöisins,
gönguleiöir merktar og svæöiö
kortlagt. Einnig bendir hún á, aö
nýta megi heitar laugar á svæö-
inu til baða.
A Hengilssvæöinu eru góöir
möguleikar til sklöaiökunar, ekki
sist skiöagöngu. Þarna er næst
mesta úrkomusvæöi landsins, og
stór hluti úrkomunnar fellur sem
snjór á vetrum. Auk þess liggja
staöir eins og Innstidalur þaö
hátt, aö þar fellur snjór snemma
á haustin og tekur upp seint á
vorin.
Innstidalur, og fleiri staöir á
Hengilssvæöinu, gæti þvi oröiö
skiöafólki kærkomin viöbót viö
Bláfjöll.og tilbreyting frá örtröö-
inni þar. Þaö gæti lika oröiö
kærkomiö gönguland ásumrin, ef
fjárveitingavaldinu þóknast aö
gefa grænt ljós á nauösynlegar
framkvæmdir. En á meöan þaö
græna ljós fæstekki fá framtaks-
samir einstaklingar og félög
gulliö tækifæri til aö spreyta sig -
samborgurum sinum til þurftar.
-Þ G.
Þaó er ekki eftir neinu aó bíóa
JKomdu bara í ÓÐAL »
^ .. þar er fólkió