Helgarpósturinn - 31.10.1980, Page 22

Helgarpósturinn - 31.10.1980, Page 22
22 Föstudagur1 31.' október' 1980 Jielgarpástúrinn.. Hálf önnur öld Jón Thor Haraldsson: Mannkynssaga 1492—1648 (Mdl og menning 1980) Þótt þess sé hvergi getiö i bókinni né á, er hér aö birtast nýtt bindi i bókaflokki, Mannkynssögu Máls og menningar, sem Ásgeir Hjartarson, Sverrir Kristjáns- son, Bergsteinn Jónsson og Jón Guönason hafa áöur ritaö hluta af. Þessi bók er I svipuöum dúr og hinar fyrri, alllöng (megin- mál hátt á fjóröa hundraö slöna og þar umfram prýöilega mikiö af ýmiss konar skrám), nokkuö myndskreytt, efnistök lika áþekk og fyrri höfundanna. Jdn Thor velur aö fjalla einvöröungu um Evrópusögu, svo og athafnir Evrópumanna I öörum heimsálfum. Sagannær i aöalatriöum frá fundi Ameriku og fram um þrjátiu ára striö. Hún er rituö handa byrjendum aö þvi leyti aö ekki er gengiö út fra því aö lesendur muni neitt af skólanámi sinu i sögu. Viö ritun söguyfirlits af þessu tæi er um tvær aöalleiöir aö velja. Aö telja fram sem flest af atburöum ogatvikum sögunnar, eöa aö rekja og rökstyöja einhverja skoöun á eöli og afleiöingum meginviöburöa. Jón Thor þræöir, eins og fyrir- rennarar hans, aöallega fyrri leiöina. Hann tekur meö flest eöa allt sem lesandi getur vænst aö finna i yfirlitssögu, eitthvaö um sögu hvers lands og rikis, eitthvaö um hverja verulega styrjöld, fróöleik um jaragrúa sögupersóna, m.a.s. mat eöa dóm um fjölda þeirra, eitthvaö um listir, visindi o.s.frv. Þaö veröur styrkur bókarinnar hvað hún er mikil fróöleiksnáma. En þaö veröur um leiö veikleiki hennar hvaö þessi margvislegi fróöleikur er óhjákvæmilega sundurlaus og hvaö litiö rými hann skilur eftir fyrir rökræöur og túlkun aðal- atriöa. (1 kafla um endurreisn- ina er t.d. sagt frá fimm Itölsk- um myndlistarmönnum, rakin ævi þeirra, nefnd nokkur verk eftir hvern þeirra — og þá er aöeins pláss fyrir sjö eöa átta linur um endurreisnina sem hugtak og menningarstefnu.) Nú vantar þaö ekki aö höfundur aöhyllist ákveöna söguskoöun og sjái i tlmabili sinu vissan meginþráö, nefnilega uppgang og eflingu borgarastéttar eöa kapltalista og áhrif þeirrar efl- ingar á menningu og stjórnar- far. En þetta efni fær takmark- aö nim I bókinni, einstök sögu- efni eru tengd þvl meö smá- athugasemdum , nánast sleggjudómum, fremur en sam- felldri útlistun. Þessi bók ber meö sér aö hafa veriö lengi I smiöum. Höfundur hefur viöaö aö sér efni, m.a. smellnum tilvitnunum, sem sjáanlega hefur veriö mikil vinna aö draga saman. Sem heimildir tilfærir hann fjölda bóka — ekki tímaritsgreinar — yfirleitt 10 ára og eldri. Óhjákvæmilega veröa yfirlits- sögur dálitiö úreltar, og ég kann ekki að dæma um hvort þess gætir hér I óhófi. (Ég aögætti úrelta söguskýringu sem ég glæptist til aö taka upp I kennslubók fyrir nokkrum ár- um: jú, hér var hún lfka, þ.e. að hinn kaþólski helmingur Niðurlanda hafi haldið tryggð viö Spán á 16. öld, en hann varö vlst kaþólskari en hinn eftir aö landiöskiptist. Enokkur Jóni er full vorkunn aö þekkja ekki nýjustu niöurstööur um alla hluti.) JónThor Haraldssonerprýöi- lega ritfær. Hann hefurlagá llf- legri og fjölskrúöugri framsetn- ingu (minnir, þegar best lætur, á Björn Þorsteinsson), dettur aldrei niöur i þragölausa flatneskju eöa „stofnanastil”, en spillir nokkuö meö fljótfærni, hefur liklega haft nokkuö haröan endasprett aö bókinni. Viöa tekurhann hnyttin stflbrögö fram yfir efnislega nákvæmni. (Þaöer t.d. ekki gott aö vita nákvæmlega hvaöa upplýsingar felast i þvi aö kalla mann „peningalauk ættar sinn- ar”. Eöa hvaöa lögfræöileg at- buröarás felst á bak viö: „... þegar ekki tókst aö koma yfir hann lögum var hann einfald- lega dæmdur til dauöa formála- laust”?) Þá reynir höfundur aö gera sem ljósast aö sér sé illa viö auövald og kapitalisma og er óvandur aö tilefnum til aö koma þvi'aö. Hann lýsir þvl t.d. aö Hollendingar hafi I eina tlö átt svo hentug skip og kostaö svo litlu til sjómanna sinna aö þeir hafi getaö flutt vörur fyriri helmingi lægra gjald en Englendingar. Þegar margir sáu sér hag i aö greiöa heldur hin lægri gjöldin, heitir þaö nærfellt, „hvert land I álfunni flækist i þetta net hollenska verslunarauövaldsins”. Mikil- vægasta tilefni Jóns til aö ’harma þróun borgaralegra at- vinnuhátta er sú skoöun aö henni hafi fylgt mikil og almenn lifskjaraskeröing. Þessa kenn- ingu hef ég hvergi séö eindregn- ari en hér. Ég skal ekki fullyröa aöhún sé röng, en þaö mun vera talsveröum vandkvæöum háö að sýna fram á miklu betri lifs- kjör aldarinnar á undan eða betri I frumstæðari löndum en Bók Jóns Thors Haraldssonar er nýjasta bindiö I bókaflokki Máls og menningar, Mannkyns- saga: efnistök leyfa ekki rök- ræöur um álitamál, en I staöinn kemur fjölbreyttur fróöleikur og Hfsreglu ritháttur, segir Helgi Skúli m.a. I umsögn sinni. hinum kapítaliskustu. En þaö er um þetta eins og flest annaö: þau efnistök aö koma sem viöast viö, þau leyfa ekki rökræöur eöa vangaveltur um álitamál. Þess sakna ég mest I þessari bók, en met hana þó mikils fyrir hinn fjölbreytta fróöleik og líflega rithátt. Undir vendinum VANDARHÖGG. Sjónvarps- leikrit eftir Jökul Jakobsson. Kvikmyndagerö og leikstjórn: Hrafn Gunnlaugsson. Leikend- ur: Benedikt Árnason, Björg Jónsdóttir, Bryndis Pétursdótt- ir, Arni Pétur Guðjónsson o.fl. Kvikmyndataka: Sigurliöi Guö- mundsson. Hljóöupptaka: Jón Arason. Leikmynd: Einar Þor- steinn Asgeirsson. færingar á verkinu til aö gera þaö flutningshæft. Fæ ég ekki annaö séö en hann hafi unnið það verk af fullri túmennsku við hugsun frumtextans. Þó að deila megi um ágæti einstakra breytinga, ekki sist sumra myndinnskota, er leikstjörnar- aöferð Hrafns i heild mjög athyglisverö. Hann gætir þess sem sé vandlega að engin yfir- Undir kristilegu yfirborði borgaralegs heimilis dafna sjúkleiki og illmennska. Móðir leikur sér að ungum syni sinum eins og dauðri brúöu, bróðir og systir fullnægja sér saman að næturþeli með klæöaskiptum og svipuleikjum, ástmey bróöur- ins sker systurina á háls i baö- kerinu. Atti einhver von á sliku frá Jökli Jakobssyni? Þetta eru nú samt helstu atburðir Vandarhöggs, siðasta sjón- varpsleikrits hans, sem frum- sýnt var I sjónvarpinu á sunnu- daginn var. Efni þess verður ekki rakiö nánar hér, rúmum fjórum árum eftir aö höfundur þess lauk viö það er þaö oröiö þjóöareign. Um hvað fjallar þá þetta myrka og blóðidrifna verk? Eitt mega menn vera vissir um: kynvilla, sadismi og önnur kynferöisleg frávik, sem þarna koma við sögu, eru ekki höfuð- atriöi þess. Vandarhögg er verk þroskaðs