Helgarpósturinn - 23.01.1981, Page 3
3
__hnlrjarpn^tl irínn Föstudagur 23. janúar 1981
fjárnám hefur verið gert hjá. 1 þeirri stærri, sem er um 500 sfður, eru
nöfn allra þeirra sem hafa fengið vixildóma, uppboðs hefur veriö kraf-
ist hjá, eða eru gjaldþrota.
— bessiskrá er mjög mikilvæg,
þar eru mjög aðgengilegar upp-
lýsingar, sem fást hvergi annars-
staöar. HUn gefur okkur vls-
bendingu um hvort óhætt er að
gera samninga upp á stórar fjár-
hæðir. Ef viðkomandi hefur t.d.
orðið gjaldþrota nýlega metum
viö þaö mjög alvarlega. Að sjálf-
sögðu metum við hvert tilfelli
fyrir sig, við förum ekki eftir
skránni i blindni, sagði skrifstofu-
stjóri i stóru byggingavörufyrir-
tæki við Helgarpóstinn.
Helmingurinn á ekki
heima þar
Aðrir kváðu ekki eins sterkt að
orði. Algengt var að menn segðu
þaö sjálfsagt, að þessar upp-
lýsingar væru aðgengilegar, en
þeir notfærðu sér ekki skrána
mjög mikið. Haukur Hauksson i
bilasölunni Braut sagði, að van-
skilaskráin sé ómissandi i bila-
viðskiptunum, með hjálp hennar
hafi tekist að útiloka viðskipti við
ýmsa fjárglæframenn, „sem
koma með vixlasúpuna á eftir
sér”, sagði Haukur Hauksson.
— En ég tel samt, að helmingur
þeirra sem i skránni eru eigi alls
ekki heima þar. Ef menn sitja
fyrir framan okkur meö peninga
og kannski einn til tvo vixla
spyrjum viö t.d. hvort við megum
fletta þeim upp. Komi i ljós, aö
þeir hafa einn eða tvo vixildóma
látum við það sjaldnast koma i
veg fyrir viðskipti. Ef um er aö
ræöa verulegar upphæöir fáum
við upplýsingar um i hvaða banka
viðskiptin eru og spyrjumst fyrir
þar. En við förum ákaflega
varlega i að notfæra okkur þessa
skrá, sagði Haukur Hauksson.
Vanskilamennirnir
Hvað segja svo þeir, sem eiga
nöfn sini þessum skrám, — eru
skráðir vanskilamenn? Einn
þeirra er reyndar Haukur Hauks-
son i bilasölunni Braut. A hann
eru skráðir tveir vixladómar,
annar hljóðar upp á 40 þúsund,
hinn 350 þúsund.
— Þettaer eina og sama málið.
Þetta atvikaðist þannig, að ég
fékk rukkun um auglýsingu frá
dagblaði, sem ég hafði ekki beðið
um. Tveimur mánuðum seinna
var þetta komið i innheimtu og
orðiö að 350 þúsundum með vöxt-
um og kostnaöi, sagði Haukur.
„Öskureiður”
Samkvæmt vanskilaskránni
hefur Haukur Már Haraldsson
ritstjóri Vinnunnar fengiö á sig
fjögur uppboð og fjögur dómsmál
vegna vangoldinna vixla frá þvi
1978.
— Ég er öskureiður. Þetta er
fádæma svivirða, sagöi Haukur
Már, þegar Helgarpósturinn
fræddi hann á þvi, aö nafn hans
væri i skránni.
— Það geta verið allskyns á-
stæður til þess að slikir hlutir ger-
ast. Ég hef verið að koma mér
upp húsi i þessu geðveikislega
þjóðfélagi þar sem fólk á ekki
einu sinni fyrir vöxtum af lánun-
um. Ég hef verið að ganga i gegn-
um erfitt timabil að undanförnu.
Konan hefur ekki getað unnið úti,
bæöi vegna veikinda og barn-
eigna. A meðan hefur maður
verið að reyna að standa við
skuldbindingar af einum launum,
og borgað að sjálfsögðu stærri
skuldirnarfyrst.Þaðminna hefur
mætt afgangi, en það er allt frá-
gengið núna.
Með þvi að vera á þessum lista
er verið að stimpla mann allt að
þvi sem sakamann, og auk þess
hafa ekki farið fram nema tvö af
þessum uppboðum, sem þú
nefndir. Það var samið um hin,
sagði Haukur Már Haraldsson.
Ætti að láta menn vita
Gestur Ólafsson arkitekt er
einn þeirra, sem eiga nafn sitt á
vanskilaskránni. Þar segir, að
hann hafi fengið dóm sem útgef-
andi að 500 þúsund króna vixli.
— Að lenda á þessari skrá er
eins og að lenda á sakaskrá vegna
stöðumælasektar, sagði Gestur
Ólafsson viö Helgarpóstinn.
— Almennt séð er sjálfsagt gott
að hafa svona skrá, en mér fynd-
ist, að það ætti að vera skylt að
láta menn vita áður en þeir lenda
á þeim.
Varðandi þennan vixil hlýtur
þvi að vera þannig varið, að ég
hafi selt banka viðskiptavixil,
sem siðan hefur ekki verið
greiddur, og þvi fallið á mig.
Raunar man ég ekki sérstaklega
eftir þessu máli, en I gegnum árin
hef ég lagt áherslu á aö borga
minar skuldir á réttum tima,
sagði Gestur.
Allmörg fyrirtæki hafa sam-
kvæmt vanskilaskránni fengið á
sigfleiri ogfærrivixladóma, fyrir
utan þau sem hafa oröið gjald-
þrota. Eitt þessara fyrirtækja er
Frjálst Framtak, en þaö hefur
fengið á sig niu vixladóma á
undanförnum þremur árum, og
eru upphæðirnar sem um ræðir
allt frá 65 þúsund gömlum krón-
um upp i 1300 þúsund krónur.
