Helgarpósturinn - 23.01.1981, Side 13

Helgarpósturinn - 23.01.1981, Side 13
12 Föstudagur 23. janúar 1981. 13 Jie/garpósturinn___he/garpásturinn Föstudagur 23. janúar 1981. Fyrsti þáttur. Heima hjá Magnúsi aö Hvarfi i Mosfells- sveit. Magnús Pálsson hefur um langt árabil v eriö i hópi þekktustu lista- manna þjööarinnar, þeirra, sem fást viö þaö, sem i dag er kallaö nýlist, þö ekki sé nafn hans á hvers manns vörum, né verk hans i hvers manns stofu. En Magnús hefur ekki eingöngu komið nálægt myndlist, því áöur starfaöi hann sem leikmynda- smiöur viö Þjööleikhúsiö og Leik- félag Reykjavikur. Hann segir Lárus Sigurbjörns- son, sem lengi var i stjórn Leik- félagsins, hafa veriö hvatamann aö þvi, aö hann för út i' leikhús- nám, en i menntasköla haföi Magnús eitthvað fengist viö leik- list. Magnús var fyrst spuröur aö þvi, hvort hann hafi haft brenn- andi áhuga á leikhúsi. „Mér fánnst þetta spennandi, en ég veit ekki hvort þaö var mér eitthvað megin mál. Ég held, aö ég leiti alltaf i þann farveg, sem mér finnst spennandi þá og þá stundina, eftir þvi, sem ég get leyft mér þaö. Ég geri mikið af þvi og þaö kemur mér oft i vand- ræöi.” — En þig hefur ekki langað i leiklistarnám, úr þvi þú ætlaöir þér að starfa við leikhús? „Mig hefur aldrei langað til að leika, éger of huglaus til þess. Ég held, að það þurfi feikna kjark til að leika.” — Hvað geturðu sagt mér af þinu námi i leikmyndagerð? „Ég fór til Englands árið 1949. Af tilviljun hafði Lárus samband við áhugamannaleikhús i Birmingham, en þetta leikhús hafði þá nyverið stofnað skóla fyrir leikmyndateiknara og leikara. Ég fór þvi i þennan skóla og var þar í tvö ár. Þetta var það skömmu eftir strfðslok, að aUt var enn i höml- um striðsins. Matar- og fatnaðar- skömmtun var enn viö lýöi, en að sumu leyti var ágættað vera þar. Ég held, að á þeim tíma hafi leik- húslif i Englandi verið mjög merkilegt, og ekki rigbundið við London. Það var til dæmis mjög gott leikhús i Birmingham.” — Vannstu mikið við leikhús i Englandi á þessum árum? „Þessi skóU var i tengslum viö áhugamannaleikhús, sem hafði sýningar á hverju kvöldi árið um kring, nema einhvern hluta sumarsins. Við nemendurnir fylgdumst með og vorum i tengsl- Eins og i allri minni afstöðu til leikhúss er i þvi allnokkur tvi- skinnungur þegar ég nú tala um gæðamat i leikmyndagerð. Raunar kæri ég mig ekki um leik- myndagerð og met hana fremur litils eins og hún er oftast iðkuð. Og ég lýsi þvi yfir nú, rétt eina ferðina, að mér finnst hiö borg- aralega leikhús vera á rangri braut, eða vera komið nálægt brautarenda, sem er þá kannski ekki svo afleitt. Hins vegar vUdi ég óska einhverri listgrein sem ekki væri óskyld okkar tima leik- húsi sem lengstra lifdaga. Hjarninn og shraulið — Hvað áttu við með þessu? „TU dæmis þetta að þurfa að styðjast svo mikið við þennan umbúnað um kjarna málsins. Leikmyndagerð er skreytilist einsog hún eriökuð og það er ekki gott fyrir neina listgrein að nota skreytingu til að fleyta sér á.” — Ertu þar með að segja, að leikmyndin sé óþörf eða út I hött? „Það er náttúrlega of djúpt i árinni tekið, að hún sé alltaf óþörf. Þegar ég vinn i' leikhúsi, byrja ég alltaf á þvi' að reyna að losa mig við hana. Ég byrja á þvi aðganga út frá þeirri forsendu að nota engan umbúnaö, en eftir þvi, sem verkið vinnst, koma fram kröfur, en ég veit ekki hvaðan þær koma. Sennilega koma þær frá leikritinu