Helgarpósturinn - 12.12.1980, Síða 12

Helgarpósturinn - 12.12.1980, Síða 12
AUGLÝSINGASTOFA KRISTINAR 83.6 ÖLDIN SEXTÁNDA Hannes Pétursson: Sigfús Daðason: MINNISVERÐ TÍÐIND11501—1550 HEIMKYNNIVIÐ SJÓ LJÓÐ Ólafur Gunnarsson; LJÓSTOLLUR Hér kemur nýtt bindi, hið tíunda í röðinni, af hinum geysivinsæla bókaflokki, „Öldunum", minnisverð tíðindi 1501 —1550, tekin saman af Jóni Helgasyni. — Hér greinir á lifandi og aðgengilegan hátt frá miklum umbrota- og átakatíma í sögu þjóðarinnar, siðskiptaöldinni. Fjölmargar myndir eru í bókinni, ýmsar fáséðar. Fyrri bækurnar ná yfir tímabilið 1601 — 1970: Öldin sautjánda, Öldin átjánda I—II, Öldin sem leiö I —II og Öldin okkar I —IV. Aldirnar eru lifandi saga liðinna atburða í máli og myndum. Fáar bækur hafa orðið eins vinsælt lestrarefni á íslandi. Enginn lætur Öldina sextándu vanta í safnið. „Aldirnar" eru bækur fyrir alla, unga sem gamla, eigulegar, fróðlegar og skemmtilegar í,senn. Gunnar Gunnarsson: MARGEIR OG SPAUGARINN Lögreglusaga í fyrra byrjaði að koma út sagnaflokkur um rannsóknarlög- reglumanninn Margeir og var það nýjung í íslenskri sagnagerð. Hér er Margeir kominn aftur. . . . Konulík finnst í fjörunni við Skúlagötu. Enginn veit hver konan er, en þá kemur maður frá Keflavík og segist vera eiginmaður hennar. Margeir hraðar sér suður eftir. . . Spennandi og vel skrifuð lögreglusaga úr kunnuglegu umhverfi. Persónulýsingar skýrar og öll atvik trúverðug í samhengi sögunnar. Nú höfum við eignast eigin krimmahöfund. Heimkynni við sjó er tvímælalaust bókmennta- viðburður ársins. Fyrsta Ijóðasafn Hannesar Péturssonar í tæpan áratug. Skáldið gengur fjörur, skyggn á stórmerkin í náttúrunni sjálfri, hrynjandi árstíðanna allt í kring. Fyrir lesandann er brugðið upp ógleymanlegum Ijóömyndum. Hér kveður Hannes af meira listfengi og fágun en nokkru sinni fyrr. Þessi bók er kjörgripur Ijóðaunnenda. — ,,... í einfaldleika sínum fjölbreyttari og djúphugsaðri en sumarfyrri bækur Hannesar." (G. Ást./Helgarpóstur- inn). „Ef einhver getur enn skynjað skrumlausa fegurð, þá er hana hér að finna." (Eyst. Þorv./Þjóðv.). Stefán Unnsteinsson: STATTU ÞIG DRENGUR Þættir af Sævari Ciesielski Stattu þig drengur er vissulega umhugsunarverð bók. Hvernig mótar þjóðfélagið manninn, hvers vegna leiðast sumir til afbrota og hvernig er tekið á þeim þegarsvo er komiö? Bókin er alvarleg ákæra á hendur samfélaginu, án þess að sýkna einstaklinginn af ábyrgö á gerðum sínum. Geirfinnsmálið muna allir, — eóa þá hlið þess sem að almenningi sneri. En hvernig var vinnubrögðum hagaðvið yfirheyrslur? Bók sem enginn hugsandi maður getur leitt hjá sér. „Stefán Unnsteinssort leiðir hug lesenda sinna að mikilli og átakanlegri harmsögu . . ." (H. Kr./Tíminn). „Þetta er skynsamlega og heiöarlega gert hjá Stefáni." (Árni Bergm./Þjóóv.). Heildarútgáfa á Ijóðum Sigfúsar Daðasonar, eins snjallasta og djúpsæjasta skálds samtíðar- innar. Ljóðin eru ort 1947—77. Myndir eftir Sverri Haraldsson. Fög- ur og vönduð útgáfa. Þriója bókin í flokki Ijóðasafna samtíðarskálda. MÁNASILFUR II Safn endurminninga Gils Guðmundsson valdi Annað bindi hins vinsæla úrvals endur- minninga sem Gils Guðmundss. tekur saman. Hér eru þættir eftir 29 höfunda. Fjölbreytileg sýnishorn íslenskrar frásagnarlistar, sögumenn úr ýmsum stéttum, karlar og konur. Hér segir bæði frá ýmsum merkisatburöum íslandssögunnar eins og sögumenn lifðu þá, og hversdagsönn og lífsbaráttu viö margvíslegar aöstæður. Falleg og eiguleg bók, skuggsjá íslensks mannlífs fyrri tíðar. MÁNA SILFUR SAFN ENDURMINNINGA GllS GUDMUNPSSON VALDI FfNIÐ Asgeir Hjartarson: LEIKNUM ER LOKIÐ Úrval leikdóma Ásgeirs Hjartarsonar og greina um leikhúsmál og leikhúsmenn, frá árunum 1959-1972. •jC-Vr •■5»_JL. 4 lhiknum er lokið Asgeir var einn gleggsti og ritsnjallasti leikgagnrýnandi landsins á sinni tíð og greinar hans mikilsverð heimild um íslenska leiklistarsögu. Ólafur Jónsson valdi efnið og ritar eftirmála um höfundinn og bókina. Ljóstollur er beitt, nærgöngul og vægðarlaus lýsing á upptöku ungs manns í samfélag karlmennsk- unnar þar sem öllu skiptir aö vera töff — eða sýnast það ef maður vill lífi halda. Sögumaðurinn, Stefán, er ungur piltur og viö kynnumst umhverfi hans, bæði fjölskyldu og vinnufélögum. Ólafur Gunnarsson er einn af athyglisverðustu ungum höfundum landsins og hefur hér náð góóum tökum á stíl, mannlýsingum og frásagnarhætti. „Býsna mögnuð bók . . . ætti að geta vakiö góða umræðu um kúgun karlmanna." (Dagný Kr./Þjóðv.). Auður Haralds: LÆKNAMAFÍAN Lítil pen bók Auður Haralds stormaði inn á bókmenntasviðið með Hvunndags- hetjunni í fyrra. Læknamafían, lítil pen bók, lýsir baráttu hennar(eöa sögukonu) við aö fá sjálfa sig og sjúkdóm sinn tekin gild af samfélagi læknanna. Sagan er snörp ádeila, bráðlifandi og spaugsöm lýsing, húmorinn beinist í senn að sögumanni sjálfum og umhverfinu. Sjúkrahúslýsing sögunnar er drepfyndin — þarfer höfundur á kostum. Ýmsum mun dillað við lesturinn og kannast við sitt af hverju . . . Bræðraborgarstíg 16 Sími 12923 - 19156

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.