Jóhann Briem framkvæmda-
stjtíri sagðist ekki vita um þessa
dóma sérstaklega, en sagði, að
ekki séóeðlilegt, að fyrirtæki sem
velti milljarði gamalla króna á
siðasta ári lendi i þvi aö einhverj-
ir vixlar sem það er skrifað á
lendi i vanskilum. ,,En þetta hlýt-
ur þó að vera einhver klaufaskap-
ur,” sagði Jóhann Briem.
„Vitum ekki hvenær
þeir byrja”
Þegar við bentum Gylfa
Sveinssyni hjá Reiknistofu
Hafnarfjarðar á þá möguleika, að
fólk sem ekkert hefur til sakar
unnið lendi á skránni, og það rýri
jafnvel lánstraust þeirra, sagði
hann, að margir hafi áhyggjur af
þvi, hvort þeir séu að gera rétt
eða rangt með þvi að gefa þessa
skrá út.
— bað er náttúrlega erfitt að
greina á milli vanskilamanna
eftir þvi hvað þeir skulda mikið
og hvað þeir hafa fengiö marga
doma. En þaö er ákveðinn kjarni,
sem er verstur i þessu, og við get-
um ómögulega vitað hvort menn
eru að hefja langan feril þegar
nöfn þeirra koma fyrst inn.
Svo mætti spyrja, hvað hinir,
sem ekki eru þarna, mega hugsa.
Auk þess eru nöfn manna ekki á
listanum til eilifðar, vixildómar
falla út eftir þrjú ár, og gjaldþrot
eftir tiu ár.
— Hvað hefur þú að segja um
löggjöf, sem meðal annars væri
ætlað að hafa eftirlit með starf-
semi sem þessari?
— Það er mjög mikil þörf á
slikri löggjöf, sem segði þá fyrst
og fremst hvað menn mega ekki
gera, frekar en hún segði hvað
má gera. Tölvuvinnsla i ákveðn-
um þáttum þjóðlifsins er stór-
hættuleg, og það allra hættuleg-
asta er, ef hægt er að misnota
þjóðskrána og keyra hana með
öðrum upplýsingum. Sjálfir höf-
um við reyndar aðgang að þjóö-
skránni, en bara til að keyra út
nafnnúmerin og kalla fram nöfn
og heimilisföng.
Það skyldi enginn ætla, að mað-
ur hafi lagt á sig langt og
kostnaðarsamt nám i tölvufræð-
um og byggt upp dýrt fyrirtæki,
og leggi svo allt i rúst fyrir eina
vanskilaskrá. Við erum ekki að
þessu fyrst og fremst til að græða
á þvi, sagði Gylfi Sveinsson, en
vildi samt ekki segja, hvort fyrir-
tækið græðir á vanskilaskránm.
— bað verður allt vitlaust i
þessu landi, ef fréttist, að ein-
hver græðir, sagði hann.
Hætt við mistökum
Hvað sem segja má um nauð-
syn skráningar á vanskilafólki
hefur hún ýmsar hættu r i för með
sér. Auk þess, að ýmsir lenda þar
óveröskuldað geta komið fyrir
mistök. Þaö sýnir best, aö til
skamms tima útbjó Landsbanki
Islands slika skrá og seldi hinum
bönkunum. En það þótti ekki
heppilegt, að bankinn væri ábyrg-
ur fyrir villum, sem kynnu að
koma fyrir. Að sögn Jónasar
Haralz bankastjóra var þessari
starfsemi þvi hætt, enda höfðu
komið htítanir um, að bankinn
yrði gerður ábyrgur fyrir hugsan-
legum villum. Auk þess benti
Jónas á, að víxlar lendi oft i van-
skilum vegna ósætti milli kaup-
anda og seljanda, til dæmis vegna
gallaðrar vöru, en málin siðan
gerð upp. En þá er kaupandinn
kominn á vanskilaskrána. ,,En
þessar skrár eru nauðsynlegar til
aö skapa fjármálalegan aga, og
það er tíhjákvæmilegt, að sak-
lausir menn lendi i þessu öðru
hvoru”, sagði Jónas Haralz.
Af þessum ástæðum hafa bank-
arnir samið við Reiknistofu
Hafnaríjarðar um aö fá stofn
þeirra, en hann er síðan keyröur
meö yfirliti Reiknideildar kk
banlanna ýfir
lokun ávisanareiicninga. P'/
Eftir þeirri skrá fara siðan *~Y
allt undir einu
þú verslar í „
þaki
húsgagnadeild og/eöa teppadeild og/eöa
byggingavörudeild °s/eda rafdeild
þú færö aílt á einn og sama
kaupsamninginn/ skuldabréf
og þú borgar allt niður i 20% SEM ÚTBORGUIM,
og eftirstöðvarnar færðu /ánaðar allt að 9 MÁNUÐUM.
Nú er að hrökkva eða stökkva, óvist er hvað þetta tilboð stendur /engi (okkur getur snúist hugur
hvenær sem er). Þegar þú hefur reitt af hendi útborgunina og ritað nafn þitt undir
KAUPSAMN/NG/NN, kemur þú auðvitað við i MATVÖRUMARKAÐNUM
og birgir þig upp af ódýrum og góöum vörum.
Opið til kl. 22 á föstudögum og til hádegis á laugardögum í Matvörumarkaðnum og Rafdeild.
/A A A A A A
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
a i_ Q I---1 eiMi-id'jr
uaciQa^'
BA ■ n U Kl ■« H U M i I i IR11
Sími 10600