sjálfu, leikhús- hefðinni og öllum, sem starfa við þetta. Og mér hættir sjálfum tU að finnast nauösynlegt að búa til illusjón, svo áhorfendur geti sett sig inn I það, sem er að gerast á leiksviðinu. En þvi' meira, sem maður getur haldið sig frá þvi aö taka inn þessi skreytielement, þvi betri verður niöurstaðan fyrir alla, fyrir mig, leikara, leik- stjóra, höfund og áhorfendur.” — Á hverju byggirðu þetta? ,,Á reynslunni. Allt þetta vesen, öll þessi skreyting, allt þetta ljósaverk, gerir venjulega einhverja grautarlega heild. Þetta er kannski spartönsk aðferð, aðferðtslendingasagna aö segj a m ikla og langa sögu i' stuttri og meitlaðri setningu. Ef hún hefði verið löng og flókin, hefði hún sagt sama hiutinn á miklu óljósari hátt, þvi þaö voru svo mörg orð, sem bjuggu til þoku i kringum kjarna málsins. Það er akkúrat þetta, sem mér finnst allur þessi umbúnaður i leikhúsi vera. Þetta er þokumyndun, slör eins og konur settu fyrir andlitin yfir það, sem texti höfundarfns gerir yfirieítt. Þetta eru kannski dálitið sterkar yfirlýsingar og það má kannski véfengja þær i smáatrið- um en i grundvallaratriðum er þetta rétt. Fyrir skömmu var ég að gera leikmynd fyrir íslandsklukkuna og ég notaði þessa aðferð að byrja á þeirri forsendu að hafa ekkert nema leikara, sem flytja orð. Svo var það ekki hægt, vegna þess aö bæði ég og aðrir, sem unnum við þetta, gátum ekki sætt okkur við það, við erum vön öðru. Þannig bættum við smám saman við. Orðið oglátbragð leikarans dugði ekki alveg. Það þurfti að skapa mynd, sem orðið og látbragðið gat ekki veitt. Samt kom að þvi, aö við vorum með ákaflega ein- falda leikmynd, sem sagði þó ekkert um það hvort leikarinn væri staddur á Þingvelli að Rein eða i Kaupmannahöfn. Þá komu náttúrlega upp vangaveltur um það hvort ekki þyrfti að hjáipa áhorfandanum örlitið, svo hann vissi hvar hann væri staddur. Þá var músikant kominn i spiliö, sem er alsiða i leikhúsi. Okkur datt þá i hughvort hann gæti ekkihjálpaö með þaö, sem á vantaöi. Ef við sýnum mynd af Þingvöllum, er- um viö farin að skemma fyrir áhorfandanum, en tónlistin gæti afturá móti gert það, t.d. með þvi að láta menn heyra Island far- sælda frón á Þingvöllum, eða þjóölega tónlist, sem léti áhorf- andann a.m.k. vita að hann væri 'staddur á íslandi. Þegar leikar- inn væri staddur i glæsisölum i Kaupmannahöfn á 17. öld, heyrö- ist menúett, eða eitthvað slikt. Þá væri áhorfandinn klár á þvl, hvort hann væri staddur á Islandi, eða erlendis. Hitt fyllir textinn upp, eöa látbragð leikarans. Þetta var gert, að visu á dálitið annan máta, og ég losnaði viö að gera myndir af Þingvöllum og Kaup- mannahöfn, textinn, leikararnir og söngurinn sáu um þaö, og var stórum betri kostur. Þetta staðfesti það, sem menn vissu raunar, um óaðskiljanleika þess visúala og þess heyranlega. Ef þú heyrir hergöngulag, þá sérðu bókstaflega fyrir þér marsérandi herdeild. Og öll tón- list meira og minna skapar ein- hverja sjáanlega mynd, á ein- hvern máta. Ég held, að þetta sé gjörsamlega óaðskiljanlegt. Eitt- hvert ákveðið hljóð kallar fram ákveðinn lit hjá mörgum, ákveðin tónlist tílheyrir ákveönum at- höfnum, sem skapa visúala mynd. Ég er að reyna að rökfæra „Það hef ég bara aldrei gert. Hvernig er með skáldin okkar, hafa þau getað helgað sig skáld- skap. Það er tiltölulega litill hópur myndlistarmanna, sem hefur getað helgað sig myndlist- inni. Hún hefur kannski verið megin