Helgarpósturinn - 12.12.1980, Blaðsíða 5

Helgarpósturinn - 12.12.1980, Blaðsíða 5
29 he/garpásturinrL. Föstudagur '12. desember 1980. (H.iuhir Smttpursm merkió sem ávallt tryggir vándaóri og betrí bækur Líney Jóhannesdóttir Aumingja Jens Saga um misheppnaðan listamann? Saga þriggja kynslóða? Vægðarlaus samtíðarlýsing? Kvenna- saga? Ekkert af þessu og allt í senn - og miklu melra. Þó er ytri efnisumgerð aðeins líf sex persóna í sömu götunni einn vetrarpart. Þetta er göldrótt og margþætt skáldsaga, rituð af beyglausri til- finningu og mikilli ratvísi. VERÐ KR. 13.710. FÉLAGSVERÐ KR. 11.650. Ólafur Haukur Símonarson Galeiðan Timabær og vel gerð nútíma skáldsaga um verk- smiðjustúlkur á vinnustað og i einkalifi. Lesandi slæst í hóp stúlkna sem vinna í dósaverksmiðju og lifir með þeim súrt og sætt fáeina daga. i bókinni birtist glöggt það galeiðumynstur sem lif þeirra er hneppt i, en á þessum dögum gerast einnig atburð- ir sem gætu breytt lífi þeirra, a.m.k. reynist sam- staða þeirra vonum meiri þegar í odda skerst... VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Guðlaugur Arason Pelastikk Nýstárleg og skemmtileg skáldsaga sem gerist á sjónum eitt síldarsumar á 6. áratugnum. Lifandi lýsing á heimi sjómannsins, séðum með augum átta ára drengs sem fær að fljóta með einn túr og siðan annan og enn annan. Vel skrifuð bók sem hefur fengið mjög lofsamlega dóma gagnrýnenda. VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Dee Brown/Magnús Rafnsson Heygðu mitt hjarta við Undað Hné Þessi bók, „Bury My Heart at Wounded Knee“, kom fyrst út í Bandaríkjunum árið 1970 og sló öll fyrri sölumet. Þarna var gerbylt viðteknum hugmyndum um margrómað tímabil í bandarískri sögu, og erfitt var að véfengja þær sagnfræðirannsóknir sem að baki lágu. Auk þess þótti bókin afburða listaverk. Bókin er prýdd fjölda Ijósmynda af helstu indíána- foringjum sem koma við sögu og henni fylgja ræki- leg kort og nafnaskrá. VERÐ KR. 19.760. FÉLAGSVERÐ KR. 16.795. Ernest Hemingway/Stefán Bjarman Hverjum klukkan glymur Frægasta skáldsaga Hemingways, sem gerist á Spáni á timum borgarastyrjaldarinnar. Andstæður lifs og dauða, ástar og haturs í samþjöppun þriggja daga að baki víglínu fasistaherjanna. Höfundi hefur þótt takast undra vel að sýna i hnotskurn spænskt þjóðlif og hugsunarhátt á þessum örlaga- ríku tímum og opna baðan víðari útsýn. VERÐ KR. 19.760. FÉLAGSVERÐ KR. 16.795. Marek Hlasko/Þorgeir Þorgeirsson Áttundi dagur vikunnar „Það er gengið hreint til verks i þessari stuttu skáldsögu. Hvergi slegið úr og i ... Hér er hvergi athvarf að finna, hvorki fyrir hugsjónlr né vonir né heldur ævintýrið mikla, ástina, sem þau Agnéska og Pietrek setja á allt sitt traust. Umhverfi og hugar- ástand persónanna verða eitt i þessu magnaða riti kornungs pólsks höfundar sem heldur undarlega vel áhrifamætti sinum I blaséruðum heimi". Á.B. Þjv. 23/11. VERÐ KR. 9.880. FÉLAGSVERÐ KR. 8.400. William Heinesen/Þorgeir Þorgeirsson Það á að dansa Spánýtt safn eftir hinn aldna færeyska snilling, með nýjum sögum frá Þórshöfn. Bókin kemur út samtímis á dönsku og íslensku, fjórða bókin í sagnasafni Heinesens í þýðingu Þorgeirs Þorgeirs- sonar. Hér segir frá ástarkvölum Fabíans unga, frá fordæðunni og prestaflennunni Teodóru, frátrúar- fári og ofstopa í sögunni Aðventa og titiisagan segir frá sögulegu brúðkaupi á hinni afskekktu Stapaey, þar sem skuggalegir atburðir urðu, skip- brot, strandrán, meira að segja brúðarrán! Óvið- jafnanleg bók sem gefur fyrri verkum Heinesens ekkert eftir. VERÐ KR. 15.930. FÉLAGSVERÐ KR. 13.540. Einar Olgeirsson/Jón Guðnason fsland í skugga heimsvaldastefhunnar Þessi bók rekur örlagaríkustu atburði íslands- sögunnar á þessari öld og gefur innsýn í það sem gerðist á bak við tjöldin. Dregnar eru upp persónu- legar svipmyndir af ýmsum stjórnmálaleiðtogum sem komu við sögu og mun þar margt koma á óvart. Frásagnamaður er einn mikilhæfasti og harðskeyttasti stjórnmálamaður þessa tímabils og elnn fremsti sagnfræðingur okkar færði í letur. VERÐ KR. 19.885. FÉLAGSVERÐ KR. 16.900. Guðbergur Bergsson Sagan af Ara Fróðasyni og Hugborgu konu hans Bráðskemmtileg skáldsaga í stil prakkarasagna um athafnamanninn Ara Fróðason og ferð hans gegnum þjóðfélagið, sem hefst á leikvelli og lýkuri eftirmfnnilegri laxveiðiferð. Með þessari bók sýnir Guðbergur Bergsson enn á sér nýja hlið og spum- ing er hvort skáidgáfa hans nýtur sín ekki einmitt best í þeim ærsla- og fjarstæðustíl sem hér er að finna. VERÐ KR. 14.820. FÉLAGSVERÐ KR. 12.600. Jakobína Sigurðardóttir Snaran ónnur útgáfa þessarar klassisku framtiðar-hroll- vekju. „Sú mynd sem höfundur dregur upp af „venjulegum islenskum alþýðumanni" kemur ekki á óvænt, en um leið er hún það sterk að hún hlýtur i senn að vekja eftirtekt og ugg. Og þungi þeirrar viðvörunar sem Jakobína ber fram í framtíðarlýs- ingu sinni vex af þvi að hún spáir atburðum sem eru svo iskyggilega nátengdir því sem þegar hefur gerst". Þjv. 17/12 1968. VERÐ KR. 9.880. FÉLAGSVERÐ KR. 8.400. Mál IMl og menning

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.