leikskálds, skálds sem gat sagt frá dæmdu fólki án þess aö fella sjálfur yfir þvi neinn áfellisdóm og vissi aö i leikriti verður höfundurinn aö gæta algers hlutleysis gagnvart persónum sínum. Yfirbragð þessa leikrits er kannski nokkuö ólikt þvi sem viö höfum átt aö venjast á verkum Jökuls, en sé dýpra skoöaö sver þaö sig þó greinilega i ætt viö önnur leikrit hans. I þvi má finna sum áleitn- ustu þemu þeirra og I fylgd meö þeim þau llfsvandamál, sem hann viröist hafa gllmt viö til hinstu stundar. Handrit það, sem Jökull Jakobsson afhenti sjónvarpinu sumarið 1976, er ekki fullbúið tökuhandrit. Þaö er I rauninni ekki annað en laustengdar sam- ræður án nánari fyrirmæla um myndræna útfærslu. Hrafn Gunnlaugsson hefur þvi oröið aö gera nokkrar breytingar og lag- borðsljóðræna eöa tilfinninga- semi fái aö smeygja sér inn I túlkun persónanna, heldur lætur leika þær blátt áfram, allt aö þvi fruntalega, jafnvel I viökvæmn- ustuatriðum myndarinnar. Meö þessu móti tekst að gera það sjúka og margflækta mannlif, sem þarna er lýst, djöfullega sjálfsagt og um leið eru sköpuð skilyröi fyrir því aö hægt sé að taka fáránleik þess alvarlega. Vandarhögg er glæpaleikur, viö komumst ekki aö þvl fyrr en i lokin, hver sá seki er. Emma myrðir móöurina, Rós myrðir Emmu, eins og hjá Æskylosi, Shakespeare og Ibsen leiðir einn glæpinn af öörum. Bæöi moröin eru framin i sama tilgangi, þeim að komast yfir manninn sem konurnar elska. A viö- kvæmri stund mæla þær báöar sömu oröin viö hann: „Viö erum frjáls......” En þessi fögru orö eru aumkunar- verö hræsni, þvi aö I rauninni hafa þær einungis keypt sjálfum sér frelsi til aö njóta hans. Þær eru blindir fangar ófullnægðrar ástrlöu sinnar og henni full- nægja þær meö þvi að leggja lif hans undir sig. Frelsi þeirra er undir þrældómi hans komiö, á bak viö grimu ástrikinnar felst grimmasta sjálfselska. Lárus er einn af förumönnun- um I verkum Jökuls, kominn heim til aö vitja uppruna sins. Tilfinningallf hans er brenglaö frá rótum: hann er hommi, masókisti, transvestit og trú- lega voyeuristi lika. Hann virö- ist ófær um aö mynda heilbrigö tilfinningasambönd við aðra og er gefiö I skyn meö „flash-bökkum”, sem leikstjór- inn viröist hafa bætt inn í mynd- ina, að orsakanna sé að leita i meðferö móður hans á honum i barnæsku. Hann lifir enn þá i þeirri kvenlegu dúkku-imynd, Vandarhögg — tekist hefur aðgera þaösjúka og margflækta mannlff sem verkiö lýsir djöfullega sjálf- sagt og um leiö eru sköpuöskilyröi fyrir þvl aö hægt sé aö taka fáránleik þess alvarlega, segir Jón Viöar m.a. i umsögn sinni. sem aflaöi honum ástar móður- innar, og náiðsamband hans við Emmu byggist á þvi, aö hún kemur fram við hann sem stað- gengill móöurinnar. Likamlegt ofbeldi móðurinnar hefur komiö honum I ástarstaö á bernsku- skeiði og síðan færir ekkert hon- um sömu fróun og högg vandar- ins. Ætli þetta sé ekki i grófum dráttum sú sálarfræði, sem ber þetta leikrit uppi. Öneitanlega er býsna bóklegur keimur af henni, höfundur — og leikstjóri — virðast vera undir sterkum áhrifum frá ýmsum skólum nútlmasálfræðinnar, ekki slst þeim sem á upphaf sitt i kenn- ingum bandarikjamannsins Janovs, en hugmyndir hans um „frum-sársauka” bernskunnar sem undirrót nevrótisks athæfis i slðar á ævinni hafa