áhugamál, en önnur störf hafa tekið meiri tima en svo- kölluð listsköpun”. — Hvað varstu að fást við á þessum tima? „Ég var i mjög sterkum tengsl- um við þessa byltingarkenndu myndlist, sem vará döfinni uppúr 1960 og var ógurlega spenntur i þvi. Ég tileinkaði mér þann vinnumáta á nokkrum árum. Þetta var hrikalega spennandi timabil, og uppúr þvi eru sprottin þessi verk, sem ég sýndi á fyrstu einkasýningu minni árið 1967, úr öllu þessu róti i sjálfum mér og öllum myndlistarviðhorfum”. — Hvað var að gerast i mynd- list á þessum árum? „Hvorki meira né minna en það, að það gjörbyltust öll viðhorf gagnvart myndinni, og menn voru aö lemja i klessu allt, sem hafði verið hugsað á fyrri helm- ingi aldarinnar, fram undir þennan tima. Menn stilltu upp til efasemda öllum viðhorfum til myndlistar, tóku allar þessar gömlu teoriur til diskússjónar og niðurrif s. Þaö sem út úr þvi kom, i stórum dráttum, er samruni listgreinanna. En það er ekki þar með sagt, að allt sem haföi verið gert áöur, sé dautt og ómerkt. í visindum er hægt að afsanna kenningar, en i listum er bara hægt aö stilla þeim upp til diskússjónar, efast, og finna ný sjónarhorn. Og kannski það yndislegasta I þessu er, að gamla kenningin heldur áfram að vera heillandi, en hún hefur ekki spennu uppgötvunarinnar. Gamla kenningin fellur ekki, en það kemur ný f hennar stað. Gamla kenningin fær estetiskt gildi, sem hún hafði kannski ekki meðan hún var bylting. Listbylt- ingin hefur ekki esteti'skt gildi, heldur gegnumbrotsgildi, sjokk- gildi, en strax og menn venjast henni, fella sig við hana, sam- ræmast henni, þá fær hún estetískt gildi. Þá getum við ekkert annað gert en vonast eftir nýrri byltingu til að listin staðni ekki, og að við fáum þá spennu, sem við erum alltaf að vonast eftir ”. GegnumHrolslímar Annar þáttur. Degi si"ðar i húsa- kynnum MHt, nánar tiltekið 1 samhengi við aðra bókstafi, hann verðurvisúalelement I sjálfu sér. Hann lifir si'nu eigin sjálfstæða lifi. Bókageröin erenn viö lýði, og mikið afl. Þetta voru gegnumbrots- og bylti'ngarár, þegar öllum fyrir- striðsviðhorfum varumbylt, fyrst af fámennum,en mjög kröftugum hóp, en siðan hefur þetta gripið um sij og greinst i allar áttir. Eftir gegnumbrotstimann er nú komið þetta rólega úrvinnslu- skeið, þar sem fer fram fágunin á hugmyndum, sem byggðar eru á þeim grunni, sem var lagöur á þessum árum. Það er lika mjög spennandi skeiö, finnst mér, kannski einkum I dag, vegna þess, að velmegunin er það mikil. Það eru svo margir, sem geta leyft sér að vinna að list. Fjöld- inn, sem vinnur að þessari skipun er svo mikill og viðhorfin þar af leiðandi svo margvisleg, að fjöl- breytnin er ævintýraleg og ákaf- iega spennandi. Mér finnst það skipta miklu meira máli, en einn og einn afburðamaður, sem öðl- ast mikla frægð. Þessi feiknar- lega fjölbreytni, þessi ógurlega gerjun hjá þeim fjölda manna, sem fæst við þessa sköpun. Auð- vitað finnst mér mjög mikilvægir þeir listamenn, sem vérða stjörnur, hvort sem þeir höfða ákaflega til min tilfinningalega eða ekki, þvi þeir lyfta öllum hinum upp meö sér, og listinni i heild”. — En svo viö snúum okkur að sjálfum þér, hvað fæst þú við i myndlist og hvernig vinnur þú? „Ég hugsa, að fyrstu tiu árin, sem ég vann að frjálsri mynd- gerð, hafi ég unnið mikið i anda þessarar svokölluðu fluxus-listar. Siðan breyttist það, og ég verð náttúrlega fyrir áhrifum af þvi, sem gerist á úrvinnsiuskeiðinu. Ég held ekki áfram þessari anarkiskulist, sem var ri'kjandi á þessu gegnumbrotstimabili. Ég fer heldur meira út i rólega al- vöru og fágun, og fer að vinna aö þvi er mér finnst á mjög mark- vissum hugmyndagrundvelli, eða rannsóknargrundvelli. Aö hafa gengið i gegnum þessi tvö skeið, verið svona losaralegur þátttak- andi i byltingarskeiðinu, en kannski meiri þátttakandi i úr- vinnsluskeiðinu, leiðir kannski af sér ákveðinn hugarklofning, þannig að þó ég vinni fágað á mjög ströngum og rökrænum hugmyndagrundvelli, get ég aldrei losað mig við þessa anark- isku og gosalegu afstöðu til lifsins og listarinnar. Og þetta orsakar lengur. Ekki það, að tilgangurinn væri fyrst og fremst að sjokkera. Sjokkið var aö visu stundum not- að til að koma fram ákveðn- um hugmyndum eða skoðunum. A byltingarskeiðinu er listamað- urinn alltaf i andstöðu við borgar- ann, og honum er eðlilegt að setja fram sinar hugmyndir og tílfinn- ingar á þann veg, sem sjokkerar borgarann, og hlýtur að sjokkera hann.” — Er það nauðsynlegt að sjokkera borgarann, er það lisÞ inni til góðs? „Ég lit á þetta þánhig, áð hug- myndaleg bylting er alltaf sjokk- erandi fyrir borgarann, hún hlýtur að vera það, en siðan getur sjokkið út af fyrir sig verið liður i tilfinningalegri tjáningu lista- mannsins, að finna það, að hann sjokkerar aðra. Þetta er bara einn af þessum ótalmörgu þáttum i listrænni túlkun. Þessi svörun listneytandans við sjokkinu, sem er feykilega mikil tilfinningáleg- upplifun, fyrir skapandann og neytandann, finnst mér fullgild aöferð til sköpunar”. — Ér sjokkið nauðsynlegt fyrir framþróun listarinnar? „Það held ég nú ekki, hins veg- ar held ég, að það séu vissar fé- lagslegar aðstæður, sem skapa hugmyndalega og tilfinningalega byltingu, sem sé listbyltingu. Gerjunin er orðin svo mikil, að það verður sprenging. Þetta er á- kaflega hliðstætt pólitiskri bylt- ingu. Það skapast andlegt agressivitet i listamönnum, og þess vegna ráðast þeir hug myndalega og tilfinningalega á borgarann og hans borgaralega tilverugrundvöll. Og af þvi stafar sjokkið.” HeilagleiKlnn hiægiiegur — Ef við tölum nú aðeins um tengsl almennings við listina. Maður hefur margoft heyrt, að list sú, sem þú og fleiri fremjið sé alls ekki list i augum almennings. A listamaðurinn að laga sig að smekk og skoðunum almennings ilistum, eða á hann bara að gera það, sem honum sýnist? „Ég hef m jög gaman af að taia um þetta. Þú veist, eins og ég, að við erum margir haldnir ógurleg- um púritanisma. Við skulum aldrei lúta niður til að geðjast fólkinu, og þar kemur þversögnin i okkar viðhorfum. Ég dái mjög ýmsa gengna listamenn, sem hafa akkúrat gert þetta, að lúta niður til fólksins og reyna að geðj- ast þvi. Við getum litið á kvik- ekki bara fyrir sjálfan sig, heldur að eiga einhvers konar hug- myndalegt, orðalaust samtal við einhvern ódefineraðan hóp manna. En hversu stór hann er þessi hópur, það veit ég ekki, og það skiptir mig ekki óskaplega miklu máli i þessu samhengi. En ég vildi gjarnan, að hann væri mjög stór”. Eins og iiskverkunin — Værir þúhugsanlega tilbúinn tii að breyta list þinni til þess að ná til stærri hóps manna? „Hugsanlega. Mér fyndist það alls ekki fráleit hugmynd. Hitt væri náttúrlega miklu opnari og augljósari leið, að fá sér PR-mann, sem kæmi þessum hugmyndum áleiðis, án þess að ég þyrftí að breyta minum túlk- unarmáta”. — 1 framhaldi