vakiö mikla athygli á siöari árum. Vandar- högg veröur þó ekki alfariö af- greitt sem sálarlifsstúdia, þvi að I þvi felast ýmsar stærri spurningar, sem Jökull hafði glimt við áður. Lárus hefur flúiö ungur út I lönd, eflaust i leit að frelsi til aö lifa i samræmi viö eöli sitt. En þetta frelsi hefur auösæilega ekki fært honum þá hamingjusem hann þráöi, þó að hann hafi getað svalað hvötum slnum I bili. Þrátt fyrir frelsið hefur hann ekki megnað að vera sá sem hann er og ástæöan er einfaldlega sú, að hann hefur aldrei vitað hver hann sé I raun og veru. Tilfinningaleg kúgun foreldranna hefur sýkt alla sjálfsskynjun hans, hann er enn þá dúkkan hennar mömmu sinnar og á þvi strandar öll von um frelsi. Sé grannt skoðað hef- ur Jökull tekið þessi vandamál öll upp I fyrri verkum, e.n e.t.v. tengjast þau hvergi betur en einmitt I Vandarhöggi. Eins og fyrr segir er handrit höfundar ekki fullunniö og á leikstjórinn þvi óvenju stóran hlut I endanlegri gerð myndar- innar. Af lestri handrits er nokkuð erfitt að átta sig á þvi hvað höf- undur hefur verið að fara i ýms- um atriðum og þar er t.d. ekki að finna innskotin úr bernsku Lárusar. Að visu býggjast þau flest á upplýsingum textans, og kunna aö gegna einhverju hlut verki sem tengiliðir, en þó finnst mér þau á köflum jaðra við ofskýringu og draga jafnvel úr þeirriógn, sem á auðsæilega að stafa af leikjum persónanna. Myndin vegur þannig salt á milli alvörugefins drama með sálrænu og heimspekilegu inntaki og sálfræði-þrillers a la Hitchcock, án þess að verða nokkurn timann annað hvort út i ystu æsar. Þennan tviveörung má merkja i handriti Jökuls og trúlega er vonlaust að búa svo um hnútana að hann hverfi. Mér sýnist leikstjórinn hafa lagt heldur meiri áherslu á þriller- inn og gripið raunar sums staðar til full æsilegra bragða. En verkið er unnið af kunnáttu og öll sviðssetning og útfærsla atriöisins þegar Lárus finnur Emmu I baðkerinu við undirleik Dansi dansi dúkkan min, er eitt hiö besta sem enn hefur sést af sliku tagi I islenskri kvikmynd. Hrafn Gunnlaugsson hefur löngum veriö djarfur i leikara- vali og oft fundið rétta krafta, þar sem aðrir heföu ekki borið niður. I Vandarhöggi munu þau Benedikt Arnason, Bryndis Pét- ursdóttir og Arni Pétur Guðjónsson fara með sin fyrstu kvikmyndahlutverk, en Björg Jónsdóttir mun hafa leikið i fyrri myndum Hrafns. Val hennar I hlutverk Rósar er þó misráðið að minu mati. Ekki verður séö að Björg lumi á leik- hæfileikum svo nokkru nemi og það er mjög ótrúlegt, að sú sauðarlega stúlkukind, sem hún sýnir, geti stjórnað plottinu á bak við tjöldin. Benedikt og Bryndís reyndust hins vegar hlutverkum sínum mjög vel vaxin. Benedikt sýnir sjúkleika Lárusar meö finlegum og hófstilltum meðulum og nær sérlega vel þeim framandleika gagnvart tilverunni sem ein- kennir lif þessa manns. Emma Bryndisar er andstæöa hans, grófgerö lifsnautnakona, full af þeir.ri hörkulegu hlýju, sem at- hafnir persónunnar bera vott um Zeta er beinaber persóna frá hendi höfundar, en ekki varð annað séð en Árni Pétur Guðjónsson sýndi það sem sjást átti. Söngur Megasar hæfir vel sem undirleikur við það vonar- snauða mannlif, sem Vandarhögg og önnur leikrit Jökuls Jakobssonar fjalla um.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.