af þessu, ein fáránleg spurning. Hvaða til- gangi þjónar listin? „Sem betur fer, held ég að sköpun hugarins og sálarlifsins sé manninum svo eðlileg og nauð- synleg, að hún sé bókstaflega eins og að éta og anda. Þú getur alveg eins spurt um tilgang þess að éta. Ég held, að við séum á rangri leið, ef við förum að búa listinni til eitthvert hlutverk, sem er á einhvern máta frábrugðið þvi að éta. Þetta er okkur jafn nauðsyn- legt. Við étum til þess að lifa, við hugsum og sköpum til þess að geta verið til. Og allar þessar vangaveltur um tilgang listar, eru bara tómstundagaman manna. Það getur verið gaman að grufla i þvi”. — Hvort sem menn eru að tala um listir eða eitthvað annað, þá er sjaldan hægt að komast hjá þvi að tala um peninga. Hvernig finnst þér hið opinbera búa að listamönnum? „1 þessu sósialdemókratiska þjóðfélagi, sem við náttúrlega lif- um i, erum við heilmikið á eftir ýmsum öðrum þjóðum hvað snertir aðbúnað að listamönnum, að gera þeim mögulegt að vinna. Það er kannski megin málið, að við náum þvi marki, að listræn sköpun verði viðurkennd sem jafn mikilvægt starf og t.d. fisk- verkun, sem er undirstöðuat- vinnuvegur, sem enginn van- metur. Það er ákaflega rikjandi skoðun, að listamenn séu hálf- gerðir leiðinda þurfalingar á meðbræðrunum, og sumir nota jafnvel ljót orð um að þeir séu hálfgerðar blóðsugur, og þetta er mál, sem mætti taka til athug- unar. Þjóðin leggur mikið upp úr „HALU MER FHEHAH AB AINARHISTAINUM” um við það og stundum fengum við að vinna með.” — Hvers konar leiklist var framin þama á þessum tima? „Ætli þaö hafi ekki verið ákaf- lega venjulegt leikritaval. Miðað við það, sem ég kynntist eftir að ég kom heim til Islands, var það þó mjög merkilegt klassikerar , Tsékov, Shakespeare, Moliere, og svo hinir betri samtimahöf- undar. Það voru aldrei sýnd ómerkileg gamanleikrit til að trekkja peninga. Það var þessi leiöindaafstaða, sem ég kynntist hér, sem gerðu eins konar vinslit min við leikhúsið, sem urðu þó aldrei alger. — Hvað tók svo við þegar þú komst heim? „Ég fór aö vinna hjá Leikfélagi Reykjavikur, en byrjaði svo fljót- lega hjá Þjóöleikhúsinu.” — Hvernig var svo aö vinna hjá leikhúsunum á þessum árum? „Það var mjög erfitt fyrir mig, þvi ég hafði litla þjálfun eftir tveggja ára nám. Þá var hörgull á þjálfuðum starfsmönnum, Þjóðleikhúsið var nýbyrjað og hafði hirt obbann af starfsiiöinufrá Iðnó, og ég fékk strax vinnu. En það var vegna þess, að áhorf- endur voru ekki svo góöu vanir, og voru ekki vanþakklátir. Þessi vinnubrögö yrðu ekki liöin i dag. Leikmyndagerö var slappari á þessum tima en hún er i dag. Hún hefur unnið á. Nú eru gerðar miklu meiri kröfur og það lföst ekki i leikhúsi hér að gera mjög lélega hluti. til að fela hrukkurnar, ef þær voru famar að eldast dálitið. Það er ákveðinn púritanismi i list, sem ég er að halda fram, hreinsun á aukaatriðum og fara beint aö kjarnanum. Þetta er hreintrúarstefna, kannski skyld kalvinisma. En ég kæri mig raunar ekki endilega um neinn púritanisma. Til dæmis dái ég mikið ofgnótt skrauts og lysti- semda i barrokk-listinni. En þar er mikiil munur á hvort skreyti- legt óhóf felur I sér einlæga lifs- nautn og örlæti eöa smásmugu- legt prjái. — A leikmyndin að geta staðið sér, sem sjálfstætt listaverk? „Nei. t leiklistarsögunni eru til dæmi um að menn hafi trúað á leikmyndina sem slika, að skúbba burtu leikaranum og orðinu. En ég trúi þvi aö leikhús var i upp- hafi orðið og atferli leikarans, sem flutti það. Þetta eru grund- vallarþættir leiklistar, sem eru óaðskiljanlegir. Við finnum þetta svo vel, þegar við hlustum á ljóð eöa leikrit flutt i útvarpi. Okkur vantar ekki leikmyndina, það sem okkur vantar er að sjá lát- bragðleikarans jafriframtorðinu, en þá er myndin lika fullkomin. Ef þú hlustar á leikrit i útvarpinu, hefuröu leikmyndina i höföinu”. íslðnd larsælda irdn — Þú vilt sem sé, að það verði höföað meira til imyndunarafis áhorfenda? „Að sjálfsögðu. Ég held, aö það þurfi ekki aö hjálpa þeim fram aðþaö er hægtaðfaraaörar leiðir og sneiða hjá miklu af þessari vit- leysu. Auk þess er þetta mikið fjárhagsspursmál. Kostnaðurinn á ekki svo litinn þátt i að væng- stifa leikhúsiöog gera þaöháöara áhorfendum. — Hvað geturðu sagt mér um aödraganda sprengingarinnar, sem varð milli þin og leikhússins árið 1959? „Sprengingin hlýtur aö hafa orðið vegna þess, að ég varö fyrir miklum vonbrigðum með leik- húsið. Ég held aö mér hafi fundist það hundleiöinlegt, og viðfangs- efnin óspennandi. iNflr kapfiuli Hér veröa kaflaskil i lifi Magnúsar. Hann yfirgefur leik- húsið og fer að vinna verslunar- störf, nánar tiltekið við innflutn- ing. Jafnframt þvi, tekur hann á leigu vinnuaöstöðu utan heimilis- ins. Þangaö fer hann klukkan sex á morgnana til þess aö teikna myndir og til þess að ná fótfestu i myndlistinni. Eftir aö hann hættir verslunar- störfunum, stundar hann alls konar vinnu, gerir m.a. módel fyrfr arkftekta. Einnig leggur hann stund á myndlistarkennslu og 1975—80 var hann fastráðinn kennari við Myndlista- og handiðaskóla tslands. Nú er hann hins vegar aftur kominn i lausa- mennsku. — Hvenær fórstu að helga þig algerlega myndiistinni? kennslustofu nýlistardeildarinn- ar. — Þar sem viö enduðum i gær, varstu m.a. að tala um listbylt- inguna, gegnumbrotsgildið og estetiska gildiö. Og það sem var að gerast i listunum á árunum i kringum 1960. „Popplistín varð gifurlegt afl á þessum tima, uppákomur og það, sem nú til dags er kallað fluxus- list. Hún felur i sér liststefnu, eða isma, eða hvaö það er, sem stund- um er kallaö neo-dadaismi. Þaö var mjög áberandi keimur af austurlenskri heimspeki og lifs- viöhorfi, sem litaði þetta timabil, en mismunandi mikið hjá hinum ýmsu mönnum. Og eitt sem setti mikinnsvip á þetta, var tilviljun- in. Hún var tekin inn og látín vinna meö listamanninum. Jack- son Pollock varö þekktur fyrir að notfæra sér hana, og John Cage útfærði þetta svo frekar. Fjölföldunin varö mjög fyrir- ferðarmikil, þvi hún skiptir svo miklu máli i þessu tækniþjóðfé- lagi, og listamenn fóru að notfæra sér tæknimenn og láta þá vinna fyrir sig. Annað sem setti svip á þetta timabil, var bókagerðin, og objektið. Bækur myndlistar- manna eru oft ekki upplýsinga- veitandi, heldur listrænn hlut ur i' sjálfu sér, þannig að skrifaö- ur texti hverfur kannski alveg, eða aö þaö er unnið meö orð og letur á allt annan og meiri kon- kret máta. Einn bókstafur hefur slna táknuni sjálfu sér, tekinn úr náttúrlega innri árekstra. Ef ég ætti að fara að lita á mig sem tvo listamenn f þessu ljósi, þá myndi ég frekar halla mér að anarkist- anum en fágaða hugmynda og rannsóknarmanninum, þvi mér finnst hann miklu skemmtilegri.” Sjokkið — Hvað áttu við með innri á- rekstrum ? „Sjáðu. Neo-dadaistinn, fluxus- maðurinn, vinnur stundum ex- preesinónistiskt, hann vinnur mjög hrátt og oft mjög gróft, og athöfnin og hans eigið lff i tengsl- um við listsköpunina, er honum allt.Lif hansog listin er óaögrein- anlegt, skitt meö yfirborðiö. Þetta er hið grófa byltingarviö- horf. En aftur á mótí þegar farið er aö vinna á hugmynda- eða rannsóknarvisu, þá er mergurinn málsins að skila þrauthugsaðri og fágaðri hugmynd I þeim fágaða umbúhaöi, sem henni hæfir, þannig að t.d. einhver gröfleiki eöa ruddaskapur trufli hvergi hugmyndina, hvort heldur hún er rökræns eða tilfinningalegs eðlis, eða hvort tveggja. Ég ólst upp við það i minni myndgerö, að ég byrja á þvi að vinna gróft, impúlsfft og frekju- lega, sem var kannski dálitið meðvituð viöleilni til að sjokkera meöborgarana á þeim tima. En siðan, þegar búið er aö sjokkera meðborgarana, þá hafa þeir aö- lagaö sig að þessum grófa túlkun- armáta, og þeir sjokkerast ekki myndagerðarmenn eins og Chaplin, Keaton og W.C. Fields, og það má halda áfram að nefna fjölda dæma. I þessu ljósi verður þessi heilagleiki dálitið hlægi- legur, en um leið er þetta ein af þessum yndislegu þversögnum i list og lifi, að maður þverneitar að sveigja nokkuð út af sinni fast- mótuðu braut til að geðjast ná- unga sinum, en kannski gerir maður sin bestu verk með þvi akkúrat, að reyna að geðjast þeim, sem maður er tilfinninga- lega tengdur, hvort sem það er væntumþykja um einstakar per- sónur, eða bara náungann yfir höfuð”. — Telja listamenn sig kannski yfir almenning hafinn? „Það gera náttúrlega flestir sig seka um hroka, og listamenn ekki siður en aðrir. En hitt er annað mál, að listamaður verður, held ég, að hafa ánægju af þvi, sem hann gerir, og það er þá, sem hann kannski verður að gefa skit i hvernig öðrum fellur við það. Þetta er ákaflega erfiður hjalli persónulegs sjálfstæðis, sem hver skapandi maður verður að ganga i gegnum. Þegar talað er um hvort það sé allt i lagi, aö lista- maðurinn einangrist, þá ris alltaf þessi teoretiska spurning: Til hversu margra á hann aö höfða? Á hann að höfða til fimmtiu þús- und manna, eða er honum kannski nóg að höfða til fimmtiu manna? Mér finnst það mjög nauðsyn- legt og mjög mikilvægtað dunda viðlal: Guðiaugur Bergmundsson myndir: Jim Smarl þvi að vera talin gáfuð menn- ingarþjóð. Hún auglýsir sig sem sögu- og bókmenntaþjóð til þess að byggja t.d. upp túristaatvinnu- veg. A hátiðum og tyllidögum, eins og afmælishátiðinni 1974, er menningunni flaggað, þá eru listamenn allt i einu finir menn. Það var sett upp meiriháttar yfirlitssýning á islenskri list á Kjarvalsstöðum og öllu tjaldað, sem til var i myndlist, frá grárri forneskju til nútimans. Það þurfti ekki að hringja i miðaldalista- mennina, sem myndskreyttu handritin og sköpuðu kannski grunninn að islenskri sjónlist, en þaö var hringt iþá, sem á lifi voru og þeir beðnir að láta verk til sýn- ingar. Það var sendur sendiferða- bill eftir verkunum og þeim stillt upp á Kjarvalsstööum. Lista- maðurinn.sem bjó til verkið, var ekki spurður hvað það kostaði aö sýna verkið almenningi, eða hvað hann hefði haft að éta meðan hann bjó það til. Þá getum við spurt: Hver er blóðsuga á hverj- um? Er listamaðurinn blóðsuga á þjóöfélaginu, eða er það öfugt”. Lisiamaðurinn og Dissnessmaðurinn — Og áfram með peningana. Telur þú æskilegt, að listamaður- inn geti lifað af list sinni? „Þetta að lifa af listinni. Sumir geta lifað af sinni list, af þvi að hún höfðar til nokkuð stórs hóps, sem vill borga fyrir hana. Þeir geta unnið eins og þeim er eðli- legast, og notið þess bæði að vinna og eiga hylli fólksins, auk þess mikilvæga að eiga þægilega efnahagslega afkomu. Svo eru hinir, sem eru alveg á hinum kantinum, sem vinna á sama hátt, eftir eigin tilhneigingu, en eru ekki svo heppnir að eiga hóp tilf inningalegra viðmælenda. Þeir eru i efnahagslegum vanda staddir. Þá ris upp sú spurning, hvort listamaðurinn eigi að fara að vinna á skrifstofu, eða á eyr- inni til þess að geta lifað og stunda listsköpun á aflögustund- um, eða á hann að notfæra sér það sem hann hefur lært i handfærni og „smekk” og selja þá hæfiieika?”. — Hefur þú sjálfur einhvern tima getað lifað af þinni list? „Nei, aldrei. Ég hef bara alltaf haft mikinn kostnað af henni”. — Yrði það mikilvægur áfangi fyrir þig, ef þú gætir lifað af list- inni? „Ég vil heldur stunda aðra vinnu mér til lifsviðurværis, en að þurfa sjálfur að selja mina list. Hins vegar ef ég væri svo hepp- inn, að min list seldist, að menn vildu eiga hana og hafa hana nálægt sér og borga fyrirhana, þá þætti mér það ákaflega þægi- legt, sérstaklega ef ég gæti falið viðskiptamálin einhverjum öðr- um. Það ideala er að vera nógu góður listamaður og nógu góður bissnessmaður til að geta selt sina list, þannig að maður fái nógu mikið til þess að geta verið nokkurn veginn hamingjusamur og áhyggjulaus. Sumir þurfa náttúrlega mjög mikið, en aðrir þurfa minna. Þetta eru alveg sömu vandamál og verslunar- menn fást við. En ég þekki lika myndlistarmenn, sem geta mokað inn peningum, en eftir þvi, sem þeir hafa meiri umsvif, þvi óhamingjusamari verða þeir. Þetta er alveg eins með lista- menn og aðra”. HiO þjóölega í okkur? Þriðji þáttur. Aö snæðingi á Esjubergi. — Ef við snúum okkur að is- lenskri list i dag, er útlitið bjart? „Við erum þjóð, sem hrærist aöallega i takt við Evrópuþjóðir, félagslega, efnahagslega og á allan annan hátt. Þess vegna hljótum við að gera það lika á þessu hugræna sköpunarsviði, það er óhjákvæmilegt. Við hvorki getum, né viljum einangra okkur, þar af leiðandi verður okkar hug- læga pródúkt hluti af evrópsku, og alþjóðlegu huglægu pródúkti. Hvort við höldum einhverjum þjóðlegum einkennum, vegna þess, að við erum Islendingar, er raunar ekkert sem viö stjórnum sjálf. Við getum ekki farið að búa okkur til islenska hefð, sem er ekki til. Hins vegar með þvi að vera gjaldgengir þátttakendur i hugarhræringum i heiminum, getum við haldið i okkur andlegu lifi, ekki satt? Ef við samlögumst alþjóðlegum hræringum i listum, er það gott, og nauösynlegt, en ef ' við eigum i okkur sjálfum ein- hvern menningarlegan uppruna, sem bara við eigum, þá hlýtur hann að skila sér i gegn. En ef við eigum ekki þessa kreativu festu, sem er byggö á menningarhefð, eigum við enga þjóðiega persónu hvort sem er. Það er afar rikt i Norðurlandabúum, að þeir eru alltaf að leita að norrænni hefð i þvi, sem þeir eru að gera, sem er faktiskt bara alþjóðleg list. Þessi þjóðlegueinkenni, sem við viljum gjarnan eiga, eru nokkuð, sem ekkert þýðir að setjast niður og skrifa blaðagrein um og heimta, heldurerum við, eða viljum vera, þátttakendur i öllum andlegum hreyfingum i heiminum, og vilj- um umfram allt ekki einangra okkur frá þeim. Þaö þýðir ekkert að vera að rembast við að búa til eitthvað þjóölegt, annaö hvort er það i okkur, eða ekki.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.